Dvöl - 01.08.1906, Blaðsíða 3

Dvöl - 01.08.1906, Blaðsíða 3
DV0L. 31 halda sögunni áfram. Þessi fóstursystkini lifðu liinu sælasta líli á þessu ríkisheimili, þau elsk- uðu hvert annað og fóstri þeirra elskaði þau heitt; það einasta sem þeim hlés á móti, var að þau urðu að skilja þegar skólanámið byrjaði, og þau fóru sitt í hverja áttina til að verða full- numa. Þegar þau komu heim aftur, sagði fóstri þeirra við þau, að það væri ósk sín að þau giftust og erfðu þannig sameiginlega allar eigur sínar. Ella æskti sér engrar frekari hamingju cn að eiga Walter, og hún hugsaði lengi vel að hann elskaði sig eins heitt og húnhann; en eftir því sem hann eltist, sannfærðist hún um að það var ekki lilfellið, en að hann elskaði aðra stúlku, sem var dóttir fornvinar þeirra og kom ofl lil þeirra. »0g fyrst við sjálf búum nöfnin til,« greip kenslukonan inn i, »þá skulum við nefna þá stúlku Lilju«. »Jæja, þessi Lilja var sérlega falleg, var ekki eins há og Ella var, og ekki alveg eins elsk að hókum og hljóðfæraslættí, en Ijóshærð Ijúfmann- leg og töfrandi, — mætavel fallin til að töfra hjarta sérhvers ungs manns og halda því svo í fjötrum úr silki, scm voru hverjum járnviðjum slerkari. Walter elskaði hana«. »Og veslings Ella elskaði hann líka«, stundi Lilja upp. »Guð hjálpi mér!« Áður en gamli maðurinn vissi um þetta, dó hann, og hafði ánafnað í erfðaskrá sinni frænda sinum og' fósturdóttur allar eigur sínar, en með þeim skilmála að þau giftust. En skyldi annað- livort þeirra neita ráðahagnum, þá átti arfahluli ])ess að ganga tii góðgerðastofnunar, lnisið að seljast og verð þess svo að hætast við höfuð- stólinn, en dæi annað hvort þeirra, skyldi það sem eftir lifði erfa alla fjármunina. Þetta var nærri því grimdarfull aríleiðsla. Sérhver dagur sannfærði Ellu um, að hún hafði gefið þeim manni Iijarta sitt, sem ekki kunni að meta það, en áleit það þunga byrði. Walter reyndi samt að dylja ástand sitt fyrir konu þeirri, sem hann var dæmdur til að eiga, því mistu þau af arf- inum, yrðu þau bæði öreigi, það vissu þau. En Ella elskaði hann svo heitt, að hún tók alvar- legan þátt í vandræðum hans, og' reyndi á allar lundír að finna upp éitthvert ráð til að hjálpa honum. Hún ásetli sér þessvegna að devja fyrir hann«. »Guð komi til«, hljóðaði Nelly. »Svo skrifaði hún Walter bréf«, hélt kenslu- konan áfram, »og kvaddi hann mjög hjartan- lega og för svo út úr liúsinu. Skamt þaðan var á, og lítill bátur bundinn við bakkann. Ella hafði oft einsömul róið honum upp ána. Þenn- an hát fundu menn svo á hvolíi daginn eftir, og hattinn licnnar fljótandi nálægl honum. Walter selli þetta hvarf fóstursystur siímar í blöðin og hað um allar upplýsingar hvarfi lienn- ar viðvíkjandi, sem mögulegt væri að fá, en engar komu. Svo eftir ár og' dag var honum dæmdur allur arfurinn. Hann átli hann líka, því Ella var ekkert skyld gamla manninum, þó að hún nefndi hann bróður sinn og þælti vænt um hann. »Hvernig fór svo?« spurði Lilja. »Giftisthann svo þessari ástmey sinni?« »Ójá, þau giftust«. »En veslings Ella?« spurði Lilja. »Hún dó ekki«, sagði kenslukonan. »Henni ofhauð að taka lífið af sér, svo á meðan þeir voru að revna að slæða likið hennar upp úr ánni, var lnin í stórri borg og vann þar heiðar- lega fyrir sér. Já, hún hefir sigrað ást sína á Walter fyrir mörgum árum og lifir nú þægilegu, rólegu og þörfu lífi«. Þegar sögunni var lokið, stóðu systurnar upp og gengu inn í herbergi sitt, sem var uppi á loftinu, en kennslukonan gekk inn í viðhafnarstofuna til að taka bók, sem hún hafði skilið þar eftir. Þegar hún kveikti á gaslampanum, stóð hinn ókunni maður upp úr sætí sínu nálægt glugganum, gekk á móti henni og' sagði að eins þetta eina orð: »Ella«! Hún hrökk aftur á bak og hefði dottið, ef hann hefði ekki orðið fyrri lil að grípa liana. »Ella«, sagði hann aftur. »Ég heyrði söguna þína, því ég huldi mig hérna bak við glugga- skýlurnar, til þess að geta því betur virt börnin mín fyrir mér, án þess þau sæju mig eða vissu að ég var kominn heim. En þú hefir haft rangt fyrir þér. Ég hefi æfmlega elskað þig, en efa- blendni kældi svo ást þína, að eg' hugsaði að þú ætlaðir að giftast mér einungis til þess að hlýðn- ast skipun móðurbróður míns«. »Nú, hvað er þelta, spurði hún. »Elskaðir þú þá ekki Lilju?« »Ekki þá, því ég elskaði þig — þig og enga aðra. En þegar ég hélt að þú værir dauð, þá sigraði blíða hennar og' þolinmæði það sem eftir var af hjartanu mínu særða og' hrjáða«. Það voru hjartanlegir kossar, sem hann fékk daginn eftir hjá dætrum sínum, en gleði þeirra varð ekki minni, þegar faðir þcirra sagði við þær í mjög alvarlegum málróm: »Nú ætla ég, börn, að selja botninn í söguna, sem ungfrú Whitman hyrjaði a að segja ykkur í gærlcveldi. Hann cr svona: Kona Walters dó, en hann fann aftur Ellu og elskaði hana. Hún er hérna, og þið verðið að gefa henni rúm í hjarta ykkar eins og konunni minni og móður ykkar. Bók send Dvöl. Söcjur frá Alhambrn. Eftir Washington Irving. Úlgefandi félagið Baldur. Rvik 190(5. í kveri þessu eru þrjár sögur: Um veru Serkja á Spáni, Pílagrímur ástarinnar og Rósin í Alhambra. Aftast ern athugasemdir við fyrstu söguna, eftir Fr. Friðriksson. Benedikt Gröndal hefir þýtt fyrstu söguna, og hefir áður verið prentuð fyrir mörgum árnm, en hinar hefir Stein- grímur Thorsteinsson þýtt, og hafa þær sömu- leiðis áður verið prentaðar. Sögur þessar voru orðnar ófáanlegar, og var því mjög æskilegt að fá þær endurprentaðar,

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.