Fálkinn - 10.05.1961, Page 19
FÁLKINN
spjallar við
ungt par
í prófiestri, -
hún tes
undir
stúdentspróf,
en hann
undir
fyrstu
próf í Eæknis-
fræði
Ég á að fara í próf á laugardaginn í
vefjafræði og síðan er efnafræðiprófið
23. maí.
— Hvernig skiptist námstíminn?
— Fýrsti hluti er þrjú og hálft ár. Það
er hámarkstími. Miðhlutinn er tvö ár og
síðari hluti tvö og hálft ár.
— Þú ert sonur læknis og veizt hvaða
þrældóm þú átt fyrir höndum — hvern-
ig stóð á því að þú fórst í læknisfræði?
— Ég vona að það verði eitthvað
betra þegar ég útskrifast. Ég fór í lækn-
isfræði því mér fannst skortur á öðru
betra, þetta er ein af fáum góðum leið-
um til að byggja sér góða framtíð.
— Fóru margir bekkjarbræður þínir
í læknisfræðina?
— Átta. Við erum 22 sem göngum
undir próf. 14—16 ná prófinu og svo eru
það 10—12 sem komast í gegnum 1.
hlutann. Það er búið að þyngja upphafs-
prófið, þar sem vefjafræði var bætt við
efnafræðina.
— Hvenær farið þið svo fyrst á spít-
ala?
— í miðhluta, á fjórða ári. Þá byrja
krufningar og annað.
— Hvað heldurðu að háskólanámið
kosti?
— Það veit ég ekki. Hann Arinbjörn
læknir var að skrifa um þetta í Morgun-
blaðið og mig minnir að hann segði að
1956 hefði læknisnámið kostað 612 þús-
und! Bækurnar einar kosta milli 12—15
þúsund krónur.
— Menn mega hafa sig alla við að
lesa?
— Þegar lengra er komið, þá tekur
maður daginn sem almennan vinnudag.
Þeir segja, að sumir lesi allt upp í 18
tíma á sólarhring, en það eru þeir sem
leggja mest á sig. Annars eru dæmi til
að menn hafi orðið vitlausir á þessu, og
svo er mörgum hætt, þegar þeir byrja
að lesa meinafræði. Þá halda menn að
þeir séu með alla þá kvilla sem þeir eru
að lesa um! Nokkrir hafa orðið að hætta
af þeim sökum. Annars telst ég ekki til
þeirra manna í háskólanum, enn sem
komið er.
— Finnst þér ekki langt í lokapróf?
— Jú, það er vissulega langt í land,
en ég hugsa samt ekkert um það. Ef
maður fellur, þá er maður búinn —- það
gerir hámarkstíminn á milli prófa.
— Ertu búinn að ákveða hvaða sér-
grein þú tekur?
— Nei. ég er ekki búinn að ákveða
hvort ég tek rómantískt fag eða eitthvað
annað.
— Rómantískt fag?
— Já, það eru skurðlækningar sem
eru kallaðar því nafni.
— Hvernig hagarðu próflestrinum?
— Ég byrja að lesa þegar ég vakna og
hætti þegar ég fer að sofa. Ég les aðeins
þegar ég er vel upplagður og les þá
stundum langt fram á nótt. Það er
hættulegt að lesa illa fyrirkallaður —
maður heldur að maður hafi lært eitt-
hvað og kann svo ekkert þegar í próf
kemur.
☆
Við vonum að þeim Ragnheiði og
Gunnari gangi allt að óskum svo og öðr-
um þeim, sem eru að brjótast áfram til
meiri mennta.
Það kostar ekkert smáræði að læra lækn-
isfræði. 1956 var talið að það kostaði
612 þús. kr. Bækurnar kosta uni 15 þús. kr.
FALKINN 19