Iðnneminn - 01.11.1935, Blaðsíða 1
j/DNNEMINN,
3. árgangur
Nóvember 1935
1. tölublað
VSkrifið í
I Iðnnemaun!
Útbreiðið
Iðnnemann!
Avarp.
BlaðiS okkar, Iðnneminn, seni nú
er að liefja göngu sína á þessu ári,
er ekki gefinn út i pólitískum til-
gangi, eins og flest önnur blöð, held-
ur til Jjess að nemendum innan Iðn-
skólans og meðlimum Málfundafé-
lagsins, gefist kostur á að láta i ijos
skoðun sina í ýmsum málum, og þá
á þeim helst, sem við kemur iðngrein
þeirra. — Það hefir hingað til verið
svo, að treglega hefir gengið að fá
iðnnema til að skrifa í blaðið og hafa
oflast þeir sömu orðið fyrir því.
En svo má ekki lengur ganga.
Það verða sem flestir að skrifa í
blaðið og vinna að útbreiðslu þess á
allan hátt, bæði með því að kaupa
það og lesa og fá aðra til þess.
Einnig verðum við að hafa það
eins skemmtilegt og fjölbreytt sem
við höfum möguleika á, t. d. með því
að skrifa í það skemmtilegar sögur,
kvæði og skrítlur.
En fyrst og fremst verður það fyrir
greinar sem snerta haráttu og kröfur
iðnnema, og það á að vera þannig úr
garði gert, að Iðnneminn verði fram-
vegis öflugur málsvari okkar allra,
iðnnema.
G. G.
Málfundafélagid.
. Ennþá hefjum við iðnnemar nýtt
starfstímahil innan Iðnskólans, og
her okkur að sækja það af miklu
kappi. En sú hlið skólamálanna, sem
við verðum að leggja einna mesta
áherslu á, eru einmitt félagsmálin.
Reynsla liðinna ára, hefir sýnt okk-
urbótum á Jiessari löggjöf, tökum
eftir því.
Okkar háttvirtu þingmenn þurfa
ekki að ættla, að það liafi verið að-
alatriði fyrir okkur, að frumvarpið
væri flutt á Alþingi. Það er öðru nær,
það var aðeins fyrsta sporið. Aðal-
atriðið var, er og verður það, að
samþykkt verði á Alþingi lög um
iðnnám er tryggi iðnnemum á kom-
andi tímum viðunandi launakjör,
sjúkdóms- og slysatryggingar með-
an á náminu stendur.
Við krefjumst þess vegna, að
frumvarpið verði tekið fyrir á Al-
þingi þegar í stað, og að tillit verði
tekið til breytingartillaga, er við
sendum Alþingi við frumvarpið. Og
við krefjumst þess ekki aðeins, að
það verði tekið fyrir, en einnig að
það verði samþykkt sem lög, áður en
þingi verður slitið.
Nefnd sú, er kosin liefir verið í
málfundafélaginu, til þess að hafa
forustuna í þessu máli verður að
ganga vel fram í trausti þess, að liún
hefir allan fjölda iðnnema að baki
sér. Því að þetta stærsta hagsmuna-
mál iðnnema á komandi tímum
knýjum við fram, með samfylkingu
allra iðnnema og aðstoð annara
verkamanna.
Ó. G.
Hvað dvelur
Iðnnámslagafrumvarpið ?
Nú eru liðin nærri þrjú ár, síðan
Málfundafélag Iðnskólans í Rej’kja-
vík hóf haráttu sína, fyrir nýrri iðn-
námslöggjöf. Félagið gekkst fyrir
samningu iðnnámslagafrumvarps og
gerði síðan tilraunir til að fá það
flutt á Alþingi, en þær tilraunir báru
ekki tilætlaðan lárangur. Háttvirtir
þingmenn héldu því fast fram, að
ekki kæmi tilmála að Alþingi sam-
þykkti slíkt frv., en fyrir þá sök
vildu þeir ekki laka að sér að flytja
það.
Þessi mállalok vildu iðnnemar ekki
sætta sig við, heldur héldu áfram til-
raunum sínum til að fá frumvarpið
flutt á Alþingi. Árangiurinn af þess-
ari þrautseigju varð að lokum sá, að
Emil Jónsson alþingismaður samdi
nýtt frumvarp til laga um iðnám, —
það var á síðastliðnum vetri. —
Þetta frv. liefir án efa verið samið
með það fyrir augum að það fengist
samþykkt á Alþingi.
Frumvarpið flutti Emíl svo á þingi,
en með það fór á sama veg og fjölda
mörg nauðsynja mál önnur: „Það
dagaði uppi“! Flutningsmaður virt-
ist samt telja sjálfsagt, að það yrði
tekið fvrir aftur, strax þegar þing
kæmi saman í haust.
Nú hefir Al])ingi setið alllengi, svo
sem öllum er kunnugt, en livar er
iðnnámslagafrumvarpið? Er það
slitnað aftan úr frumvarpalest
þeirri, sem tilheyrir Alþingi? Það
gæti vafalaust átt sér stað, þess gæt-
ir varla mikið þó eitt og eitt týnist
úr lestinni, ekki er liún svo stutt.
Það verða þess ef til vill fáir var-
ir, að frumvarpið liefir ekki komið
fram á þinginu i haust, en við iðn-
nemar, sem höfum barist fyrir end-