Dvöl - 10.01.1911, Side 4

Dvöl - 10.01.1911, Side 4
2 D V 0 L. Bækur. Ágúst Bjarnason: Austurlönd. Reykjavík 1908. Kostnaðarmaður Sigurður Iíristjánsson. Það er vissulega þakkiætisvert að fá ritverk í einni heild, sem skýrir svo nákvæmlega frá trúarþrá og guðsdýrkunar-aðferð hinna mörgu kynþátta og þjóða sem búið hafa og búa á jörðu þessari, og afstöðu og samband þeirra hvert við annað. Þetta erfiða og umfangsmikla verk fer höfundinum svo vel úr hendi, að hann hlutdrægn- is- og' öfgalaust lætur viðburðina sjálfa tala fyrir sig, og neyðir ekki skoðun sinni upp á nokkurn. Bókin er rituð samkvæmt uppgötvun og á- lyktun vísindanna, sem víkur í ýmsu verulegu frá barnatrú vorri, einkum er til nýja sáttmál- ans kemur — kraftaverkanna — viðurkennir ekki það, sem stríðir á móti þeirri náttúruniðurröð- un sem vér þékkjum, en gerir ]>að samt svo vægilega að jatnvel veltrúaður maður finnur sig ekki særðan við lestui'inn. Bókin er heldur ekki trúfræðislegt rit i þeirri merkingu, en ávöxtur vísindanna, en trú og vís- indi hafa alt til þessa átt bágt með að samlaga sig. Mannsandinn heldur áfram að leita að sann- leikanum — rannsaka og þroskast fram í hið óendanlega, og hann á máske enn þá eftir að stranda þannig á kraftaverkakerfum þeim sem öll tilveran er þrungin af, að hann láti sig sannfæra um, að guðs almætti gengur eins og rauður þráð- ur í gegnum alla tilveruna. í gegnum margra — margra alda trúarþrá er auðsýnilegt að mannsandinn, jafnvel í sínu allra viltasta ástandi, er að leita að alfullkomn- um, huldum guðdómi, sem eðlið segir honum að hljóti að vera til, eins vissuiega og hungrið bendir til að saðningin sé til, þorstinn að svala- drykkur sé til, andvakan og þreytan að svefninn sé lil o. s. frv. Tíminn, að eilífðin sé til — ? Bók þessi er verulega skemtileg aíleslrar — já, svo skemlileg að mann langar til að endur- taka hana og manni líður vel eftir lesturinn, og það er meira en hægt er að segja um margar bækur, þó góðar séu kallaðar. Engum sem er þroskaður í trú sinni ætli að standa hætta af lestri hennar, því þó maður í öllum tilfellum sé henni ekki samdóma, þá liefir hún mörg sannsöguleg gullkorn að geyma. Barnasögur eftir Ilallgrím Jónsson. Reykjavík 1910. Sögur þessar eru alls 6 talsins, ofur auð- veldar, og því ekki ofvaxnar skilningi barnanna sem snemma fá löngun til að heyra sögur. Það er því æskilegt fyrir þau að fá stuttar, auð- veldar og mentandi sögur, sem helzt ætlu að vera, er svo óþroskaðir smælingjar eiga í hlut, þannig, að þær örfi réttlætistilfinningu þeirra bæði gagnvart mönnum og skepnum. »Hvað ungur nemur gamall fremur«, segir máltækið. Prjú æfintýri eftir Sigurbjörn Sveinsson. Utgefendur Jón Helga* son og Karl H. Bjarnason. 1909. ÖIl eru æfintýri þessi skemtileg ailestrar, sem fagur siðferðiskjarni er fólginn i. Lestur .þeirra hrífur mann svo þægilega út úr umsvifum lífsins meðan á lestrinum stendur. Kverið er vel 25 aura virði og þó meira væri. (Framh. siöar). Borguð skuld. (pýtt). (Niðurl.). Alt í einu fór útgefandi að hrosa og sagði við sjálfan sig: »Þetta er ágæt hugmynd. Eg ætla að biðja þau bæði að koma til mín á morg- un. í millibilinu get eg ráðið við mig hvort þeirra skal hljóta verðlaunin, og þá get eg séð livort eg get ekki keypt hina söguna«. Um kveld- ið sendi hann frá sér tvö hréf. Hiðfyrra hljóð- aði svona: »Utgefandann langar til að finna yðnr hér heima á skrifstofunni á morgun, fimtu- dag kl. 12«. Hitt hljóðaði svona: »Utgefandann langar til að tala við yður, hérna, á skrifstofu sinni á morgun, fimtudag kl. 12og30 mínútur«. Áritun fyrra bréfsins var, Páll Reynor Esq. En hins siðara, Fröken Ella Hammond. IV. Það var útgeíandinn, sem var að tala og hann sagði: »Herra Raynon, þó eg geti ekld dæmt yður verðlaunin, þá er eg samt fús til að kaupa söguna af yður. Látið liana verða hér eftir hjá mér, og eg skal undir eins og eg fæ tima, láta yður vita um, hvað eg get boðið yð- ur fyrir hana«. Páll hlustaði á þetta hrvggur í huga: »undir eins og eg fæ tima til«, — en rit- stjórar þurfa svo lengi að leita að hinum henl- uga tíma, sérhver dagur var veslings Páli svo dýrmætur, því orð læknisins hljómuðu stöðugt í eyrunum á honum, þau er hann hafði sagt um morguninn. »Iíonan yðar verður að fara—- fara undir eins að heiman. Sjóloftið er henni svo nauðsynlegt — ómissandi, annars get eg elcki ábyrgst afieiðingarnar«. Hvernig gat hann nú farið heim og sagt veslings veiku konunni sinni að þau yrðu enn þá að baslast hjálparrlaust á- fram? Hann hafði rekið upp gleðióp er hann hafði opnað bréfið frá ritstjóranum, af því hann sá að það færði sér gullna von — og lijónin bæði höfðu hlegið og grátið sameiginlega yfir því. Og nú — Hann varð angraður í hjarta og línurnar i andliti hans báru vott um örvæntingu, svo geklc hann út úr skrifstofunni. Stúlka með svarta þykka blæju fyrir andlit- inu og klædd sorgarbúningi, sat og beið inni i biðslofunni, en hugur lians var svo langt í burtu að hann tók naumlega eftir henni. »Ó, hve sorglega leit liann úl!« mælti stúlkan fyrir munni sér. »Ó, hve mörg sorgmædd börn

x

Dvöl

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dvöl
https://timarit.is/publication/358

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.