Fálkinn - 03.06.1960, Page 3
FALKINN
3
★
Á þessari samsettu
mynd sést greinilega
hve stutta braut
Caribou notaði til
flugtaks á Sand-
skeiði. Ljósmyndar-
inn stóð í sömu
sporum, þegar hann
tók báðar myndirn-
ar. Vélin stendur
kyrr á myndinni til
vinstri.
Flugvél sem
AÐ ER ekki nema eðlilegt, að íslendingar
fylgist vel með framþróuninni í fluginu og
öllum nýjungum á því sviði svo mjög sem flug-
samgöngur hafa aukizt hér síðustu áratugina og
hljóta að vaxa enn til mikilla muna. Hvert
byggðarlagið á fætur öðru óskar nú eftir að fá
sinn eigin flugvöll, því nú sætta menn sig ekki
við annað en komast landshornanna á milli á ör-
fáum klukkustundum — og óneytanlega er mik-
ið öryggi í því að hafa flugvöll á staðnum.
Nú fyrir nokkru kom hingað í sýningarferð
ný gerð flugvéla, svonefnd Caribou, sem smíðað-
ar eru í De Havilland-verksmiðjunum í Kanada.
Caribou flugvélin hefur þann eiginleiga að geta
tekið sig upp og setzt á margfalt styttri flugbraut
en þær vélar, sem aðallega hafa verið notaðar
til þessa.
De Havilland verksmiðjurnar hafa allt frá
stríðslokum gert tilraunir með smíði flugvéla,
sem þyrftu stuttar flugbrautir. Fyrsta vélin var
Bifurinn (Beaver), eins hreyfils vél, sem vegur
um 3 lestir. Næst kom svo Oturinn (Otter), sem
er líka einhreyfils vél, en nokkru stærri. Tekur
hún 11 farþega. Nýlega er nú hafin innanlands-
flug í Grænlandi með slíkum vélum. Þeir Fuchs
og Hillary notuðu báðar þessar flugvélar í hin-
um sögufræga Suðurskautsleiðangri sínum og
reyndust þær með afbrigðum vel.
Caribou er svo þriðja í röðinni. Hún er tveggja
hreyfla og þeirra stærst, vegur fullhlaðin 13 lest-
ir og getur 30 farþega. Ómögulegt er að segja
að hún sé rennileg. Hún er 22 metrar að lengd
og vænghafið 29 metrar. Stélið skagar nær 10
metra upp í loftið. En það hefur þann stóra
kost að hægt er að opna farþegarýmið að aftan
og það jafnvel svo að hægt er að aka inn litlum
bílum.
Caribou vélinni nægir 165 metra braut til flug-
taks í logni sé hún fullhlaðin og eru þá eiginleik-
ar hennar notaðir til hins ýtrasta, en undir venju-
legum kringumstæðum er reiknað með að vélin
þurfi fullhlaðin um 290 metra braut og 480 til
þess að sleppa yfir 15 metra háar hindranir.
Flugumferðareftirlit Bandaríkjanna gerir þó
strangari kröfur. Þessari vél eru þar settar þær
reglur að flugbrautin þurfi að vera 780 m löng'.
Er þá miðað við að hún komist yfir fyrrgreind-
ar hindranir fullhlaðin þótt annar hreyfillinn
bili i flugtaki.
Á vesturlöndum eru reglur flugumferðareftir-
lits Bandaríkjanna yfirleitt látnar gilda, þannig
að hér yrðu flugvellir hennar að vera 780 metr-
ar. Til samanburðar má geta þess, að Douglas-
vélarnar, DC-3, sem aðallega eru notaðar hér í
innanlandsflugi, þurfa 1020 m langa flugbraut
á Egilsstöðum til þess að fyllsta öryggis sé gætt
og í Vestmannaeyjum 950 m braut. Caribou og
vekur athygli
DC-3 geta flutt svipað vörumagn, Caribou þó
heldur meira. Sé samanburði haldið áfram er
venjulegur flughraði DC-3 um 145 mílur á klst.,
en Caribou 170 við sjávarmál og 182 mílur í 7500
feta hæð. En Caribou hefur einnig þá eiginleika
að geta flogið á aðeins 62 mílna ferð og á þeim
hraða kemur hún inn til lendingar.
Caribou-flugvélin, sem hingað kom, var að
koma úr sýningarferð umhverfis hnöttinn, og
var ísland 39. og síðasta landið. Menn hér undr-
uðust mjög, hve stutta braut hún þurfti til flug-
taks, 25—30 metra, og þegar hún settist á Sand-
skeiði fór hún vart meir en tvær lengdir sínar
Búrhveli á þurru landi
Þetta er engin smáskepna, sem sést hér á
myndinni, enda stærðar búrhveli, sem dregið
hefur verið upp á bryggju í hvalstöðinni í Hval-
firði. Er verið að mæla hvalinn. Hvalveiðivertíð-
in hefur aldrei byrjað jafnvel og að þessu sinni.
áður en hún var stönzuð. Skilyrði voru líka hin
beztu. Þá fór hún einnig í reynsluför til Vest-
fjarða og settist þar á hvaða smáflugvelli sem
var.
Ekkert mun ákveðið um það, hvort íslending-
ar kaupa slíkar vélar, þótt þær virðist henta
okkur að mörgu leyti. Sá böggull fylgir skamm-
rifi, að þær eru mjög dýrar, kosta 600 þús. doll-
ara eða sama og Claudmaster-flugvélarnar, DC-
6b, sem Loftleiðir keyptu nýlega. En framleiðsla
Caribou-flugvélanna er tiltölulega nýbyrjuð, og
ekki ósennilegt, að þær lækki í verði.
Allir fjórir hvaJveiðibátar stöðvarinnar komu
inn sömu nóttina með samtals 13 hvali og höfðu
þá verið um það bil tvo sólarhringa í veiðiförinni.
Það tekur fjóra tíma að gera að hverjum hval
og er þá allt starfsfólk stöðvarinnar að verki.
Kjötið af búrhvölunum fer allt til bræðslu. Eng-
in hætta er á að það skemmist þótt nokkur tími
líði frá því að skepnan er drepin og þar til að
henni er gert, því að strax og hvalurinn hefur
verið dreginn að skipshliðinni er sprautað í hann
sérstöku efni, sem kemur í veg fyrir skemmdir.