Dvöl - 01.03.1902, Blaðsíða 3

Dvöl - 01.03.1902, Blaðsíða 3
D V 0 L. 11 látum. Yfir háa arninum, milli stóru kertastjakanna var margvíslegt rósaskraut úr allavega litum silki- borðum í glerumgerðum, ]iað voru heiðursverðlaun, sem Mathíasi hafði hlotnast á gripasýningunum fyrir framúrskarandi nautgripi og kindur og fannst honum mikið um ]>etta vert. Skær kola- og mó-eldur brann á stóra arninum, á drifthvíta gólíið var breidd mjó gólfábreiða og á arinhelluna hvítt sauðskinn. Faith stóð á gólfábreiðunni og söng eina vísu úr einu af hinum raunalegustu skozku harmakvæðum, meðan hún steig rokkinn ótt og títt. [Framhi.]. Einkennilegt atvik. (Þýtt úr ensku). Páll Urban sat beint á inóti Mörtu Ambary og hafði stöðugt augun á henni, en hún hallaði sér aftur á bak í legubekkinn, sem sökum lögunarinnar var kallaður „legubekkur Önnu drottningar“; Mörtu féll illa við hann. Hún átti um jiessar mundir heima á veitingahúsi, en var nýkomin frá Indlandi, ]'ar sem hún hafði vanizt miklu mýkri og öðru vísi löguðum legubekkjum. Páll sagði við sjálfan sig: „Hún er töfrandi fögur — of fögur til að giftast; þar að auki ef einhver ætti hana, þá yrði hann að deyja heiminum, ef ]iessi fagra mær er lík systrum sínum. Svo er nú líka pað herjans ákvæði, að hun er andatrúarkona, eða hvað sem það nú er kallað; hún er einlægt að tala um eitthvert segulafl, sem þrengi sér í gegnum allt, eða með öðrurn orðum: hún vill sjá í gegnum holt og hæðir og heldur að hún geti það. En ef hún giftist, þá hættir hún við alla þá vitleysu; þá fer hún að hugsa um að festa hnappa í skyrturnar mínar og sjá um að kragarnir og léreftsdótið mitt sé í reglu; hún mun draga huga sinn frá þess kyns rugli“. Meðan á þessum. hug- leiðingum stóð, þögðu þau bæði, þar iil Marta rauf þögnina ineð þessum orðum: „Eg hýð cent í það, sem þér eruð að hugsa um, herra Urban“. „Segið þér tvö cent, fröken Ambary“. „Eg samþykki það“, svaraði Marta og klappaði saman Iófunum, eins og gert er í Austurlöndum, til að kalla á þjónana. Undir eins kom stúlka inn. „Færðu mér fljótt 2 cent“, sagði fröken A’mbary. Centin komu og voru lögð í lófa Páls og Marta sagði: „Segið þér mér nú leyndarmálið“. Páll stakk centunum í pyngju sína og sagði: „Mig hefir oft langað til að giftast stúlku, sem er lík yður“. „Hvers vegna farið þér þá ekki að gera það?“ spurði hún dræmt. „Þér takið allt í gamni“, svaraði hann. „Hvað kallið þér gaman?“ spurði hún með geðshræringu spratt upp . úr legubekknum og sléttaði úr hrukkunum, sem eitt hornið á legubekknum hafði sett á kjólinn hennar. „Eg á við það, að mér er ekkert gaman í sinni; ég elska yður“, sagði Páll nokkuð ákafur. „Viljið þér eiga mig? Viljið þér verða konan mín?“ Marta Ambary hvessti á hann augun, eins og henni kæini þetta á óvart. „Er þetta alvara yðar?“ spurði hún. „Svo vissulega er það alvara mín, sem ég er heiðarlegur maður, eða hvað yður þóknast að kalla það“. „Farið þér ])á burtu núna, en komið aftur á morgun i sama mund“, sagði hún stuttaralega, veif- aði til hans hendinni í kveðjuskyni og fór út. Þegar hún var orðin einsömul, fór hún að liugsa um hagi sína. Hún var einmana í heiminum, því faðir hennar dó á Indlandi, og hún liafði erft talsverða fjármuni eftir liann og var orðin myndug. Það getur skeð, hugsaði hún, að þessi Páll Urban viti að ég er rík og ætli sér að ná í reiturnar. En ])á datt henni í hug, að hún hefði svo oft óskað eftir að vera svo innilega sameinuð einhverjum, að hún gæti vitað, hvort það \ræri satt, að segulatl það, sem merin væru gæddir, verkaði þannig í sameiningu, að tvær verur, sem ynnust hugástum, gætu verið samvitandi um hagi liinnar, þó hún væri fjarverandi, og gæti fengið vitneskju um, ef hin væri í hættu stödd. Hún rifjaði nú upp fyrir sér mörg dæmi, þar sem mæður, feður, eiginkonur og eiginmenn höfðu séð á næturþeli mynd þeirra, sem þeir elsk- uðu, þegar þeir voru að drukkna, hefðu verið skotn- ir, orðið innkulsa eða orðið fyrir einhverjum voða- áföllum. Þá sagði hún við sjálfa sig : „Ég get að eins náð þessurh segulstraum á vald mitt gegnum manninn minn, því ég á eriga ættingja. Veri það þá svo. Ég skal eiga hann; hann má gjarnan fá peningana rnína, ef ég get fylgt honum andlega og sannfært mig um, hvort þetta afl er til eða ekki“. Svo fór hún að hátta og sofnaði vært. Daginn eftir fékk Páll Úrban skrautritaðan, ilm- andi miða með þessum orðum á: „Ég skal verða konan yðar“. Þau giftust skömmu síðar viðhafnarlaust, því eins og sagt hefir verið, var Marta einstæðingur og Páll Úrban, sem var ungur uppgangsmaður, skifti sér ekkert af skyldfólki sínu, sem stóð rniklu lægra en hann í mannfélaginu. Hveitibrauðsdagarnir liðu íljótt í gleði og ánægju, þau voru einlægt saman og unga frúin hafði aldrei fengið tækifæri til að reyna segulatlsstraumana. Um sjðir sagði Páll við hana einn eftirmiðdag: „Elskan mín ! Ég verð að vaka í nótt hjá sjúkum vini mínum ; þú skalt því ekki vaka eftir mér“. „Það er gott, ástin mín“, sagði hún. „En komdu eins íljótt og þú getur, því þú veizt livað mikið ég sakna þín“. Páll kyssti hana innilega og fór, en hún settist við gluggann og hálfnagaði sig í handarbökin fyrir að hún var fegin að hann fór þetta, því nú ætlaði hún að knýja anda sinn á eftir honum og heita á öll gegnþrengjandi segulötl til að hjálpa sér til að vita, hvað hann hefðist að um nóttina. Snemma um morguninn kom Páll tryllingslegur og þreyttur. Dyrnar á svefnherberginu þeirra voru ólæstar, en hann veitti því litla eftirtekt, því hann hélt, að konan sin hefði verið yfirkomin af svefni og hefði gleymt að læsa þeim. Þegar hann kom nær, sá liann að hún sat uppi í rúminu og hórfði á hann með daufu augnatilliti.

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.