Iðnneminn - 01.04.1953, Side 4
★ ★ ★
um ★
★ ★
★
Ég hafði veitt henni athygli
strax við fyrstu sýn, en hvað mér
fannst við hana, vissi ég ekki.
Hún var ósköp lík öðrum stúlk-
um, sem ég sá daglega, en samt
var það eitthvað í fari hennar, sem
ég gerði mér ekki ljóst hvað var,
sem hreif mig og fékk mig til þess
að þrá hana og tilbiðja. Voru það
svörtu, stingandi augun, litlu,
mjúku handleggirnir eða rauðu,
bungandi varirnar? Ég vissi það
ekki.
Ég vissi bara að ég elskaði hana
svo óumræðilega mikið, og nú var
hún mín.
Hún, sem ég þráði, elskaði mig
líka, en samt var eitthvað að.
Ég virði fyrir mér nakinn lík-
ama hennar. Er þetta líkami full-
þroskaðrar konu, sem hefur not-
ið lífsins með karlmanni?
Nei. Þetta er saklaus líkami 16
ára barns. Barns, sem nú i fyrsta
skipti hafði elskað.
Ég minntist orða hennar fyrr um
kvöldið. „Kysstu mig, ástin mín,
ég elska þig og hef aldrei elskað
neinn nema þig. Þú ert svo góð-
í bænum lofað að koma á fundi
hjá okkur og flytja fræðsluerindi
hver í sínu fagi. Óskandi er, að
gott samstarf takist milli félags
okkar og iðnaðarmanna hér.
Gætu slíkar heimsóknir iðnaðar-
manna til okkar orðið til þess, og
einnig ef iðnaðarmenn byðu iðn-
nemum að koma á fundi til sín,
þar sem nemarnir gætu fræðst um
sitt hvað.
Einnig mætti koma á spurninga-
þáttum milli sömu aðila. Hefur það
verið reynt í Reykjavík og reynst
vel.
Með stéttarkveðju.
E. h. stjórnar F. í. V.
Garðar Júlíusson.
SMÁSAGA
Saga sú, er hér birtist, er eftir
ungan Vestmannaeying-. Hafa
nokkrar sögur birzt eftir hann í
tímaritum og hlotið mjög sæmi-
lega dóma.
ur og nú vil ég lifa og vera alltaf
hjá þér“.
Hún talaði um allt milli him-
ins og jarðar, um heimilið okkar
og fallega, litla strákinn, sem hún
vildi eiga. „Barnið okkar,“ hvísl-
aði hún. „Ó, hve þá verður gam-
an að lifa.“
Henni var alveg sama hvað aðr-
ir sögðu um mig, þótt sagt væri,
að ég væri drykkjumaður og róni,
sem væri með öllum stelpum, sem
ég gæti.
Hún trúði engu Ijótu um mig.
Að lokum hafði hún sofnað með
litlu, mjúku handleggina um háls
minn.
Ég fann hvað andardráttur
hennar var léttur og reglulegur.
En elskaði ég þessa fallegu, sak-
lausu stúlku, sem hvíldi svo ánægð
í faðmi mínum? Já, svo innilega
elskaði ég hana, að öllu hefði ég
viljað fórna hennar vegna.
En innst í hugarfylgsnum mín-
um var rödd, sem hvíslaði: Þú
verðskuldar hana ekki. Þú ert ekki
maður til að fullnægja kröfum
hennar. Hún, sem er saklaus og
góð, en þú fyllisvín og róni. hefur
lifað og daðrað við giftar konur og
ungar, saklausar stúlkur! Ó, þessi
rödd lét mig aldrei í friði.
Ég þrýsti henni að mér með
miklum ákafa, ó, ég gat ekki svik-
ið hana. Skyndilega grípur hún
um handlegg minn og segir: „Ertu
að fara? Nei, farðu ekki strax, mér
leiðist einni.“
Er hún snerti mig, var líkt sem
rafstraumur færi um mig allan. Sá
litli vottur, sem ég var búinn að
safna af vilja, gufaði upp sem dögg
fyrir sólu.
Nakinn barmur hennar barðist
lítið eitt, og svörtu, yndislegu aug-
un tindruðu í rökkrinu. Ég laut
niður að henni og kyssti hana. Var-
ir hennar voru mjúkar og rakar,
þrungnar hita og ástríðu, og fann
ég ylinn frá heitum líkama hennar
leggja að mér.
Ég lagði handlegginn yfir um
hana og þrýsti henni að mér.
Lágt andvarp leið frá vörum
hennar. „Ó, elsku vinur, vertu allt-
af hjá mér!“
Ég smeygði mér varfærnislega úr
örmum hennar og settist upp í
rúminu. Við fórum að tala sam-
an og sagði hún mér frá því, að
hún hefði komið hingað til Eyja
fyrir sex vikum síðan, og fyrst í
stað hefði hún verið svo einmana.
Henni fannst Eyjan frekar leið-
inleg. Skemtanalífið þungbúið og
fólkið Ieit niður á sveitamennina,
sem voru komnir langt að, til þess
að sækja björg í bú. Hún vildi hclzt
af öllu fara sem fyrst aftur heim
til sín, í einn vestfirzka fjörðinn,
þar sem foreldrar hennar og svst-
kini voru, því þar hafði hún fæðst
og alist upp.
Það var unaðslegt að hvíla í
örmum hennar, og allt, sem áður
amaði að, var í órafjarlægð. „En
segðu mér eitthvað frá þér,“ bað
hún.
„Ég get ekkert sagt þér, ástin
mín, sem gaman er að heyra, og
nú verð ég víst að fara, því fólk-
ið í húsinu er farið að vakna.“
Ég ætlaði aldrei að geta hætt
að kyssa hana, varir hennar, brjóst
og líkama. „Ó, komdu svo fljótt
Frh. á bls. 6.
4
IÐNNEMINN