Dvöl - 01.11.1909, Blaðsíða 2

Dvöl - 01.11.1909, Blaðsíða 2
42 DV0L Ef þér því þóknast, skulum við yíirvega mál- efnið, og grandskoða á eftirfylgjandi hátt, hvert sálir þeirra dauðu eru í undirheiminum eða ckki. Thyra Varrick. Eftir Amalíu E. Barr. Lauslega þýtt úr ensku. (Framh.). Thyra sat i sorglegri leiðslu, og skildi vel, að hún hlaut nú að segja skilið við þann mann fyrir fult og alt, sem hún enn þá unni hugást- um. Ettir þessa stund áleit hún stóra synd fyrir sig að hugsa um hann. Samt langaði hana til að sjá hann, þó það væri ekki nema eittaugna- blik, eftir að hann var orðin eiginmaður Söru Mac. Argall. Þegar brúðhjónaefnin komu stóðu allir upp og hún sömuleiðis, Sara gekk svo nærri henni, að hefði stólshurðin ekki verið í milli, þá hefði klæðnaður þeirra snortið hver annan. Hún var yíir máta fögur og yfir máta glöð, sigri hrósandi, elska og ánægja skein svo sjáanlega út úr andliti hennar, stóru bláu aug- unum og út úr sjálfstæðisbrosinu sein lék um varirnar á henni. A brúðarkjólinn hennar sem var úr hvítu silki innofnu með hreinu silfri, skein svo fagurlege i sólarbirtunni. Fagra hárið hennar hékk laust, nema hvað þvi var lítið eitt haldið saman af sverðmynduð- um stórum perlum, og hún bar af öðrum konum eins og drottning er hún gekk innar eptir kirkjunni við hönd afa síns. Eins og menngeta blínt, í einskonar örvinglunar leiðslu á ástvin sinn deyja, þannig blíndi Thyra á sinn sviksama elskhuga, og lnin hugsaði sem svo: Eg verð að leyfa mér það eilt eða tvö augnablik, svo verður allt að gleymast. Eg er skyldug til að gleyma honum fyrir fult og all! Villulegur svíðandi ótti greip hjarta hennar við þessa umhugsun. Hvern- ig orkaði hún að gleyma honum? Alveg með samskonar, af ást uppljómaða andliti hafði Hekt- or einu sinni komið á móti henni. Hún þekti öll töfrahrögðin lians, hún gat talið ástaorðin sem svifu á vörum hans. Nú barðist öll hin ofsalega ást og sorg um í hjarta hennar, og hinir unaðsríku umliðnu tímar kölluðu svo vinalega fram endurminningu hennar, að niður um bleiku kinnarnar hennar læddust brennheit tár sem hún svo fegin vildi dylja. Hví skyldi eg nú vera að gráta? hugsaði hún þegar það er orðið of seint. Tárin koma engum sköpuðum, góðum hlut til leiðar. Allt í einu gall við glaðvær söngur, skjótar hreyfingar, skrjáfið í silki kjólunum, og glaðvær upphróp, sem vöktu hana upp afsorglega draumn- um sínum. Hún stóð upp í allri fegurð sinni Qg beindi athygli sinni að hinum hamingjusömu brúðhjónum um leið og þau fetuðu stillilega fram kirkjugólfið. Það varaði aðeins fáeinum mínútum — mínútur fullar af sorg og angist fyrir hana. Þegar Hektor nálgaðist sá hún að hann sá sig. Hann horfði á hana, og við það hóf hún höfuðið upp. Þau blindu eitt augnablik hvert framan í annað, en þá sá hann örvinglunarsorg hennar og hún las út úr augum hans, hvað? — stór- kostlega undrun, og máske líka einhverskonar skapraun. Það var auðsjeð að hann lést ekki þekkja hana, en, hann laut ofur lítið niður að konunni sinni, og hvíslaði einhverju að henni sem kom henni til að hefja höfuðið upp, og hún svaraði honum með innilegu, ástriku brosi. Þegar öllu var á botninn hvolft þótti henni vænt um að hún fékk tækifæri til að sjá hversu full- komlega að Hektor hafði svikið sig. Nú var engin von framar til fyrir hana, — engar táldrægar vonir til að þjá hana. Elsku sinni og bitru endurminningunum, varpaði hún í hið innilukta bítra þjáningahólf, þangað sem vor siðterðislegu náttúruöfl fága sig sjálf hvít- glóandi. Jafnvel áður en hún komst heim til sín hafði hún smakkað hinn væmna sætleik slíkrar fórnar. Hún mundi eftir Dónald; hún vissi að hún varð að segja honum og lady Fraser brosandi frá öllu sem hún hafði heyrt og séð, og hún varð að gera það með glöðu geði, því þau höfðu látið hana fara af svo góðum hug. Og með þessari skjótráðnu sigurvinningu ylir sjálfri sér jókst henni styrkur, svo liún uppgötvaði jafnframt, að sá vissasii vegur til gæfu er að lifn fyrir aðra. Ei að síður vörpuðu alsherjar málefnin brúðkaupi Söru Mac Donalds í gleymsku. í þrjá daga var meginher Cape í námunda við Edinborg, og Carl prins fór til móts við hann. Öll störf hættu; fólkið gaf sérnaumlega tíma lil að borða eða sofa; máleíni Jakobínanna stóð eða féll eftir þvi, hvernig orrustan endaði. Fyr- ir dögun sóttu Hálendingarnir að hinum undr- unarfullu ensku hermönnum, hjuggu nasir hest- anna, til þess að koma ruglingi á riddaraliðið. Þetta áhla up hafði þvílíka slátrun í för með sér, að fá dæmi eru til sliks í seinni tíma orustum. Daginn eftir hélt Ivarl prins aftur til Edinborg- ar með sinn sigursæla her, og hin tryllingslegu sjónspil og fagnaðarlæti, sem hölðu fylgt hon- um frá því hann kom til landsins, voru endur- tekin. Þeir at Jakobinum sem höfðu alt að þessu gætt skynseminnar, urðu nú ólmir og uppvægir, og allir þeir, sem höfðu verið á báð- um áttum urðu nú eindregnir Jakobinar. Nú var um ekkert annað talað en guðlegan rétt og hátíðlegar sigurfarir; og Ivarl tók upp alla við- höfn og konunglega hirðsiði í Holyroodhöllinui. Hann varð dýrðlingur kvennþjóðarinnar, hann hélt veizlur, danzsamkomur, útreiðar og veiði- ferðir; hann lýsti vanþóknun sinni á konungin- um; hann gerði alt til að sýna sitt hetjulega, skáldsögulega og konunglega ætterni. Og frá 22. seftember til hins 31. október, dreymdi hina gömlu fögru borg um undrunarverða dýrð, og um allra lianda höpp. Og samt er vikurnar liðu,

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.