Fálkinn - 03.06.1960, Blaðsíða 13
FALKINN
18
X -K *
ÞAÐ UNDARLEGA er, að tœpast
er nokkur jatnaður kvenlegri en
dökkblá eða svört dragt,þegar snið-
i'ð er fallegt. Og hana er t. d. hœgt
að sauma úr gömlu „smoking“■
fötum mannsins. Jakkinn er með
vinkilhornum. Blússan er með
„mansjettum“ og hálsslaufan hvít.
öízli
an
********
ÞESSIR TVEIR PELSAR eru mjög
ólíkir. Sá efri er orlon-pels, sterk-
ur og hentugur til hversdagsnota.
Hitt ar persian-pels. Hann er marg-
falt dýrari, og aðeins á fœri þeirra,
sem vel eru efnum búnar, að eiga
slíka flík.
-Kic-K-X-K-X-K-X-X-K-K-X-X-K-X-K-K-K-K-K-X-X-X-X-X-K-X-X
væri horfinn. Gat ég huggað þig ofurlítið?
— Já, þú hjálpaðir mér verulega vel, svaraði
hún alvarleg. — Þú komst mér til að hugsa um
eitthvað annað.
— Og þú komst mér Mka til að hugsa um eitt-
hvað annað — eða réttara sagt um annan, sagði
hann jafnalvarlegur.
Þau voru komin fyrir horn eins af smærri
skálunum á flugvellinum og sáu nú í fjarska
mann og konu, sem sneru bakinu að þeim.
Tunglskinið ljómaði í hári stúlkunnar — það
var eins og spunnið silki. Þau heyrðu hana
hrópa:
— Nei — nei! Ég get ekki gert það! Ég hef
sagt að ég get það ekki! Ég geri það ekki!
Hún sleit sig af manninum og hljóp á burt.
Hrasaði tvívegis. Maðurinn hljóp nokkra metra
á eftir henni en nam svo staðar, sneri við og
fór í öfuga átt. Það lá við að hann rækist á Kötu
og Bern. Þetta var grannur maður, gekk álútur
og lét hattinn slúta. Kata og Bern héldu áfram.
Þau voru bæði vandræðaleg. Loks ræskti Bern
sig og sagði:
— Ég hélt fyrst, að þetta væri ungfrú Prava,
en mér hefur missýnst.
— Mér fannst hún líka vera svipuð henni,
sagði Kata.
Þau gengu þegjandi að flugvélinni. Fegurð
kvöldsins var horfin, og sama var um gleði Kötu
að segja. Bæði hún og Bern vissu að þau höfðu
séð Helgu Prava, en hvers vegna vildu þau ekki
játa það hvort fyrir öðru? Það var líkast og að
Helga væri þegar orðin eins konar þröskuldur
á milli þeirra.
Kötu gramdist, að hún gat ekki séð neitt af
Indlandi. Allt var svart, samanhangandi myrk-
ur. Þegar hún var að smávakna leit hún út um
gluggann í þeirri fánýtu von, að myrkrinu mundi
létta og hún fengi að sjá borgirnar sem hún
hafði lesið um, frumskógana og hallirnar. Hún
varð þess vör að Helga svaf illa líka.
Helga hafði ekki sagt annað en sér liði betur
og hefði svo farið beint út í flugvélina. Hún
virtist vera mjög hugsandi, og eftir svipnum
að dæma voru það ekki skemmtilegar hugsanir.
Kata var hálf angurvær þegar þau lentu í
Calcutta. Flugvöllurinn var eyðilegur og tóm-
ur um þetta leyti nætur. Hann var líkastur stórri
járnbrautarstöð. Næstu klukkutímarnir urðu
langir og tilbreytingarlitlir. Kata reyndi að sofna
aftur. Bern var að lesa í einhverju vísindariti.
Hann hafði ekki talað nema fá orð við Kötu og
Helgu í Calcutta, og Kata var einmana. En þeg-
ar morgunsólin vakti hana og hún leit út um
gluggann varð hún glöð og vongóð aftur. Hita-
beltislandslagið fyrir neðan var svo fallegt, að
það borgaði sig að fara um hálfan hnöttinn til
að sjá það.
Þau komu til Singapore um miðjan dag, og
Kata fann að það voru fleiri en hún, sem hlökk-
uðu til að koma út. Loftið var hreint og bjart, og
glaða sólskin.
Bern kom brosandi til þeirra. — Gætu ung-
frúrnar hugað sér að borða hádegisverð með
mér á Raffles Hótel? Það er víðfrægt hér eystra.
— Það væri gaman, ég hef heyrt svo mikið
talað um Raffles, sagði Kata áköf.
— Og þér, ungfrú Prava?
— Það er vel boðið, en ég get því miður ekki
þegið það. Ég þarf að sinna ýmsum erindum
hérna, sagði hún.
— Þér hafið sjálfsagt nægan tíma til að ljúka
þeim erindum á eftir, sagði Bern og röddin var
áberandi einbeitt.
— Þökk fyrir, en ég þarf að hitta kunningja
minn hérna.
— Þá fáum við Kata að aka með yður þangað
sem þér eigið að hitta hann, sagði Bern áfjáður.
— Nei, þökk fyrir. Vinir mínir hérna sjá um
mig.
— Jæja, þá skulum við búa okkur af stað, Kata
Hann var fremur stuttur f spuna — það var lík-
ast og honum væri að þyngja í skapi. Á leiðinni
í bílnum, af flugvellinum í gistihúsið, sagði hann:
— Þér hefur kannske fundist ég vera nokkuð
áfjáður í að ná í ungfrú Prava með okkur, Kata.
En ég hef einhvern veginn komist á þá skoðun,
að þessi stúlka sé í alvarlegum vandræðum. Ég
hugsa, að hún þurfi á hollum vini að halda.
— Ég hef gert mitt bezta til þess að vera vin-
gjarnleg við hana, svaraði Kata lágt.
— Ég veit það — ég hef tekið eftir þvá hvað
eftir annað. Hann brosti til hennar. — Stundum
geta karlmenn orðið stúlkum að betra liði en
konur geta.
— Áttu við að það sé hægara að gera karl-
mann að trúnaðarmanni?
— Já, hver veit, sagði hann. — En ef hún á
vini hérna í Singapore þurfum við ekki að hafa
áhyggjur af henni.
Én samt virtist hann ekki geta haft hugann
af Helgu Prava.
Kata notaði tækifærið til að líta kringum sig. í
Singapore var mikið um líf og liti og andrúms-
loftið verkaði á hana. Götui'nar fullar af bílum,
uxavögnum og þríhjólum, sem notuð eru mikið
af þeim innfæddu.
Hið fræga Raffles Hótel var gamalt, stórt hús
með garði í kring og breiðri stétt fyrir framan,
þar sem gestirnir sátu í forsælu stórra pálma og
drukku ísvatn og kokkteila.
Bern komst aftur í gott skap, og eftir matinn
stakk hann upp á að þau skyldu leigja sitt þrá-
hjólið hvort og aka niður í Chinatown. Kata var
til í það.
En hvernig sem á því stóð urðu þríhjólin við-
skila í þrengslunum á götunni. Kata varð óróleg
þegar hún gat hvergi komið auga á Bern. Ein-
hvers konar skrúðganga kom á móti þeim, og
líklega hefur það verið til að rekast ekki á hana,
sem ekill Kötu sneri inn í hliðargötu. Allt í einu
kom Kata auga á Helgu Prava skammt fyrir
framan þau. Hún gekk mjög hratt. Kata var í
þann veginn að kalla til hennar, er hún hvarf
inn á eitt húsið.
Þetta var alls ekki þannig hverfi, að kven-
fólk væri þar eitt sér á ferð. Og hvar voru vin-
irnir, sem Helga hafði talað um? Og hvers kon-
ar erindi gat hún átt inn í þennan kumbalda?
Ætti hún að minnast á þetta við Bern? Hún
hugsaði málið um stund og komst að þeiwi nið-
urstöðu, að hún skyldi ekki gera það. Henni
fannst á sér, að Helga vildi ógjarna að hann —
eða nokkur annar — fengi að vita hvar hún
hefði verið. Hún reyndi að segja við sjálfa sig
að sér kæmi þetta í rauninni ekkert við. En
kom það ekki henni við? Sir Alexander hafði
beðið hana að hafa gát á Helgu Prava.
Framh.
FÁLKINN — VIKUBLAÐ MEÐ MYNDUM. —
Afgreiðsla: Vesturgötu 3, Reykjavík. Opin kl.
10—12 og lVz—6. Sími 12210.
Ritstjóri: Skúli Skúlason.
Félagsprentsmiðjan h.f.