Fálkinn - 24.06.1960, Qupperneq 7
FALKINN
7
þau lagt til húsgögnin í sjálf, og
þar er mikið af nýtízkulist, ekki sízt
frá Mexíkó. En þau lifa mjög ó-
brotnu lífi og berast lítið á. Aud-
rey hefur gaman af að hafa fallegt
postulín og kristall á borðum, en
maturinn er ákaflega blátt áfram.
Kvöldmatinn sér- hún um sjálf, og
lætur þá oft duga að hræra saman
harðsoðnum eggjum, rifnum osti og
fleskbitum og bera þetta fram með
salati. Og svo ávaxtamauk á eftir.
Þau synda bæði mikið oð leika
tennis, einkum Mel, sem svo að
segja á heima á tennisbrautinni.
En ekki verður það sagt um
Sophiu Loren, að hún komi til Búr-
genstock til þess að iðka írþóttir,
og þó kemur hún þangað þegar hún
getur. Hins vegar sést hún oft þjóta
í svarta Citroen-bílnum sínum áleið-
is til Zurich, sem er klukkutíma
leið undan. Það eru hinar stóru
verzlanir, sem freista hennar. Sop-
hia er vinsæl í Búrgenstock, hún
þykir viðfelldin og laus við príma-
donnu-tiktúrur.
Sá sem vakir yfir því, að allt
fræga fólkið fái að njóta lífsins í
friði fyrir ásælni forvitinna gesta,
er Fritz Frey, margfaldur milljóna-
mæringur og rafmagnsverkfræðing-
ur. Hann er líka vel að sér í hreyfl-
um, og gæti eflaust gert við allar
þær 450 hreyflategundir, sem að
staðaldri eru þarna, ef þörf gerðist.
Hann erfði Búrgenstock eftir föður
sinn fyrir nokkrum árum. Það var
hann sem sá um, að Mel og Aud-
rey gætu falið sig fyrir heimsblöð-
unum og gifzt í friði í Búrgenstock,
að viðstöddum aðeins nánustu vin-
um og einuvn ljósmyndara,sem Frey
hafði valið sjálfur.
Elzta gistihúsið, Grand, var byggt
1873, en þá var engin byggð í Búr-
genstock. Það varð brátt aðsetur
konungafólks, indverskra fursta og
auðmanna, sem létu á sér bera fyrir
aldamótin. Nokkrum árum síðar var
Park byggt — það var „aðeins“ 1.
flokks gistihús, en Grand og það
nýjasta, Palace, eru í lúxusflokki.
Eftir fyrri heimsstyrjöldina var
allt í kalda koli í Búrgenstock. Og
útlendir peningamenn voru í þann
veginn að kaupa gistihúsin og setja
þar upp spilavíti. En þá risu þjóð-
hollir Svisslendingar upp öndverðir.
Þeir þvertóku fyrir, að náttúru-
fegurðin í Sviss yrði saurguð með
spilavítum.
Og nú kom Frey-fjölskyldan til
sögunnar. Faðir núverandi eiganda
hafði byrjað með tvær hendur tóm-
ar, en varð áður en lauk einn mesti
listaverkasafnari í heimi. Hann
keypti eignirnar fyrir hálfa milljón
franka. Flestir heldu, að hann væri
orðinn vitlaus. En Frey gamli vissi
vel hvað hann var að gera. Hann
gerbreytti öllum gistihúsunum, setti
baðklefa við hvert herbergi, keypti
ekta Lúðvíks XV. húsgögn í allar
stofur og hengdi málverk eftir Rem-
brandt, Rubens, van Dyck og fleiri
á veggina, en keypti persneska og
Aubusson-dúka á gólfin. Dýrasta
gólfteppið er í litlum sal í Palace
og kostað 60 þúsund svissneska
franka. Það er rétt svo að maður
þori að stíga á það — nema á sokka-
leistunum.
Eftir þessa breytingu fór peninga-
fólkið að flykkjast að staðnum. í
Búrgenstock sátu þeir Lloyd George
og franski utanríkisráðherrann Bar-
thou og þinguðu um framtíð Evrópu
og gengu saman um hljóðar skógar-
götur. Þar sat Ferdinand Búlgara-
konungur og dreymdi um að að ná
í hið glataða ríki sitt og skrifaði
ritgerðir um fugla. Þar samdi Rach-
maninoff níundu symfóníuna sína.
Og hingað leitar fi'ægt fólk enn.
Chaplin kemur hingað með konu
sína og alla krakkana. Cronin sem-
1647. Vetur allur góður. Gott
veður og sólskin nýársdag. Vor í
harðara lagi. Suraar kalt og vot-
samt. Haust mjög hríðviðrasamt.
Heyjaðist mjög lítt, nýttist- illa. Kom
fjúk mikið Mikaelsmessu, gerði
hörkur og snjóa, gekk svo til jóla,
að jafnan varð harðara. Fiskur mik-
ill kringum allt ísland. Á Hvalfirði
höfðu skip nægðar fisk með flóði,
þar þurrt var um fjöruna, eins og
á Eyjafirði.
Deyði Vigfús Gíslason að Stór-
ólfshvoli, er átti Katrínu Erlends-
dóttur Ásmundssonar Þorleifssonar
lögmanns frá Skarði, vitur maður
og vel lærður, hið mesta mannval
og gagnsmaður þessu land við út-
lenda höfðingja, vel forsóktur í laga-
rétti. Hann hafði Árnessýslu og
hálfa Rangárvallasýslu móts við
Hákon bróður sinn.
Deyði Bergþór Sæmundsson, lög-
réttumaður fyrir norðan, vitur mað-
ur og vel að sér. Herra Þorlákur
lét reisa klukknaport að Hólum í
sáluhliði, og færa þangað klukkurn-
ar allar 4, með þeirri stóru klukku,
er niðri á jörðu staðið hafði, síðan
sú fyrrí kirkja féll: hún með stór-
um atburðum upp undin að ráðum
Danskra, er sögðu fyrir þessu verki.
Var portið gert með stórum bjálk-
um,. rambundið á allar síður, mjög
hátt: ei vita menn, að það hafi þar
fyrri verið, finnst ekki heldur í forn-
um annálum eður skrifum: getur
þó í sögu Gvendar biskups, að þeir
Kolbeinn ungi og menn hans hafi
skemmt sér í klukknahúsi, þá víg
var unnið þar í garðinum: hyggja
menn það hafi verið stöpullinn eða
forkirkjan, er flestir þykjast til vita
klukkurnar hafi verið í: greinir
einninn sú saga, að þá lík Guð-
mundar hafi var borið til grafar,
hafi öll kirkjan skjálfandi verið af
ofriði og hljóðum klukknanna, en
heilagleiki hans hafi valdið, að
kirkjan kunni það, að standast, hvar
af augljóst er, að þær hafa þá í
kirkjunni verið.
Það mál bar til í Húnavatnsþingi
(þar hafði þá sýsluráð Guðmundur
bóndi Hákonarson): maður nokkur
giptist þar í sýslu, að nafni Jón Þor-
steinsson: konan hét Herdís: þeirra
gipting gekk treglega fram af
mannsins hendi, varð þó fyrir at-
ur sínar frægu sögur hérna og
leikur golf þess á milli. Hingað kem-
ur Nehru hinn indverski og tínir
blóm, og hér er Adenauer.
Það er alveg nógu gott fyrir fólk,
þó vandfýsið sé, að búa í Park-
gistihúsinu. Þar er lægsta verð fyr-
ir herbergi og fæði 5 dollarar á
dag. En vilji maður hafa herbergi
fylgi manna, bjuggu svo saman í 3
ár og heldur stirðlega. Lýsti nefnd
kona á þeim tíma, fyrir ærlegum
kvenmönnum, Jón mann sinn
óhæfan óstyrkleika vegna til hjóna-
bandsins: voru þó saman eitt ár til
og fjórðung annars ársins: átti þá
barn dóttir þessarar Herdísar, er
Björg hét og kenndi Jóni, hvað hann
meðgekki, en vildi þó sverja fyrir
kona á þeim tíma, fyrir ærlegum
kvenmönnum, Jón mann sinn
veru. — Var þá sett þing á Sveins-
stöðum af Guðmundi (leizt þó mörg-
um þetta mál vandasamt og til
lengra reksturs horfa): þar útnefnd-
ur 12 manna dómur, meiri hluti lög-
réttumanna. Var þá Jóni dæmdur
tylftareiður. Sór hann þar á þing-
inu, að hann hefði ei holdlegan
verknað framið með Herdísi konu
sinni, sem hliðir milli karlmaniis
og kvenmanns. í sama máta sór
konan séttareið fyrir holdlegt sam-
ræði við Jón: sóru og 2 konur lýs-
ing Herdísar. Voru svo svarnir 20
eiðar á einum degi. Síðan Jón dæmd-
ur frá þessu máli upp á lífsstraffið.
Voru þeim dæmdar 9 merkur hverju
um sig að láta úti við kongdóminn,
en hvort vera skyldu fégjöld eður
líkamleg refsing, skyldi lögmaður
ráða: dróst það svo undan í 2 ár.
Kom þetta mál fyrir Jens Söfrens-
son: þótti honum ofmikið aðgert, og
hélt það skyldi ekki hér dæmast:
kom hann því fyrir kong og kemur
nú aptur með bréf hans þetta ár,
að þau skuli á lífinu straffast, en
dómurinn allur ónýttur: þau síðan
bæði líflátin á alþingi þetta ár, en
engin önnur meðkenning fékkst af
Jóni, áður hann dó.
•—• Var hálshöggvinn eptir 2 ára
fangelsi Carl kónungur Stuart á
Englandi, af sínu eigin ráði. Voru
það alls 74 persónur parlamentsins,
er yfir hann létu dauðadóm ganga:
síðan almennilega úthrópað, að
Enskir skyldi aldrei kong yfir sig
taka upp þaðan. Tók sá vondi skálk-
ur Kromwell að sér öll ráð og regi-
ment í landinu, uppbar alla kong-
lega rentu, tók svo undir sig allt
ríkið, en rak burt öll börn kon-
ungsins frá sér, og alla þá, er þeim
vildu veita. En skotar urðu fyrir
miklu þyngri ánauðum en áður
fyrri, og undu verra við.
með baði og svölum, er verðið tvö-
falt hærra. Á Grand og Palace kost-
ar veran rúma 20 dollara á dag.
En maður er alls ekki bundinn við
gistihúsið, sem maður býr í. Gestir
í ódýrustu herbergjunum á Park
geta drukkið síðdegisteið sitt eða
dansað á kvöldin í dýrari gestihús-
unum, innan um allt fræga fólkið.
Frey gestgjafi segir, að það sé ein
veik hlið á Búrgenstock: það kem-
ur of fátt af ungu fólki þangað.
Það stafar af verðlaginu. Hann vill
gjarnan ná í gesti eins og Karim
Aga Khan eða aðra heimsfræga
unglinga. En þeir vilja heldur vera
við Rivieruna, og þegar þeir koma
til Sviss, kjósa þeir fremur Gstaad.
Frey hefur látið gera ævintýralega
sundlaug til þess að laða unga fólk-
ið að. Hún kostaði um milljón sviss-
neskra franka, og er upphituð og
með alls konar þægindum. Þar get-
ur fólkið dansað á laugarbakkanum
og látið færa sér mat og etið hann
liggjandi í hægindastólum. Og í hit-
unarhúsi laugarinnar er vínstofa
og gegnum gluggana á henni er
hægt að horfa gegnum vatnið í laug-
inni og fylgjast með sundfólkinu.
Og nýlega hefur Frey látið gera
sérstakt hús handa unga fólkinu til
að dansa í, hvenær sólarhringsins
sem það vill. Þá getur æskan
skemmt sér án þess að trufla eldra
fólkið, sem helzt vill hafa ró.
Starfsliðið í gistihúsunum er alls
um 350 manns. En gistihúsin starfa
aðeins hálft árið, maí til október.
Svo að starfsfólkið verður að leita
sér atvinnu annars starð yfir vet-
urinn, en það reynist ekki erfitt,
því að það eru góð meðmæli, að
hafa starfað hjá Frey.
Starfsfólkið verður að muna nöfn
gestanna, sem það þjónar. Og í
hverju gistihúsinu um sig eru sér-
stakir „húsbændur“, sem bjóða gest-
ina velkomna, spyrja þá dags dag-
lega, hvernig þeim líði og hvort
nokkuð sé hægt að gera til þess að
láta þeim líða betur. Þetta þykir
mikils virði, ekki sízt gestunum,
sem vanir eru „sjálfvirku“ gistihús-
unum, sem nú eru að verða algeng
víða um Evrópu.
Gisihúsin hafa skemmtibát, sem
tekur 60 farþega, og fer með gesti
um Vierwaldstátervatn, og fleiri
tækifæri eru þarna til þess að skoða
nágrennið.
Þetta er Jacques Piccard, hinn
ungi vísindamaður, sem á dög-
unum setti heimsmet í köfun,
ásamt amerískum sjóliðsforingja,
Don Walsh að nafni. Þeir kom-
ust niður í 11521 m dýpi1 í Kyrra-
hafinu.
Seiluannáll