Iðnneminn - 20.12.1952, Side 10
Látin kona vinnur heimilisstörf
Það eru rúmlega tuttugu ár síð-
an sá atburður gerðist er nú mun
greint frá:
Það var bjartan sumarmorgun,
að maður nokkur kemur á bæ einn
á suðurlandi og kveður dyra. Hús-
bóndi kemur til dyra og heilsar
komumaður og spvr, hvort bóndi
vilji ekki ráða til sín stúlku til vet-
urvistar.
Bóndi hafði einmitt hugsað sér
að ráða til sín stúlku yfir vetrar-
mánuðina og tekur því boði komu-
manns vel. Komumaður spyr hvort
hann vilji ekki grciða honum helm-
ing af vetrarkaupi stúlkunnar, þar
eð hún sé í fjárþröng. Féllst bóndi
á þetta og greiðir komumanni
kaupið og kveðjast þeir síðan.
Líður nú frarn á haust og ber
ekkert markvert til tíðinda. Svo
•er það kvöld citt, að úti er kol-
dimmt, rok og rigning. Bóndi er
að lesa í bók en konan situr með
prjóna sína. •— Er þá barið að dyr-
um. Fer bóndi þá frarn og opnar.
Sér hann þá að komin er stúlka
sú, er hann hafði þá um sumarið
ráðið til sín, til vetrarvistar.
Fagnar bóndi stúlkunni og vísar
henni til herbergis síns. Var stúlka
þessi öll hin myndarlegasta, en þó
þótti bónda hún undarleg í fram-
kornu, þar eð hún mælti ekki orð.
Furðaði bóndi sig á þessu en fékkst
þó ekki um. Líður svo af nóttina.
En um morguninn þegar stúlkunn-
ar er vitjað finnst hún hvergi og
engin merki þess, að hún hafi sofið
í herberginu um nóttina.
Undruðust menn þetta mjög. En
upp frá þessu tóku að gerast marg-
ir kynlegir hlutir á heimili þeirra
hjóna. Bar svo við, að eitt sinn
gleymdi húsfreyja að taka inn
þvott er hún hafði úti til þerris og
um nóttina rigndi, en um morgun-
inn er þvotturinn allur kominn inn
og hengdur á snúru.
Á þessu fundust engar skýringar.
Þá kom það iðulega fyrir, að er
húsfreyja kom á fætur að rnorgni
voru gólf þvegin og sópuð og ýms-
ir hlutir er hrevfst höfðu úr stað
voru komnir á réttan stað nokkrtl
seinna. Virtist bónda sem öll heim-
ilisstörfin ynnust mun betur en
áður.
Þótti öllum er fréttu af atburð-
um þessum þeir all kynlegir. •—
Fannst bónda hann hafa verið
leikinn grátt, af komumanni er
hann réði til sín stúlkuna um sum-
arið. Heldur hann miklum spurn-
um fyrir um stúlku þessa. Og
fréttir hann um síðir að umrædd
stúlka hefði látist þetfa sama sum-
ar. —
Hefur það verið skoðun manna
síðan að stúlkan hafi komið á bæ-
inn á þeim degi er hún hefði átt
að hefja störf sín hjá bónda og
viljað þannig standa við þann
samning er komumaður hafði gert
við bónda um sumarið og unnið á
þennan hátt fyrir kaupi sínu.
Af komumanni hefur aldrei
spurst síðan.
Saga þessi hefur aldrei birst áður, en er
skráð eftir munnmælasögnum.
Af opnun Berlínarmótsins 1957.
10
I Ð N N E M I N N