Fálkinn


Fálkinn - 03.07.1959, Blaðsíða 9

Fálkinn - 03.07.1959, Blaðsíða 9
FÁLKINN 9 Buicknum þarna og ökum til Mexico. — Til Mexico? hváði ég og átti bágt með að trúa að mér hafði ekki misheyrst. — Já, yfir landamærin til Mexi- co. Þú stýrir og hún situr mér til skemtunar í aftursætinu. — Heyrið þér! Ég skal aka yður til Mexico, sjálfvilugur, ef þér lát- ið Sandy verða eftir hérna. Hann rak upp kuldahlátur. — Nú gengur fram af mér. Svo að það datt þér í hug! Að ég mundi sleppa litlu rjúpunni þarna? Þegar maður hefur ekki séð kvenmann í sjö ár! — Dettur yður í hug að þér get- ið komist klakklaust út úr þessu? sagði ég og kreppti hnefana svo fast að neglurnar skárust inn í bjórinn. — Þú skalt nú fá að sjá það. Þér er óhætt að treysta Ralph Harmon, greppatrýnið þitt. Kannastu við nafnið mitt? Ég varð einskis vísari af nafn- inu. En Harmon benti á Sandy og hvíslaði: — En hún veit hver ég er. Líttu bara á skjáinn á henni. Segðu hon- um hver ég er, tjátlan mín, skip- aði hann. Sandy svaraði mjóróma: — Hann er glæpamaður, sem strauk úr fang- elsinu........ — Alveg rétt. Ég hef verið á flótta í tvo daga og nú skulu þeir aldrei ná í mig aftur. Aldrei! Þú getur skrifað það hjá þér. — Það stóð í blaðinu að þér væruð lífstíðarfangi, sagði Sandy hás. — Dæmdur fyrir morð.......... — Alveg laukrétt! Fyrir morð, já. Harmon deplaði augunum til mín. — Svo að það borgar sig ekki að halda, að ég sé hræddur við að nota þessa byssu, ef þú kynnir að reyna einhver undanbrögð. — Svo nú, standið þið nú upp! skipaði hann allt í einu. — Klæð- ið ykkur, því að nú leggjum við af stað. Okkur var nauðugur einn kost- ur, að hlýða. Baðfötin okkar voru orðin þurr, svo að við fórum í föt- in utanyfir þau. — Svona, jæja, nú höldum við af stað. Nei — við skiljum þetta dót eftir hérna. Við þurfum ekki á því að halda. Við gengum upp að stígnum. — Þú gengur fyrst, sagði hann við Sandy. Svo stakk hann skamm- byssuhlaupinu í bakið á mér. — Jæja, labbaðu nú á eftir henni. — Við vorum öll móð eftir brekkuna er við komum upp að bílnum. Ég lauk upp bíldyrunum. — Það er best að þið setjist bæði fram í, fyrst í stað. Ef við kynnum að rekast á lögreglu, þá hafið þið verið í smáferð til að skoða tungls- ljósið. Ég leggst niður á gólfið hérna aftur i, og ef þið segið orð við lögregluna þá skal ég bölva mér upp á að ég skýt gegnum sæt- isbakið. Verði ég tekinn þá er úti um ykkur. Bæði tvö — skiljið þið það? Og nú ökum við af stað. Inn með ykkur! Eg settist við stýrið. Harmon lagði niður stólbakið og fór aftur í. Svo settist Sandy við hliðina á mér í framsætið og skellti hurðinni aft- ur. Það var þó léttir að hún þurfti ekki að sitja við hliðina á bófan- um. Og áður en hann neyddi hana til að flytja sig, skyldi ég hafa fundið einhver ráð........ Ég tók eftir að klukkan var hálf- átta er ég setti bílinn í gang. Og við sem vorum boðin út klukkan átta! Nú murraði í hreyflinum. — Opnaðu útvarpið! skipaði Har- mon. — Ég vil heyra hvort þeir segja nokkrar fréttir. — Hvað hafið þér hugsað yður að gera við okkur þegar við kom- um til Mexico? spurði ég. Harmon rak upp hásan hlátur. — Ég skal hafa einhver ráð með það, rjómadrengurinn minn. Og hana — ja, það verð ég að athuga nánar. Það er að nokkru leyti undir henni sjálfri komið ...... hvort hún ....... Hann þagnaði til að hlusta á fréttirnar. Þulurinn las upp lýs- ingu á strokna morðingjanum Ralph Harmon, og sagði að hann svífðist einskis og væri stórhættu- legur. Hann hafði sést einhvers- staðar. norðarlega, ekki iangt frá landamærum Canada. Lögreglan væri á þönum til að ná í hann áð- ur en hann kæmist úr landi. Harmon hló. — Þarna sneri ég vel á þá, bölvaða glópana. Ég sendi gamlan kunningja minn norð- ur, og gekk að því vísu að þeir mundu rekja slóðina hans, en sjálf- ur ætlaði ég að komast með járn- braut suður. En nú ekur maður beina leið til Mexico án þess að rekast ú bölvaða snuðrarana. — Hvert til Mexico ætlið þér? spurði ég. — Til Santa Rosalia. Veistu hvar sá bær er? — Hef aldrei heyrt hann nefnd- an. — Hann er suður með strönd- inni, um þúsund kílómetra frá landamærunum. — Þúsund kílómetra? Það fór hrollur um mig. Þúsund kílómetra með vopnaðan morðingja í aftur- sætinu. •— Hvers vegna viljið þér kom- ast til Santa Rosala? spurði ég. Ég heyrði sjálfur hve hikandi röddin var. — Vegna þess að áætlun mín er þannig, sagði Harmon. — Þú í- myndar þér varla að ég hafi brot- ist út úr fangelsinu án þess að hafa gert áætlun um allt fyrirfram. Ég átti náunga að, sem hjálpuðu mér. Þegar ég kem til Santa Rasalia fer ég með ferjunni til Guayamas. Þaðan fer ég með flugvél til Mexi- co City. Og þá er Ralp Harmon horfinn fyrir fullt og allt. — En hvers vegna undirbjugg- uð þér ekki ferðina til Santa Rosa- lia úr því að þér höfðuð lagt þetta allt svo vel niður? — Ég hafði gert áætlun um það. En svo bilaði bíllinn hjá mér, skammt þaðan sem þið voruð. Vit- anlega hefði ég getað stolið öðrurn bíl, en þá hefði eigandinn kært þjófnaðinn og lögreglan hefði farið að eltast við mig. Nei, það var miklu betra að hafa það svona. Engan bílþjófnað — en ykkur tvö sem gisl, ef lögreglusnuðrararnir færu að gerast of eftirgangssamir. — En hvað vinnst yður við að drepa okkur þegar við komum til Santa Rosalia? sagði ég. — Þér eruð öruggur þegar þangað kemur. En ef þér fremjið tvö morð í við- bót, gefst lögreglan aldrei upp við leitina. — Jæja, þeir hafa þá eitthvað að gera sér til gamans á meðan, sagði sambandi við lögregluna þarna, án Harmon. í Mexico City finna þess að fá kúlu gegnum hausinn? þeir mig aldrei. Það hverfa öll spor Það var umferðaljósið framundan út í sandinn. mér, sem gaf mér loks hugmynd- Lögreglubifreið sveigði inn á að- ina. Það var að breytast í rautt. alveginn af hliðarvegi og ók fast á Ég steig varlega á bensíngjaf- eftir okkur er við nálguðumst flug- ann. Ekki hart, svo að það gæti völlinn. Harmon kúrði sig niður og komið upp um mig. Hraðinn óx ég fann að hann þrýsti skamm- smámsaman upp í 55, svo flutti ég byssuhlaúpinu í sætisbakið. . fótinn og fór að fást við hemilinn. — Aktu hægara, hvæsti hann. Þegar ég að lokum steig hann — Engar hundakúnstir, því að ég alveg niður og nam staðar við sver að þið skuluð vera dauð, bæði krossgöturnar, hamaðist hjartað í tvö, áður en þeir læsa klónum í mér og hendurnar voru votar af mig. svita. Lögreglubíllinn var enn rétt Ég dró úr hraðanum, úr sextíu fyrir aftan mig. niður í fjörutíu og var sifelt að Umferðaljósið breyttist í grsent brjóta heilann um hvað gera skyldi, og ég lét bílinn renna hægt af stað. svo að mig verkjaði í hausinn. Þegar við ókum yfir þverveginn Þarna var bjargvætturinn rétt bak rann lögreglubíllinn fram með okk- við okkur. En hvernig átti ég að ná Framh. á bls. 14. * £itt htJetju * llvíldarhöll Tiio's á llrioni og œuintúrl úr „100/ no'tt Stærsta hafnarborg Júgóslavíu heitir Pula, og stendur á Istría- skaga, nokkur hundruð kilómetra fyrir sunnan Trieste. Þar í kring eru mestu stóriðjufyrirtæki lands- ins og glymjandinn í vélunum heyrist langt út á Adríahaf. En þó heyrist hann ekki út í Brionieyj- ar, sem liggja nokkuð undan landi. Tíu klettaeyjar, sem eru sumar hverjar eins og drangar. En sú ellefta er stærst, 6 km. löng og 2 á breidd. Og þar er sumarhöll Tito forseta. En hann varð ekki fyrstur til að uppgötva fegurðina á Brioni. Þar eru margar rústir halla fornra rómverskra höfðingja. Þar er ágæt veðrátta; þó daglangt rigni inni á ströndinni koma aðeins skúrir á Brioni, og þegar heitast er á landi er svalt í hafgolunni á Brioni. Þar vex kyprosviður og pálmar og reykurinn frá verksmiðjunum í Pula nær ekki þangað. Meðan Austurríkismenn áttu Brioni notuðu þeir eyjarnar fyrir hernaðarbækistöð. Eftir fyrri heimsstyrjöldina fengu ítalir yfir- ráðin þar og byggðu þá lúxushótel þar og settu hákarlanet í víkurn- ar, vegna baðgestanna. Eftir síðari styrjöldina varð Brioni hluti af Jugóslavíu, og Tito var fljótur að uppgötva þessa Paradís. Hann lét breyta gistihús- unum í tízkuhorf og fluttist sjálf- ur í einkabústað sem ríkur ítali hafði byggt sér og lét breyta hon- um í samræmi við besta Holly- woodstíl. Gömul höll var skinnuð upp og notuð handa gestum forset- ans, og verkamannaráðin og her- mannaráðin byggðu aðra höll og gáfu forsetanum. Hún er notuð við opinberar móttökur á Brioni. Tito býr aðeins fáa mánuði árs- ins í gömlu konungshöllinni í Beo- grad eða Dedinjehöllinni í útjaðri þeirrar borgar. Meiri hluta ársins er hann á Brioni, meðfram heilsunnar vegna. Þann tímann sem hann er þar, fá engir skemtiferðagestir að vera á Brioni, heldur aðeins helstu embættismenn ríkisins, sem fá að vera þar í sumarleyfinu, oftast nær sem gestir ríkisins. Höll Titos er afar íburðarmikil og smekkleg, en þó full austurlanda- leg, eftir vestrænum smekk. Lista- mennirnir, sem skreytt hafa hana, höfðu sæmilega frjálsar hendur, og sumt af listinni mundi vera kall- að „vestræn úrkynjun“ í Moskvu. Þjónalið Titos er fjölmennt, og vilji hann aka um eyjuna notar hann skarutlegan hestvagn með gamalli gerð. Á höfninni liggur hvítmáluð skemtisnekkja hans og sömuleiðis hraðskreiður vélbátur, sem hann notar mikið. Vilji hann vera alveg útaf fyrir sig fer hann út í smáhólma, sem heitir Vanga. Þar hefur hann látið reisa sér smá- kofa. Tito tekur á móti gestum sínum á stéttinni fyrir framan höllina, hjá gosbrunnunum þar. Hann er smekklega klæddur, i stálgráum sumarfötum. f digru gullarmbandi um úlfliðinn er úr, sem sýnir bæði tíma og mánaðardag og brilliant glitrar í slifsnælunni. Hann er með marga hringi á fingrunum, þ. á m. stóran innsiglishring. Hann reykir júgóslavneskar sígarettur, sem likjast tyrkneskum, og notar alltaf gullmunnstykki. Hann er sólbak- aður og sérstaklega vel greiddur. Hann er orðinn 67 ára en virðist vera tíu árum yngri. Hann hlær sjaldan. Hann er fljót- ur til svars, einsog hann vissi fyrir hvað hann er spurður um. Fátækt almennings er mikil í Jugoslavíu og dýrðin á Brioni stingur mjög í stúf við kjör fólks- ins. En Jugoslavar láta sér vel líka þó Tito berist mikið á. í' augum alþýðunnar er hinn fyrrverandi smiður hliðstæður konugunum frá frægðaröld landsins. Hann á að hefja þjóðina til álits í augum ann- ara þjóða, og þá er ekki nema gott að gestir hans sjái hann í sem glæsilegastri umgerð.

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.