Fálkinn - 13.05.1962, Page 7
Venju fremur fór fegurðarsamkeppnin fram með pomp ag pragt. Fyrst komu dís-
irnar fram í Austurbœjarbíó. Þar var auk þess margt til skemmtunar, tízkusýn-
ing á herrafötum, sem Tízkuskólinn annaðist, tvist- fimleikar og akrobatik, skop-
þáttur og fleira. Að lokinni sýningu i Austurbœjarbíó hélt keppnin áfram í
Glaumbœ. Þangað var ekið í „blómskrýddum vagni", vel merktum Loftleiðum og
Einari Jónssyni. Þess má geta, að vagninn átti Rafmagnsveita Reykfavíkur. —
Lúðrasveit lék fyrir göngunni og var hún staðsett á vagninum. Veður var hið feg-
ursta, rigningarsuddi og tjölduðu dísirnar regnhlífum. Einar Jónsson stóð í stafni
vagnsins og stjórnaði förinni, af myndugleik.
FÁLKINN 7