Iðnneminn


Iðnneminn - 20.12.1952, Qupperneq 11

Iðnneminn - 20.12.1952, Qupperneq 11
EiNAR H. GUÐMUNDSSON: Hvernig eru kjör iönnema í dag? Krafa iðnnema er sú, að allir iðnnemar, í hvaða iðnstétt sem er, geti lifað mannsœmandi lífi ú meðan námstími þeirra stend- ur yfir. Samkvæmt þessu ættu því lágmarkslaun iðnnema að vera nú á fyrsta ári 40%, öðru ári 50%, þriðja ári 60% og fjórða ári 70% af kaupi sveina. En ef laun iðnnema eiga að vera jafn smánarleg og verið hefir nú undanfarin ár, þá ættu allir meistarar að hætta að taka iðnnema til náms. Það virðist engum takmörkum sett, hvað meisturum og öðrum atvinnu- rekendum sé leyfilegt að troða á og kúga lægst launuðu stétt landsins. Hafa þessir menn engar mann- legar tilfinningar til að bera, eða hvað? Peningavaldið hefur gert þessa menn að þrælum sínum, svo að þeir hvorki sjá né eru dómbærir á, hvort það er nótt eða bjartur dagur, og því síður hvort það sé rétt eða rangt, sem þeir fara með. En eins og laun iðnnema eru nú, þá endast þau ekki fyrir brýnustu nauðsynjum, eins og t. d. fæði og húsnæði, enda eru flestir iðnnemar með fleiri þús- und króna skuldir á baki sér, þegar þeir loksins eftir 4 löng og erfið ár ljúka námi. Ég tel það vera algeran óþarfa að koma hér með dæmi máli mínu til stuðnings, því að það vita allir, sem eitthvert gripsvit hafa, að laun iðnnema hér á landi, í samanburði við aðrar þjóðir, eru svo smánarlega lítil og skammarleg, að það er ís- lenzkum stjórnmálaflokkum og atvinnurekendum til verulegrar og ævarandi skammar, hvernig þeir hafa farið með lægst laun- uðu stétt landsins. Enda treysta sér nú orðið engir til þess að hefja iðnnám, nema ef hægt er að komast til náms hjá viðkom- andi meistara með sérsamning- um, sem er helzt hægt í gegnum einhverja klíku, eða hafa 30—40 þúsund krónur að bakhjarli, þegar námið hefst, og svo mætti lengi telja. En efnalitlum piltum, sem enga eiga að, með litla eða enga fjár- getu,er algerlega meinað að hefja eða geta stundað iðnnám, þó þeir hafi mikla löngun og hæfileika til þess, og munu áreiðanlega í mörgum tilfellum vera miklu betri hæfileikamenn en þeir pilt- ar, sem komist hafa að námi með þessa klíkusamninga, en það eru undantekningarlítið aðeins synir atvinnureJcenda, meistara og annarra broddborg- ara. En því miður, þótt leitt sé frá því að segja, þá hafa hinir efna- litlu piltar orðið að gjalda þess grimmilega, hvað þessir stéttar- bræður þeirra hafa haft miklu betri kjarasamninga, og ekki sízt hvað kjör þeirra hafa verið mis- jöfn. Mun ég nefna hér dæmi, þessu til stuðnings, sem mun vera mjög algengt. Þessir iðn- nemar eru öllum iðnnemum í heild hættulegir; þeir reyna að eyðileggja allan sameiningar- mátt iðnnema, félags- og kjara- baráttuviðleitni okkar. Ég hef heyrt því víða slegið fram af at- vinnurekendum og fleirum, sem taka afstöðu til þeirra, að iðn- nemar láti allsstaðar sjá sig á skemmtunum og öðrum manna- mótum, talsvert undir áhrifum áfengis og mjög oft ofurölva, bæði sér og sínum stéttarfélög- um til skammar. Og hafa bæði meistarar og aðrir áhangendur þeirra bent á þetta og vilja halda því fram, að á meðan að iðnnemar geta veitt sér slíkt, þá þurfi þeir engar kauphækkan- ir né aðrar kjarabætur. En þá vil ég benda þessum góðu mönnum á þá staðreynd, sem vart verður hjá komist og er óhrekjanleg, að ef svo er, þá eru það yfirleitt aðeins þeir pilt- ar, sem hafa þessa klíkusamn- inga og synir ýmissa atvinnu- rekenda eða broddborgara þjóð- félagsins, um hina getur tæp- ast verið að ræða, því þeir hafa alls engin efni á að veita sér slíkan ósóma. En ef einhver vildi segja sem í IÐNNEM9NN ii

x

Iðnneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.