Fálkinn - 09.08.1961, Blaðsíða 33
hans. Þúsund smáatriði. Mamma, Lilian
— hver myndin rak aðra.
Nú voru þær báðar horfnar — hjóna-
skilnaðarlögfræðingurinn hafði sjálfur
misst konuna sína. — En hvað með hann
sjálfan?
Hann horfði upp með húsgöflunum
upp í grábláa himinröndina. Nokkrar
stjörnur blikuðu dauft.
Já, stjörnurnar. . . .
Hann fékk munnherpur. Nú mundi
hann glöggt eitt kvöld fyrir löngu.
Hann sá móður sína sitja við að bæta
buxur, og hann mundi að hann hafði
spurt hana:
„Mamma, er skelfing langt upp í
stjörnurnar?“
„Það er skelfing langt, drengurinn
minn.“
„Getum við aldrei komizt þangað?“
„Við reynum öll að komast þangað
— hvert með sínu móti. En oftast verð-
um við fyrir vonbrigðum.“ Og loks
hafði hún sagt: „Það er um að gera að
halda sinni leið, sem manni er ætlað.
Þá verðurðu hamingjusamur og kemst
upp í stjörnurnar.“
Hafði móðir han,s verið hamingjusöm
á sinni þyrnóttu leið? Egill hélt það —
hann var viss um það. Og í allri þján-
ingunni fann hann gleðistraum fara um
sig allan.
Hann fann með óbifanlegri vissu, að
hann hafði ekki haldið sína leið. —
Kannske var það þess vegna sem hann
hafði ekkert að gefa Lilian, ekki neitt
sannfærandi, verðmætt — sem kom frá
honum sjálfum.
En var það ekki hún, sem hafði ráð-
ið leiðinni, sem hann fór? Jú, hann
hafði verið of sveigjanlegur þá . . .
En því varð ekki breytt, sem orðið
var. Nei og þó hafði eitthvað merki-
legt gerzt einmitt núna. Mitt í sorginni
hafði hann fundið eitthvað nýtt að lifa
fyrir. Á morgun ætlaði hann að byrja
á ný leiðina, sem hann hafði villzt út
af. . . .
— Skref hans urðu hraðari og fast-
ari er hann gekk heim til sín, þetta
heiðskíra haustkvöld....
Eitthvað annað...
Framh. af bls. 13.
er á leiðinni til Reykjavikur. Leikritið
var fyrst sýnt í Borgarfirði en síðasta
sýningin í Mánagai’ði í Austur-Skafta-
fellssýslu. Leikritið var sýnt 39 sinnum
á 38 dögum og er þetta lengsta leikför
Þjóðleikhússins um langt skeið. Sem
dæmi um aðsóknina má nefna, að á
Húsavík var ákveðin ein sýning. Sam-
komuhúsið þar rúmar aðeins 180 í sæti,
en 300 miðar seldust á hálftíma og varð
því að sýna leikinn tvisvar á sama
kvöldinu. Hið sama gerðist á Ólafs-
firði.
STJÖRNUSPÁIN
Hrútsmerkið:
Stjörnurnar segja, að dálítið atvik, sem hendir yður í
þessari viku, muni varpa ljósi á nokkuð, sem yður hefur hinp:-
að til verið dulið. Þér skuluð ekki taka ákvarðanir upp á
eigin spítur, það gæti orðið yður dýrt spaug. Iíins vegar skul-
uð þér leggja rækt við vinnu yðar.
Nautsmerkið:
Þér hafið verið hvattir til þess að taka að yður verk, sem
þér sjálfir eruð ekkert viss með að geta leyst á viðunandi
hát.t. Þér ættuð samt að taka þetta að yður, því að hrifni
yðar og áhugi hjálpar yður til þess að leysa verk þetta sóma-
samlega. Yfirleitt er þessi vika góð til hvers konar fram-
kvæmda.
Tvíburamerkið:
Þér hafið næstum náð því takmarki, sem þér settuð yður
fyrir langa löngu. En megið ekki gleyma, að síðasti spölurinn
er jafnan spordrýgstur og mun þess vegna mikils verða af
yður krafizt. Það getur orðið alvara úr ástarævintýri því, sem
þér lentuð í um daginn.
Krabbamerkið:
Vikan er full af unaðslegri rómantík og smá ástarævintýr-
um, sem ekkert verður þó úr, samt sem áður munuð þér
kynnast. nýju og skemmtilegu fólki og munu þau kynni vara
lengi. Þér skuluð sýna gömlum vini, sem er í hinum mestu
vandræðum, hjálpsemi og alúð, það borgar sig.
Ljónsmerkið:
Þér ættuð að skjóta öllum stórákvörðunum á frest og sjá
hverju fram vindur um skeið. Aftur á móti skuluð þér nota
vikuna til þess að framkvæma þá hluti, sem þér hafið látið
sitja á hakanum. Ferðalagið, sem þér ætíið í, mun verða mjög
ánægjulegt. Happatala yðar er 7.
Jómf rúarmerkið:
Framkvæmdir þær, sem þér fyrrum höfðuð ekki manndóm
til að vinna, munuð þér koma í verk í vikunni. Stjörnurnar
segja, að þér munuð vinna vel að þessum störfum og þér mun-
uð uppskera eins og til var sáð. Þér ættuð að vera varkár með
peninga þessa dagana, því sú stund mun upp renna, að þér
hafið not fyrir þá.
Vogarslcálamerkið:
Þessi vika er fleytifull af gleði og allar áætlanir yðar munu
standast prýðilega. Samt skuluð þér ekki gleyma nákomnum
ættingjum í allri þessari gleði. Þér skuluð einnig reyna að
vera svolítið gagnrýninn á sjálfan yður, það mun koma yður
að miklu gagni í framtíðinni.
Sporðdrekamerkið:
Ástamálin munu leika í lyndi í þessari viku. Þér hugsiö oft
um ákveðna persónu, sem þér eruð svo að segja hættir að
umgangast. Þér skuluð rifja upp gömul kynni við hana. Þér
ættuð ekki að stara í blindni á eigin sjónarmið, heldur taka
svolítið tillit t.il annarra.
Bogrnannsmerkið:
Ef þér beitið dálítilli kænsku og notið diplómatshæfileika
yðar til hins ýtrasta, ætti framtíðin að bíða yðar björt og
fögur. Loforð, sem þér hafið nýlega gefið, mun óneitanlega
hafa nokkra erfiðleika í för með sér, en þér skuluð samt ekki
brjóta þau. Laugardagur er einkar ánægjulegur.
Steingeitarmerkið:
Þér ættuð að gæta að því, að ekki er nóg að vera uppfullir
af góðum áformum, ef þér framkvæmið þau aldrei. Fjárhags-
lega verður þessi vika góð og þér náið settu marki í þeim
efnum. Þér getið átt það á hættu að mæta persónu nokk-
urri, sem ætlar sér aðeins að draga dár að yður.
Vatnsberamerkið:
Ef þér sýnið dugnað og þolinmæði í starfi, bíða yðar miklir
framtíðarmöguleikar. Margt þeirra manna, sem fæddir eru
undir þessu merki, munu finna, að ennþá leynist eldur í ösk-
unni og munu þá jafnvel fornar ástir blossa upp að nýju.
Bréf, sem þér skrifið í vikunni, munu falla í góðan jarðveg.
Fiskmerkið:
Látið af þeirri t.rú, að það séuð þér einn, sem eigið í erfið-
leikum. Takið heldur hlutunum af gamansemi þeirri, sem yður
er eiginleg. Þér munuð lenda í mörgum skemmtilegum sam-
kvæmum í þessari viku og þér munuð kynnast ágætis fólki,
sem vill yður vel.
21. MARZ -
20. APRlL
21. APRlL -
21. MAl
22. MAl -
21. ÍÚNl
22. fÚNl -
22. rún
23. IÚTJ —
23. AGÚST
24. AGÚSl -
23. SEPT.
24. SEPT. -
23. OKT.
24. OKT. -
22. NOV.
23. NÖV. -
21. DES.
22. DES. -
20. IAN.
21. IAN. —
19. FEBR
20. FEBR -
20 MAR2