Fálkinn - 11.01.1961, Blaðsíða 21
Surtshellir -
Framh. af síðu 11.
því svæði riðu Hrútfirðingarnir fram á
útilegufj ölskylduna.
Það lætur að líkum, að þarna var um
gremjufulla og hefnigjarna bændur að
ræða, sem um sárt áttu að binda; við
munum engum getum leiða að atferli
þeirra við handtökuna eða meðferð fólks-
ins á leiðinni norður. En ófá dæmi eiga
íslendingar um misþyrmingar á bág-
stöddum bandíngjum.
★
Þá hafði Strandasýslu á móti Vil-
hjálmi Arnfinnssyni (Galdra-Vilka)
Magnús Jónsson á Reykhólum, Magnús-
sonar, Arasonar Ögri; hann hafði og
tekið við lögmannsembætti af Þorleifi
Kortssyni 1679.
Hrútfirðingar fluttu fangana til Magn-
úsar lögmanns sem hraðast máttu þeir,
og tók hann þá í sínar vörzlur.
Hann þingaði síðan í máli þeirra, og
féll dómurinn á Berufjarðarþingi 14.
desember um veturinn. Loftur var
dæmdur til dauða og skyldi hálshöggv-
ast, og annarri konunni var dæmt húð-
lát. Ekki er að sinni ljóst hvor þeirra
það var, en beinast liggur við að ætla,
að það hafi verið hjákona Lofts.
Síðan var dómum þessum fullnægt.
Hver afdrif barnanna urðu mun vera
með öllu hulið, eins og algengast er um
börn afbrotafólks á þessum tímum. Eitt
áttu slík börn yfirleitt víst: mikinn
hrakning, hörku og grimmd, eins og
raunar allir einstæðingar, sem í þá daga
var vísað til vandalausra eða út á gadd-
inn.
Og hér lýkur sögunni af Lofti Sig-
urðssyni og fólki hans.
Tækni -
Frh. af bls. 17
númer viðskiptavinarins og upphæðin
er skrifað á ávísunina með bleki, sem
inniheldur segulmagnað járnoxýd. Inn-
lagðar ávísanir fara í þessa sjálfvirku
flokkunarvél, þar sem sérstakur segul-
magnaður „lestrarhaus“ les upplýsing-
arnar af ávísuninni og stjórnar því næst
flokkun þeirra. Fyrir tilverknað elek-
trónískra efna fara upplýsingarnar einn-
ig til reikningsvélar, sem gerir upp
reikning hvers einstaks viðskiptavinar.
Vegna gífurlegs kostnaðar hafa að-
eins stærstu bankarnir haft ráð á að
fá sér vélar af þessu tagi, svo.að enn
eru flestar ávísanir meðhöndlaðar með
gamla laginu. En reynsla stóru bank-
anna í Bandaríkjunum hefur sannað,
að hér er á ferðinni vél, sem á fram-
tíðina fyrir sér og sennilega líður ekki
á löngu þar til allar ávísanir verða
afgreiddar í sjálfvirkum vélum.
*
STJÖRNUSPÁIN ( | m
Hrútsmerkið. ipiÍÍÍ
Þeir, sem fæddir eru undir hrútsmerkinu, munu finna til 4 K 21. MARZ — 20. APRÍL
einmanakenndar í þessari viku, sérstaklega kvenfólk. Þetta | táknar þó engan veginn, aö öll sund séu lokuð og allir vinir |
hafi brugðizt, heldur er það viðkomandi sjálfum að kenna, | að örlítið er kalt í kringum hann þessa stundina. Nautsmerkið. Það gerist ýmislegt í þessari viku, og nokkrar fréttir
munu ef til vill skapa yður talsverðar áhyggjur. Það kem- ur þó í ljós síðar, að áhyggjurnar voru ástæðulausar. Á 21. APRÍL —
sviði ástamálanna einkennist vikan af óróleika og ótta við að hafa valið rangt. Tvíburamerkið. Þér hafið átt óvenjulega annríkt að undanförnu, og það é 21. MAÍ
hefur gert. það að verkum, að yður finnst sem þér valdið ekki þeim verkefnum, sem þér eigið að inna af hendi, og 22. MAÍ —
séuð ekki starfi yðar vaxinn. Þetta er misskilningur, og fyrr eða síðar fáið þér viðurkenningu fyrir frábært starf. u:”jl 21. JÚNÍ
Krabbamerkið.
Þetta verður aldeilis sérlega góð vika, og strax á fyrstu ■ *
f dögum hennar berast góðar og gleðilegar fréttir. Kaup- sýslumenn uppgötva nýjar og fengsælar leiðir í þessari 22. JÚNÍ —
viku. Yikan verður einnig góð fyrir ungt fólk, ástarævintýr- in ganga öll að óskum. ! Ljónsmerkið. Þér eruð dálítið órólegur og hræddur við að hafa gert vit- 22. JÚLÍ
leysu, en svo er ekki, heldur eiga hinir erfiðu tímar nú á dögum sökina. Reynið að hressa yður upp og vera í góðu 23. JÚLÍ —
skapi. Þá getið þér svipt öllum óveðursskýjum til hliðar og þá fer yður strax að ganga betur. J ómfrúarmerkið. Þet.ta verður góð vika með óvæntum tíðindum — vika . Q 23. ÁGÚST
mikilla og indælla rómantískra ævintýra. Á vinnustað veró- mr 24. ÁGÚST— 23. SEPT.
!; ið þér fyrir aðkasti, en berst á elleftu stundu hjálp frá óvæntum aðila. Hvað fjármálin snertir, ættuð þér að at- huga yðar gang rækilega. Pyngjan þolir ekki endalausa eyðslu! V o garskálarmerkið. Þetta verður heldur leiðinleg vika og satt að segja gengur I j
% 'j
fiest á afturfótunum hjá yður. Þér standið til að mynda ráðþrota frammi fyrir vandamáli, sem ætti að vera auðvelt i i 24. SEPT. —
að leysa. Reynið að hvíla yður og róa taugarnar. Leitið hugg- unar hjá makanum! ; SporSdrekamerkiS. Skyndilega verðið þér einhvern veginn óöruggur með sjálf- ; á 23. OKT.
an yður og það er eins og sjálfstraust. yðar sé rokið út í veður og vind. Takið ekki lítilvæga erfiðleika alvarlega. Sá 24. OKT. —
sem býst við að illa fari, verður sjaldan fyrir vonbrigðum. Reynið að eygja nýjar leiðir og nýja von. B o gmannsmerkið. Þér hafið verið of bjartsýnn og andvaralaus að undan- 22. NÓV.
förnu, bæði í hugsun og athöfn. Þér verðið að bregða yður I niður á jörðina aftur, svo að þér verðið ekki til athlægis. WT 23. NÓV. —
f 1
Þér hafið ástæðu til að vera ánægður með margt, en ekki ^ I 21. DES.
allt. Steingeitarmerkiö. .
Þér hafið eytt of miklum tíma í að ergja yður út af manneskju, sem þér þurfið að umgangast daglega á vinnu- stað. Viðkomandi er í reyndinni alls ekki eins erfiður og þér haldið. Munið, að ekki má dæma fólk eftir ytri fram- j
22. DES. —
komu eingöngu. Eitt vingjarnlegt orð getur gert allt. gott. VatnsberamerkiS. Það gerist sitthvað í þessari viku, sem er ekki alveg eins og þér ætluðuð, en þér verðið að gjöra svo vel og sætta 20. JAN.
yður við það, sem orðið er. Reynið að vera elskulegri í dag- legri framkomu, sérstaklega á heimilinu. Ekkert er hvimleið- ,L 21. JAN. —
,ra en fólk, sem ber áhyggjurnar utan á sér á hverjum degi og dag eftir dag. Fiskamerkiö. Vikan verður góð og fleytifull af nýjum verkefnum og óvæntum atburðum. Smá óveðursský á himni hverfa jafn- 18. FEBR. 19. FEBR. —
fljótt og þau komu. Þér kynnist nýju fólki í vikunni, fólki,
sem yður hefur lengi langað til að kynnast og hafið sér- 20. MARZ
staklega gaman af að þekkja. Á sviði ástamálanna verður
skyndileg freisting á vegi yðar.