Iðnneminn


Iðnneminn - 20.12.1952, Síða 13

Iðnneminn - 20.12.1952, Síða 13
4. námsár. Kostnaður vegna nemanda kr. 21.132.56. Söluverð seldrar vinnu .... 40.953.60 Gjöld ..................... 21.132.56 Tekjur meistara kr. 19.821.04 Gróði meistara af einum nemanda í fjögur ár er því kr. 85.382.68. Það er ekkert að furða þó að meistari sækist eftir að taka eins marga nema og þeir frek- ast leyfa sér samkvæmt lögun- um. Það er dýrkeypt að vera námsmaður í fjögur ár hjá þess- um fyrirtækjum og geta svo átt von á því að vera sagt upp vinn- unni strax þegar námi lýkur. Það undrar áreiðanlega eng- an, þó að hin stóru fyrirtæki séu voldug og auðug, þar sem eru 40—60 nemar við nám, og orka þeirra er notuð í gróða skyni fyrir fyrirtækið, eins og t. d. margar hverjar smiðjurnar hér í bæ, þar sem hagnaður af nem- endum myndi gera, miðað við 40 nemendur, á ári kr. 3.415.307.20. Svo má geta þess hér, að end- ingu, að meistarar láta ekkert tækifæri ónotað að taka nema til náms og hafa venjulega fleiri nema en lög gera ráð fyrir, og hámarki þesss er náð, þegar nemi hefur lokið sveinsprófi, að honum hefur verið sagt upp og nýr nemi tekinn í staðinn, því að meisturunum þykir of lítill gróði vera af vinnu sveinsins, sem renni í hans vasa. Þetta og þessu líkt er mjög algengt, í framkomu meistarans í garð nemans. Það er þó hægt að segja með sanni um meistarana, að mikl- ir öðlingar eru þeir. Þrátt fyrir að hafa einn æskumann í vinnu í fjögur ár og hið gífurlega fjár- hagslega tjón, sem af því leiðir að hafa hann, láta þeir þó ekk- ert tækifæri ónotað til að hafa þá svo marga sem framast er leyfilegt, og stundum rúmlega það. Og þrátt fyrir dugmikla getu sveinafélaganna, stuðning og baráttu fyrir bættum kjörum iðnnema, þverskallast meistar- ar og aðrir atvinnurekendur við að taka kröfur iðnnema til greina. Og ég vil leyfa mér, fyrir hönd allra iðnnema í landinu, að þakka innilega allan þann stuðning og fórnfýsi, sem sveina- félögin og allir velunnarar þess hafa sýnt iðnnemum í heild. JÓLAKVÖLD iðnnemans Eg ráfaði um miðbæinn. Það var ískald- ur næðingur og mér kólnaði fljótt. Ég reyndi að verjast kuldanum með því að bretta upp jakkakragann. Allir virtust flýta sér, því í dag var aðfangadagur jóla. Allsstaðar voru uppljómaðir búðarglugg- arnir og búðirnar fullar af fólki í við- skiptaerindum. Það fór sársauki um huga minn, þegar mér varð hugsað til jólanna heima í sveitinni minni, hjá pabba og mömmu. Minningarnar rifjuðust upp, gleði mömmu, þegar ég gaf henni stóru kristalskálina, og litla systir mín, sem mér þykir svo vænt um. Það er sorglegt að eiga engan eyri til þess að gleðja þau heima um jólin. Ég kreisti hendina utan um síðasta tí- kallinn minn, opna dyrnar á Brytanum, sezt við barinn og bið um hálfan skammt af mat. Síðan borga ég matinn og geng út. Þar fór minn síðasti eyrir. Hitt fór í herbergisleikuna og skatta. Vonandi að Siggi gæti lánað mér fyrir mat yfir jólin. Það var farið að snjóa og ég flýtti mér heim í litla súðarherbergið mitt. Ég sópaði gólfið og hengdi upp litla jólatrésgrein, sem ég fann á götunni á leiðinni heim. Þannig bjóst ég til að halda jólin mín. £g settist á dívaninn, og hugur minn fylltist einmanaleika. Gluggarnir á hús- unum í kring voru allir uppljómaðir, byrjað var að kveikja á jólakertunum. í fjarska heyrðist ómur kirkjuklukkn- anna ....... Og seint gleymast jólin mín. Nýtízku rennibekkur, byggður sem snittvél og rennibekkur. IÐNNEMINN 13

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.