Iðnneminn


Iðnneminn - 01.11.1933, Side 1

Iðnneminn - 01.11.1933, Side 1
r í A7 3 => 3 > 0 | 1. árgangur Nóvember 1933 1. tölublað KENSLU STUND ABRE YTIN GIN ÁVARP olðnneminn", þetta nafn er okkur ekki nýtt, þó blaðið sé að vísu nýtt. I fyrra vetur réðust nokkrir nemend- ur skólaus í það að gefa út prentað blað. Þessir nemendur sýndu allir sérstakan áhuga fyrir barattu iðnnema eins og blaðið bar með sér, enda hefði þetta ekki verið kleift fyrir ör- fáa nema ef ekki hefði verið sérstak- ur áhugi og vilji annarsvegar. Þessir nemendur sáu hvílík nauðsyn var á því að nemendur gæfu út sitt eigið blað framvegis, og var þá vitanlega sjálfsagt að málfundafélagið gæfi það út. Var þetta samþykkt á félagsfundi og var félaginu heimilað að nota þetta nafn, Iðnneminn, af fyrri útgef- endum blaðsins. Þetta er stórt spor í áttina til aukinnar baráttu fyrir hags- munamálum iðnnema, en við verðum líka að notfæra okkur þetta vopn, sem við höfum fengið. Við verðum að fá sem allra flesta nemendur til að skrifa í blaðið, fá alla nemendur til að lesa það og styrkja á einn eða annan átt, til þess að það geti orð- ið sem skæðast vopn í þeirri baráttu sem við eigum framundan. Ritstj. Iðnnámslagafrumvarpið. Við iðnnemarnir erum sá hluti verklýðsæskunnar, sem auðvaldið leikur einna harðast. Viðhafa þeir alveg sérstaka að- ferð til þess, nefnilega með hinum svívirðilegu einkasamn- ingum, sem gera meisturunum kleift að arðræna nemendur jafn svívirðilega og við allir þekkjum. Það er vitanlegt að þegar meistari ræður til sín nemanda gerir hann það með það eitt fyrir augum að nota hans ódýra vinnuafl, en alls Hvað er það, sem sérstaklega einkennir iðnnrm hér á íslandi? Jú, langur vinnutími og óraun- hæf mentun. Það sem hlýtur að vera aðalatriðið þegar um iðnnám er að ræða, er það að iðnneminn læri iðnina, en slíkt er ekki lögð nein sér- stök áhersla á, heldur liitt að nota hið ódýra vinnuafl, iðn- nemans, sem lengstan tíma dagsins. Ef hér væri um raun- verulegt nám að ræða væri hinn raunverulegi vinnutími ekki lengri en 7—8 stundir á dag að meðtöldum skólatíma. Fjöldinn allur af nemendum og öðrum ályktar þannig: að skólatíminn sé ekki vinnutími. Þetta er rangt, vegna þess að ekki til að kenna honum iðnina. Við vitum líka hve gíf- urlega er gengið á rétti okkar á öllum sviðum. Við erum látnir vinna við allskonar skít- verk 9 og 10 tíma á dag, og ekki nóg með það heldur verð- um við í 7 mánuði ársins að sitja á glerhörðum skólabekk 2—4 stundir í ofanálag. En hver eru svo launin fyrir þessa miklu vinnu? Jú, launin eru þau að við getum ekki fætt okkur af þeim í mörgum til- fellum hvað þá klætt okkur eða veitt okkur annan «óþarfa» eins og meistarinn orðar það. Þetta hefir þær afleiðingar að það er ekki síður þreytandi að sitja á skólabekknum eftir langan og erfiðan vinnudag, heldur en að vinna erfiða vinnu, því að það vitum við að vinnan hjá okkur iðnnem- unum er erfið og i raun og veru er ekki hægt að kalla hana nám. Og það vitum við að skólanámið er einn meginliður- inn í því starfi, sem við leggj- um á okkur til þess að við getum orðið iðnaðarmenn. Hvers eigum við þá að gjalda, þegar verið er að teygja skóla- tímann fram eftir öllu kvöldi. Eins og við vitum, þá skeði sú nýlunda í haust þegar Iðnskólinn byrjaði að kenslu- stundirnar voru færðar fram á við verðum að vera upp á blá- fátæka foreldra eða aðra að- standendur komnir að meira eða minna leyti. En hvaða af- leiðingar hefir þetta svo á sál- arlíf óþroskaðra unglinga? Slík- ur þrældómur sem þetta leiðir það af sér, að nemendur sem leggja út í að nema einhverja iðn, fullir af starfsgleði og á- huga fyrir að vinna verk sitt, verða fljótt niðurdregnir og andlega lamaðir. En þá kemur kallið, stéttarmeðvitundin kem- ur fram í dagsljósið skýrt og greinilega, þá finnur neminn fljótt hver tilgangur meistarans var, þegar hann réðist til hans,

x

Iðnneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.