Fálkinn - 10.05.1961, Side 25
maður ryksuga þær, á að nota bursta-
munnstykkið, ekki það úr málmi, og
í stungunum notum við bara slönguna
eina saman.
' ☆
PRÓFESSOR NOKKUR hélt nýlega
fyrirlestur í kvenfélagi fyrir um 800
konur. í lok fyrirlestursins lagði hann
fyrir áheyrendur sína þessar fjórar
spurningar, sem allar voru látnar svara:
— Setjum nú svo, að þér liðuð skip-
brot og kæmust lífs af upp á eyðieyju.
Hvaða manneskju munduð þér kjósa
að hafa með yður, hvaða snyrtigagn,
hvaða eldhúsgagn og hvaða bók?
Allar ógiftu stúlkurnar kusu að hafa
hjá sér unnustann sinn, en engin af
giftu konunum kusu manninn sinn. Sex
hundruð kusu sápu. Flestar kusu ann-
aðhvort heimspekilega bók eða bækur
trúarlegs efnis.
Flestir kannast við sjálflímandi frauð-
gúmmíþéttilista, sem notaðir eru til að
þétta hurðir og glugga. En þeir eru
Súkkulaðibúðing-
ur í kramarhúsum
í kramarhúsin notum við: 3 egg, 150
g sykur, 100 g hveiti, 2 msk. vatn. Þeyt-
ið eggin létt og ljós með sykrinum,
blandið sáldruðu hveitinu varlega sam-
an við og að lokum vatninu. Deigið sett
með teskeið á smurða plötu, flatt fínt
út með skeiðarbaki eða pönnukökuhníf.
Bakaðar ljósgular við góðan hita.
(Mynd 1)
Losið kökurnar af með snöggum hand-
tökum, vefjið þeim upp og stingið þeim
í flöskustút. Ef þær harðna, áður en
tími vinnst til að vefja þeim upp, er
reynandi að stinga þeim í ofninn á ný.
(Mynd 2)
í súkkulaðibúðinginn höfum við: 50
g súkkulaði, 2 eggjarauður, 1 msk.
kakaó, 4 bl. matarlím, 1. þeyttur
rjómi. Súkkulaðið brætt í 2 msk. af
vatni, eggjarauðurnar þeyttar með sykr-
inum, út í þær hrært kakaó, bræddu
matarlíminu og súkkulaðinu. Takið dá-
lítið frá af rjómanum til að skreyta
með, blandið afganginum og 1 stífþeyttri
eggjahvítu í búðinginn. Þegar búðing-
urinn fer að stífna, er honum spraut-
að í kramarhúsin, skreytt með þeytt-
um rjóma (Mynd 3).
Súkkulaðibúðingurinn er í nál. 16
kramarhús, en við fáum 30—35 kram-
arhús úr uppskriftinni. Afganginn er
auðvelt að geyma í velluktu íláti.
gagnlegir til fleiri hluta. Þó er vert
að minnast þess, að límið, sem á þeim
er, er ætlað fyrir tré. Getur í sumum
Súkkulaðibúðingur
í kramarhúsum.
tilfellum verið þörf á því að nota annað
lím, sem betur hæfir því efni, sem ver-
ið er með í hverju tilfelli.
1. Þræðið þá til hlífðar við sokkana,
á nylonmillipils, sem eru með hörð-
um blúndum.
2. Sett á hurðina á klæðaskápnum,
svo að mölur komist alls ekki inn.
3. Ágætt á stútnum á tekatlinum, svo
dropar fari ekki niður.
4. Líma þá neðan á hrjúfa öskubakka
og myndaramma, svo að þeir rispi
ekki borðplöturnar.
5. Líma 2—3 rennur innan í lokið á
saumakassanum; kemur að gagni
þar sem nálapúði.
6. Líma þá á hornin á myndarömm-
unum, svo að þeir hangi rétt á
veggjunum.
7. Líma þá undir hornin á smátepp-
um og renningum, svo að þau stöðv-
ist á gólfinu.
8. Hlífa málningunni, ef þeir eru
límdir kringum hausinn á gólf-
skrúbbunni og munnstykkjunum af
ryksugunni.
9. Límið þá kringum stútinn á sósu-
litsglasinu, lýsinu og matarolíunni.