Iðnneminn - 01.04.1953, Qupperneq 3
Ritsljóri og óbyrgðarmadur:
EFLUM SAMTÖK OKKAR
Stjórn F. I. V. talið frá vinstri: Ingólfur Á. Ingólfsson, ritari, Garðar Júlíusson.
formaður, Erling Ágústsson, gjaldkeri, Hafsteinn Hjartarson, meðstjórnandi.
Kæru félagar!
I þetta blað, sem nú kemur ykk-
ur fyrir sjónir, hefur Félag iðn-
nema í Vestmannaeyjum safnað
efni í. Ástæðan fyrir þessu er sú,
að formaður I.N.S.Í. kom til Eyja
til skrafs og ráðagerða við stjórn
félagsins. Þá talaðist þannig til, að
félagið tæki að sér að safna efni
og auglýsingum í fyrsta blaðið eft-
ir áramót.
Þetta mun vera einn þáttur í
viðleitni sambandsins til þess að
stuðla að auknu starfi félaganna
úti á landi og er það vel.
Það verður einnig til þess, að fé-
lagarnir verða þá ekki eins og hlut-
lausir leikmenn, gagnvart því, sem
er að gerast í hagsmunamálum
okkar, heldur kynnast af eigin raun
því starfi, sem framkvæmt er.
Einnig munu ferðir sambands-
stjórnarmeðlima út um land hafa
góð áhrif á félögin.
Þeir gætu skipulagt starfið með
stjórnum félaganna, og kæmust þá
jafnframt í kynni við sjónarmið
félagsmanna þessara félaga.
Vonandi sjá sambandsstjórnar-
meðlimir sér fært að heimsækja
flciri félög út unr land, og aðstoða
við stofnun iðnnemafélaga á þeim
stöðum, þar sem ekki eru félög, og
fá þannig alla iðnnema til þess að
skipa sér undir merki Iðnnema-
sambandsins.
Á Akureyri mun t. d. ekki vera
iðnnemafélag og er það merkilegt
í næst stærsta bæ landsins. En von-
andi cr þess ekki langt að bíða, þar
til þar verður stofnað félag meðal
iðnnema.
Eitt af því, sem gerir þeim, sem
safna efni í þetta blað, erfitt fyrir
er það, hversu fáir iðnnemar fást
til að skrifa í blaðið, og þar af leið-
andi lendir mest á fáum mönnum
allur undirbúningur.
Þetta er ekki rétta leiðin til þess
að viðhalda áhuga þeirra manna,
sem eitthvað vilja gera. Þvert á
móti drcpur það niður áhugann
hjá þeim, og leiðir það af sjálfu
sér, þegar þeir sjá að félagarnir
vilja lítið sem ekkert á sig' leggja.
★
Síðasta ár var fremur viðburða-
lítið hjá okkar félagi hér í Eyjurn
og er þar um að kenna áhugaleysi
félagsmanna. Boðaðir voru nokkr-
ir fundir, en oft var ekki fundar-
fært sökum ónógrar fundarsóknar.
M. a. var þrisvar boðað til aðal-
fundar og í þriðja skipti tókst að
halda fundinn og voru þá allflestir
félagsmenn mættir.
Átti aðalfundurinn að vera í
febrúar samkvæmt félagslögum, en
var haldinn síðast í október.
Á þessum fundi var kosin ný
stjórn. Hennar fyrsta verk var að
fá hingað formann I.N.S.Í. og ræða
við hann um hin ýmsu vandamál,
sem steðja að. Gaf hann okkur ýms
góð ráð og hvatti okkur til meiri
starfa. Hafa síðan verið haldnir
nokkrir fundir við allsæmilega
fundarsókn, og er það markmið
stjórnarinnar, þegar hún hefur
lokið við að safna efni í þetta
blað, að þá verði haldnir fræðslu-
og skemmtifundir, og verði áhugi
fyrir slíku, þá mun reynt að halda
því áfram eitthvað frarn eftir
vetri.
Hafa nokkrir iðnaðarmenn hér
IÐNNEMINN
3