Fálkinn - 11.01.1961, Blaðsíða 18
Hér birtist BINGÓ í fyrsta sínn í
íslenzku blaði. Bingóspjald fylgir
þessu blaði og í næstu átta blöðum
verða birtar tölur, sem þátttalkendur
eiga að bera saman við tölurnar á
spjaldinu og krossa við jiær sem eru
eins. Eigendur allra þeirra spjalda sem
ganga upp, fá verðlaun. Og þá koma
hér fyrstu tölurnar:
Sigurvegarinn í Bingó-
spili FÁLKANS hlýtur
flugfar til Hamborgar
með Föxum Flugfélags
íslands
FÁLKINN hleypir nú af stokkunum
nýstárlegri samkeppni. Hann býður les-
endum sínum að taka þátt í fyrsta
BLAÐABINGÓINU, sem stofnað er til
hér á landi. Leikir af þessu tagi hafa
rutt sér til rúms á Norðurlöndum und-
anfarin ár og notið mikilla vinsælda
og vonandi verður hið sama að segja
hér.
“K
Bingóið fer fram á þennan hátt, og
eru allir væntanlegir þátttakendur beðn-
ir að taka vel eftir:
* 1
Þessu tölublaði Fálkans fylgir Bingó-
spjald og á því eru 15 mismunandi
tölur. í næstu átta blöðum verða birt-
ar tíu tölur hverju sinni og þátttak-
endur eiga að bera þær rækilega sam-
an við tölurnar á spjaldi sínu og krossa
yfir þær sem eru eins.
Þegar keppninni lýkur, hljóta eig-
endur þeirra spjalda, sem hafa gengið í
upp, (þ. e. a. s. allar tölurnar á þeim
hafa verið birtar) verðlaun, og einn
þeirra flugfar til Hamborgar fyrir tvo
fram, og til baka, með flugvélum Flug-
félags íslands. Dregið verður um hver
á að hljóta þessi glæsilegu verðlaun,
en hinir hljóta bókarverðlaun.
Á öðrum stað hér í opnunni er sagt
lítillega frá Hamborg og ýmsu því
markverðasta, sem þar er að sjá. Það
þarf varla að taka það fram, að óvíða
er betra að skemmta sér en einmitt í
Hamborg.
Bingóspilið hefst frá og með þessu
blaði, og fyrstu tíu tölurnar eru birtar
í rammanum hér að neðan. Hvernig
væri nú að freista gæfunnar og taka
þátt í spennandi og skemmtilegum leik?
Spjaldið er fest hér á opnuna og fyrstu
tölurnar hér að neðan. Gerið svo vel
og góða skemmtun!