Fálkinn - 10.05.1961, Side 31
Hádegisverðurinn -
Frh. af bls. 11
„Já, einmitt!“
Þá kom hræðilegt atvik fyrir. Meðan
við biðum eftir kaffinu, kom yfirþjónn-
inn, með sitt smeðjubros og ekkert ann-
að en falsið í framan, til okkar með
stóra körfu fulla af feikna stórum ferskj-
um. Liturinn á þeim var eins og þegar
saklaus stúlka roðnar, litbrigði þeirra
minnti á íslenzkt landslag. En ferskju-
uppskeran gat þó ekki staðið yfir núna?
Guð mátti vita hvað þær kostuðu. Ég
vissi það líka, — svolítið seinna, því
að gestur minn, sem hélt áfram sam-
ræðunum, tók eina ferskjuna, og virtist
gera það ósjálfrátt. „Sjáið þér nú til,
þér hafið raðað í yður ógrynni af kjöti,
— ræfils litla kótilettan mín, — og þér
getið ekki borðað meira. En ég hef bara
fengið mér svolítið snarl og ég nýt
þess virkilega að fá mér eina.“
Reikningurinn kom, og þegar ég
greiddi hann, sá ég að ég átti aðeins
eftir óveru eina í þjórfé. Hún horfði
sem snöggvast á þrjá frankana, sem ég
skildi eftir handa þjóninum, og ég vissi
að henni fannst ég vera smásálarlegur.
En þegar ég gekk út úr matsöluhúsinu,
þá átti ég ekki grænan eyri í vasan-
um til að lifa fyrir það sem eftir var
mánaðarins.
„Farið að ráðum mínum,“ sagði hún
um leið og við tókumst í hendur að
skilnaði „og borðið aldrei nema einn
rétt um hádegið.“
„Ég skal gera enn betur,“ svaraði
ég ónotalega. „Ég skal ekkert borða 1
kvöld.“
„Gárungi!“ kallaði hún glaðlega um
leið og hún hoppaði inn í leigubíl. „Þér
eruð meiri gárunginn!“
En ég hef fengið hefnd að lokum.
Ég held, að ég sé ekki hefnigjarn mað-
ur, en þegar hinir ódauðlegu guðir taka
málið í sínar hendur, þá er það fyrir-
gefanlegt, að maður virði árangurinn
fyrir sér með velþóknun. í dag er hún
130 kíló — 260 pimd!
Skálkaskjól -
Framh. af bls. 16.
Knerri í Breiðuvík hjá Latínu-Bjarna
djöflabana. Var hann þá enn fluttur
vestur að Haga og hafður í járnum,
en þó fór svo, að hann slapp og náðist
aldrei síðan. Hann var sagður smiður
góður og atgervismaður til líkamlegra
burða, en bráður í skaplyndi og ósvíf-
inn. — Tugum ára eftir hvarf hans
fannst bréf í fórum Davíðs sýslumanns
látins. Reyndist það vera frá Jóni morð-
íngja, skrifað í Hollandi. Þakkaði hann
þar í sýslumanni fyrir hjálpina, og þótti
sýnt, að hann hefði aðstoðað Jón við
strokið forðum og komið honum í duggu.
(Eftir ýmsum heimildum, t. d.
Huld I., Sagnaþáttum Þjóðólfs,
Þjóðsögum Ólafs Davíðssonar,
Vestfirzkum sögnum II., Söguþátt-
um Gísla Konráðssonar (1915—
18), Árbókum Espólíns o. fl.).
fatrc Akriýar
FRÁ SJÓNARHÓLI STJÖRNUSPEKINNAR
Kæri Astró!
Mig langar að vita ráðlegg-
ingar þínar, frá „Sjónarhóli
stjörnuspekinnar“. Ég er
fædd á Langanesströnd 22.
ágúst 1940 kl. 5 að morgni.
Ég fór snemma að vinna og
giftist ung, á eitt barn og
er skilin. Finnst gaman að
skemmta mér. Hef verið
frekar heilsulítil og lifi ró-
legu lífi.
Með fýrirfram þökk
Bíbí.
Svar til Bíbíar.
Ég þakka þér fyrir bréf
þitt, Bíbí, og vildi jafnframt
beina því til þeirra, sem í
framtíðinni skrifa þættinum,
að þegar gefin er upp fæð-
ingarstund má helzt ekki
skakka meira en tíu mínút-
um til eða frá. Ef þessu er
fylgt, þá auðveldar það mér
persónulega mjög lesninguna
á kortinu og gefur einnig
þeim, sem langar að leita sér
upplýsinga hjá þættinum,
fyllri og greinarbetri upplýs-
ingar. Mörg bréf, sem til
þáttarins hafa borizt, eru
ekki svarahæf sakir óná-
kvæms tíma, og þar sem
venjulega er skrifað undir
dulnefni, er ekki mögulegt
að hafa samband við þetta
fólk, til að fá nákvæmari
upplýsingar. Að vísu er þess-
um bréfum haldið til haga,
en ekkert er hægt að gera
fyrir bréfritarana, því mið-
ur, meðan fyllri upplýsingar
liggja ekki fyrir hendi. Það
sem er frumskilyrði fyrir
stjörnukortslesningu, er fæð-
ingardagur. og ár, og fæðing-
arstund dagsins og fæðingar-
staður.
í fæðingarkorti þínu, Bíbí,
eru mjög sterk áhrif frá
Ljónsmerkinu, en þú ert
fædd í síðasta gráðutug þess
með sólina 28°55' og hið rís-
andi merki 22° í sama merki.
Máninn eða tákn hugsana
þinna eru í Hrútsmerki 15°.
Sólmerkið: Þú ert því
undir áhrifum stjörnumerk-
isins Hrafnsins, sem er tákn
þriðja tugs Ljónsmerkisins.
í fornri goðafræði er þetta
sagt um þá, sem fæddir eru
undir þessum áhrifum. í
þessum síðasta hluta Ljóns-
merkisins höfum við til-
hneigingu til að ráða öðrum
með tilstyrk undiráhrifa frá
Hrútsmerkinu. Er fólk fætt
hér einnig hæft til slíkra
hluta. Þarafleiðandi eru þeir,
sem fæddir eru undir þess-
um hluta himinsins, ákveðn-
ir í því að komast áfram í
lífinu, þrátt fyrir allar
hindranir. Og þegar þessi til-
hneiging er sterk, fórna þeir
félögum sínum, fjölskyldu og
mökum til að auka veldi sitt.
En þegar hugsjónir þeirra
eru algjörlega í þágu vel-
ferðar samfélagsins í stað-
inn fyrir eigin hagsmuni,
verða þeir gífurleg lyfti-
stöng fyrir samborgana sak-
ir meðfæddra hæfileika
þeirra til að meðhöndla aðra
og nota þá í þágu framfar-
anna.
Tunglmerkið: Máninn er
staddur í Hrútsmerkinu og
er því um svipuð áhrif að
ræða eins og frá Sólmerk-
inu.
Hið rísandi merki er einn-
ig undir sömu áhrifum eins
og Sólmerkið, þannig, að þú
býrð yfir sérlegum metnaði
til að leiða og stjórna. Þann-
ig sjáum við af þessum þrem
höfuðþáttum, sem móta þig
aðallega, að þú munt búa
yfir sérstökum viljastyrk,
þannig, að frá upphafi var
sýnt, að sambúð þín og karl-
manns hlaut að verða storma-
söm, ef einhver snefill af
manndómi var fyrir hendi
í manninum, þannig að heift-
arlegir árekstrar voru óhjá-
kvæmilegir. Það blessast oft
að giftast eldri manni, en
það virðist ekki hafa gengið
í þínu tilfelli, þar sem skap-
lyndi ykkar féll ekki saman.
Ég álít að í því, sem sagt er
um sólmerki þitt, felist einn-
ig lausn á vansælu þinni og
óánægju, en hún er í því
fólgin, að þú beinir þínum
mikla kærleika og metnaði
til hagsbóta fyrir aðra, en
ekki sjálfa þig. Þannig ger-
um við okkur hamingjusöm,
sérstaklega þegar við erum
fædd undir merkjum sem
þessum. Venus í Krabba-
merkinu gæti bent til þess,
að ástarinnar væri að leita
meðal fjölskylduvina þinna.
Þú hefðir mjög gott af löng-
um ferðalögum. Pláneturnar
við hádegislínuna benda til
þess, að þú munir ná tals-
verðum frama í lífinu.
FÁLKINN
31