Stúdentablaðið - 01.04.1997, Síða 3
APRÍL 1997
3
STÚÐENTABLAÐIÐ
Frá vinstri: Tómas Hallgrímsson, útibússtjóri Landsbankans í Vesturbæ, Sigurbjörg Benediktsdóttir frá Landsbréf
um, Soffía Haraldsdóttir vinningshafi og sonur hennar.
Dregið úr verðlaunagetraun
Á framadögum Háskóla Islands 7. mars síðastliðinn efndu Lands-
banki íslands og Landsbréf hf. til verðlaunagetraunar og hefur nú
verið dregið úr réttum lausnum. Sú heppna er Soffía Haraldsdóttir,
nemi á fjórða ári í Viðskiptafræði I Háskóla Islands. Verðlaunin eru
AST margmiðlunartölva frá EJS.I
háskólafréttir
Verkefnastyrkur FS
Verkefnastyrkur Félagsstofnunar stúdenta var veittur 11. febrúar síðastliðinn. Það var Bene-
dikt Halldórsson sem hlaut styrkinn að þessu sinni fyrir M.S. ritgerð sína, „Um útbreiðslu jarð-
skjálftabylgna og áhrif þeirra á lagnakerfi.“ Benedikt lauk M.S. prófi 1. febrúar síðastliðinn með
ágætiseinkunn frá verkfræðideild Hl. Umsjónarnefnd námsins skipuðu prófessorarnir Páll Ein-
arsson, Júlíus Sólnes og Ragnar Sigurbjörnsson sem var formaður nefndarinnar og aðalleið-
beinandi. Verkefnastyrkur FS er veittur þrisvar á ári. Tveir við útskrift að vori, einn í október og
einn I febrúar. Nemendur sem skráðir eru til útskriftar hjá Hl og þeir sem eru að vinna verkefni
sem veita 6 einingar eða meira í greinum þar sem ekki eru eiginleg lokaverkefni geta sótt um
styrkinn. Markmiðið með verkefnastyrk FS er að hvetja stúdenta til markvissari undirbúnings
og metnaðarfyllri lokaverkefna. Jafnframt að koma á framfæri og kynna frambærileg verkefni.
Styrkurinn nemur kr. 100.000. Guðjón Ólafur Jónsson, stjórnarformaður og Bernhard A. Peter-
sen framkvæmdastjóri FS afhentu styrkinn.
| Auglýsing um
| árlega skráningu
Árleg skráning fyrir næsta háskólaár fer fram
I í Nemendaskrá 21.-26. apríl 1997
I
Stúdentar eru minntir á að árleg skráning í námskeið á haust- og vormisseri háskólaársins 1997-98 fer fram í Nemenda-
■ skrá í Aðalbyggingu H.f. dagana 21. - 26. apríl 1997. Saman fer skráning og greiðsla skráningargjalds, kr. 24.000.- (Stúd-
entum verða sendir greiðsluseðlar).
| Á skráningartímabilinu verður nemendaskráin opin kl. 9 -17:00 og opið verður í hádeginu.
Skrásettir stúdentar háskólans framvísi stúdentaskírteinum við skráningu. Þcir sem ekki hafa skírteini snúi sér sem fyrst
til Nemendaskrár.
I Gætið sérstaklega að því að í árlegri skráningu skal skrá sig í námskeið bæði á haust- og vormisseri háskólaársins 1997-
1998.
| Athugið að skráningu í sumatpróf skal vera lokið 20. júní 1997.
Ath! Stúdentar geta komið í Nemendaskrá og fengið leyninúmer vegna upplýsinga um úrslit prófa.
I
Deildir mæti til árlegrar skráningar á eftirtöldum dögum:
I
I
I Verkfræðideild:
Raunvísindadeild:
| Viðskipta- og hagfræðideild:
Félagsvísindadeild:
| Guðfræðideild:
Lagadeild:
Heimspekideild:
Læknadeild (læknisfr., lyfjafr., hjúkrunarfr., sjúkraþjálfun):
Tannlæknadeild:
Aukadagur:
Mánudag 21. apríl
Mánudag 21. apríl
1‘riöjudag 22. apríl
Þriðjudag 22. apríl
Miðvikudag 23. apríl
Miðvikudag 23. apríl
Miðvikudag 23. apríl
Föstudaginn 25. apríl
Föstudaginn 25. aprfl
Laugardag 26. apríl
Þeir sem af óviðráðanlegum ástæðum geta ekki komið til skráningar á ofangreindum dögum, hafi samband við Nemenda-
skrá áður en árleg skráning hefst, ekki eftir að henni lýkur. Sími Nemendaskrár er 525 4309.