Dvöl - 01.11.1909, Blaðsíða 3

Dvöl - 01.11.1909, Blaðsíða 3
D V 0 L. 43 fór ótti og hugleysi að gera vart við sig hjá hinni lítilfjörlegu hirð i Holyroodhöllinni; Jakobinsku frúrnar tóru að óttast tyrir að dýrðin á Holy- rood mundi ganga til þurðar; og yfirmennirnir i hinum vilta, tiltölulega íámenna her, vissu vel, að hversu sem enska stjórnin yrði sein á sér lil framkvæmda væri þó tími hefndarinnar vissu- lega í vændum. Einhver óttablandin ókyrð var yfir öllum stéttum, efi og óttahrollur dró úr á- kafanum; daglega gerðu þessar trutlanir vart við sig. Karl prins einsamall sýndi hið sama glað- væra aískiftaleysi, af þvi hann hélt sjálfur að hann væri að ttjúga á vængjum forlagadísar sinn- ar upp í sérákvarðað konungssæti; og einn dag, til mikillar undrunar og gremju fyrir llokk hans og herforingja, lét hann brosendi þá ákvörðun sína i ljósi, að hann ætlaði að halda á leiðis til Lundúnaborgar með lið sitt, til þess að vinna undir sig krúnu Englands. Þessi ákvörðun Iíarls, að ráðast á England var fyrsta sporið til ógæfu hans. Hinir ensku Jakobínar höfðu ekki á neinn hátt sýnt sig líklega til að veita honum hjálp, en prinsinn var viss um að hann þyrfti ekki annars við, en að fara yfir landamærin, og þá mundu heilir herskarar koma sér til hjálpar. Hektor mac Dónald, — sem stólaði upp á vináttu sina mikla — reyndi af öllum mætti að fá prinsinn ofan af þessari vitleysu og sagði meðal annars: »Hálenzku llokksforingjarnir vilja í engan máta fara í svona lagaða för til Englands. Þeir hata gripið til vopna sinna til þess að setja einn af Stúörtunum í konungssætið á Skotlandi, og þeir eru reiðubúnir að berjast til þess að koma því í gang; en þeir vilja ekki ráðast á England«. Ógæta Stúartanna reið ekki við einteyming. Þrátt fyrir allar mótspyrnur byrjaði Karl prins herferð sína suður eftir, hinn 31. október, með eina sex þúsund hermenn. Hinn 18. nóvemberféll »CarlisIe«, sem engri vörn gat beitt, í hendur hans og prinsinn hélt innreið sína i borgina sigri hrósandi, reið sjálí- ur á hvítum hesti með hundrað lúðurþeytara á undan sér. Þetla var liið síðasta eftirlæti sem hamingjudísin veitti honum. Þó hann færi gegn- um Cumberland, Westmoreland og Lancashire, stóðust ensku virkin áhlaup hans, hann fékk og lilla viðbót við her sinn, þar sem á hverri nótlu lleiri og færri Hálendingar slruku úr her hans og héldu skemstu leiðina aftur heim til fjalla- héraða sinna. Meðan þessu fór fram, fór enska stjórnin, seint og síðar meir að átla sig á ástandinu. Hún sendi því hershöfðingja Wade, með herflokk til móts við Karl, og enn þá meira lið undir for- ustu hertogans af Cumberland. Lundúnaborg hafði nógan liðsaíla til að taka á móti upphlaups- mönnum, og sjálfboðaliðar voru allsstaðar; og skipaílotinn var sömuleiðis til reiðu i sundinu til þess að koma i veg fyrir að Karli kæmi nokkur hjálp frá Frakklandi. En alt þetta er nú ekkert að reikna í samanburði við kulda og afskiftaleysi prinsins, i því að láta herílokka sína halda inn í mitt England. Og þegar þeir kom- ust til Derby var allur íjöldinn af liðinu fast- ráðinn í að snúa aftur. Það var í sannlelka llótti eða gjöreyðsla. Lávarður Georg Murray og Heldor mac Donald bentu prinsinum á þetta. Hann varð fyrst reiður og svo ólundarlegur, en þar eð hann sá, að þeir yrðu óumílýjanlega að hörfa undan, hélt hann norður á bóginn með mestu ólund. Því þó hann hefði liprara skap- lyndi en hans önuglyndi faðir, þá var hann eins auðugur af hinni imynduðu, guðdómlegu tign sinni, já, hann áleit málefni sitt svo heilagt, að einhver yfirnáttúrleg höpp lilytu að vera þvi samfara, og gagnvart þessum trúaroísa, verkuðu ráðleggingar hertoringjanna ekki neitt. Lávarð- ur Georg Murray sagði honum nú afdráttarlaust að »guðdómlegi rétturinn hans væri nú orðinn úreltur«, og þegar Karl vænti sér liðsyrðis hjá Hektori, þá hafði hann ekki gleymt mörgum lítilsháttar snuprum og ósvííni sem hann hafði mælt af prinsinum og sagði því: »Þessu er þannig varið, prins. Jafnvel liá- lendingarnir hafa gleymt yðar háa rélti«. »Svo þér eruð þá líka einn meðal svikar- anna!« svaraði Karl, fokreiður. Hektor svaraði: »Eg hefi gengið oflangt, prins, til þess að vcrðskulda |)að nafn«. Eftir þessa samræðu lét Iíarl sem hann tækí varla eftir Hektori, og þegar þeir komu til Carlistle, skipaði hann svo fyrir, að majór mac Dónald skildi verða þar eftir með fim'mtíu öðr- um af flokki sinum til þess að styðja majór Townley, sem var fyrirliði fyrir Lancashire fylk- íngunni. Forlög þessara manna voru svo auðsæ, að hertoginn af Perth neitaði að láta nokkurn mann úr sínum flokki fara í þeirra lið, og lá- varður Georg Murray sárbændi um að hætta heldur við að verja kastalann, en að gefa jafn- hrausta drengi út i fyrirsjáanlega dauða. Prins- inn hafði ei að síður ákvarðað þetta, og mcð hinni tilfinningarlausustu þrjósku, skildi hann við herdeild sína, svo að hún varð fyrst til að taka móti hefnd Englendinganna og slátrunar- græðgi, eða til að mæta hinni grimdarfullu með- ferð sem öllum landráðamönnum varbúin; þetta var eitt andstyggilegt dæmi upp á hans sjálfs- elskufulla trúarolsa, sem kom honurn lil að virða líf margra þúsunda af heiðarlegum mönnum, sem lögðu lífið i sölurnar fyrir hans málstað, aö vettugi. Hann áleit það ekkert nema tilviljunarlegt tilfelli í skylduvei'kum þeirra, sem honum var alveg óþarft að koma i veg fyrir eða iðrast eftir. Pannig var Hektor skilin eftir í Carlisle með sína til dauða dæmdu fylkingu, og Karl sjálfui* flúði eins fljótt og honum var auðið til hálenzku landamæi'anna, og settist að í Invernes með sinn flokk, þangað kornust þeir loksins 18. febrúar. Hertoginn af Cumberland nam staðar við Aber- deen. Hann kærði sig ekki um að ílýta sér á eftir Karli upp í snæþöktu fjalllendin, því hann vissi að af því hefði hann ekki neina ilt eitt. Her Hálendinganna hafði hvoi'ki peninga eða

x

Dvöl

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.