Iðnneminn - 01.04.1953, Page 6
A 111 er f a g m ö bi n u m fært
Nótt í Eyjum
Framh. af bls. 4.
aftur, ástin mín,“ bað hún, „ég get
ekki lifað án þín.“
Á þessari stundu hlaut ég að lofa
henni öllu. Ég ætlaði að koma
fljótt aftur og vera alltaf hjá
henni. Grá, ísköld morgunþokan
teygði sig í áttina til mín, er ég fór
frá henni, og hvert átti ég að fara
og hvað átti ég að gera? Átti ég
að bindast þessari ungu stúlku?
Nei, hennar líf var of dýrmætt til
þess að ég eyðilegði það. Nú ætl-
aði ég að gera það, sem ég hafði
svo oft gert áður, hugga mig við
fótstall Bakkusar.
Ég hneppti að mér frakkanum
og gekk hratt heim til konunnar,
sem selur áfengi handa rónunum.
En innst í hugarfylgsnum mínum
var mynd af henni. Ég sá hvar hún
lá á mjúkum. hvítum svæfli, með
yndislegt bros á rauðum vörunum.
Eg sá hvar sætleiki sakleysisins
speglaðist á hinu fagra andliti
hennar. Hún vissi um ekkert nema
fegurð og hreinleika. Allt var gott
í meðvitund hennar.
En úti ríkti kaklur og hversdags-
legur veruleikinn.
Sv. Eg.
Kveðið um Sunnlendinga:
Það var skrítið, sem ég sá
á Suðurlandi núna.
Þegar þeim liggur líjið á
leggja þeir hnakk á kúna.
Skrítla!
Tóti: Mér skilst að það hafi ver-
ið Rússar, sem fundu upp gufu-
vélina, en síðan hafi þeir sent
njósnara út um allan heim, til að
komast að því, til hvers hún væri
notuð.
-2
Rafvirki nokkur var sendur snemma
morguns til þess að setja upp Ijósakrónu í
nýju húsi. Ekki kom hann aftur fyrr en
undir kvöld og voru menn mjög farnir að
undrast um hann. Er hann var spurður
hvernig þetta hafi gengið, sagðist honum
svo frá: Ég gekk beint að því að setja
upp krónuna, eins og lög gera ráð fyrir.
Þegar því var lokið kveikti ég á öðrum
rofanum við dyrnar, en þá kom bara hálft
ljós á perurnar. Ég kveikti nú á hinum
rofanum, en þá dóu öll ljós. „Nú, jæja“,
hugsaði ég. Þeir hafa verið svona klárir,
sem tengdu hér í loftinu. Ég tók síðan
allt í sundur í loftdósinni og tengdi að
nýju. Setti svo nýjar sikringar í og prófaði
aftur, en nú kviknaði bara á einum vegg-
lampa. Það hlaut þvf að vera eitthvað vit-
laust annars staðar.
Við áramót staldra margir, því
margt er að hugleiða, og margt
hægt að segja, en ég ætla að vera
stuttorður eins og sumir ræðu-
menn segja, þegar þeir búa sig
undir að lialda klukkustundar
ræðu, sem tekur svo hálfan ann-
an tíma.
Mikið erum við iðnnemar smáir
í augum þeirra, sem völdin hafa í
voru landi.
Þeir hundsa kröfur okkar og
líta niður til okkar eins og við
séurn að biðja um ölmusu.
En því fer fjarri, við eigum að
fá leiðréttingu á okkar sanngjörnu
kröfum, það cr það sem við vilj-
um, og biðjurn urn.
En við getum bara beðið um
þetta, en ekki gert verkfall. Þar
liggur potturinn brotinn, og það
er einmitt það, sem þessir herrar
vita, og þess vegna segja þeir:
Ég tók nú í sundur í svefnherberginu,
það var vitanlega allt vitlaust, en þegar ég
var búinn að ganga frá því aftur, var dautt
í eldhúsinu og ganginum. Ég fór nú að at-
huga hvort rétt væri tengt í eldhúsinu, og
stóð uppi á eldavélinni. Viti menn: Fæ ég
ekki þetta hrotta stuð í lappirnar, og var
nærri dottinn ofan í vaskinn. Ég sá nú að
engar smávitleysur voru á ferðinni, fyrst
eldavélin var komin inn á ljósakerfið.
Mér tókst að lokum að koma straum á
einn tengil í eldhúsinu og stakk þar í prufu-
lampa, sem ég hafði verið svo forsjáll að
taka með mér.
Ég sagði fólkinu að ég myndi koma á
morgun og kippa þessu öllu í lag, og var
húsmóðirin mér mjög þakklát fyrir það.
„Þetta þýðir ekkert fyrir ykkur að
vera að þessu, það er bara hlegið
að ykkur. Hvað haldið þið að ])ið
getið heimtað, lærlingsræflarnir
ykkar“.
Svona er þetta, við megum ekki
biðja um hærra kaup, til þess að
geta lifað mannsæmandi lífi.
Ég tek hér lítið dæmi.
Maður, sem búinn er að læra
fyrir tveimur árum, sagði mér, að
þegar hann var búinn að læra, þá
hefði hann skuldað röskar 14.000
kr. Meðan á námstíma stóð, eign-
aðist hann konu og barn og til
þess að hann þyrfti livorki að
svelta þau né sjálfan sig, þá þurfti
hann að taka lán á lán ofan um
hver mánaðarmót, og það safnast
þegar saman kemur, segir mál-
tækið.
Og nú fyrst eftir erfið tvö ár
frá þeim tíma, sem námi lauk, þá
skuldar hann enn 3000 krónur.
Þetta er staðreynd, sem talar
sínu máli.
Með stéttarkveðju.
Hafsteinn Júliusson.
(Úr Tímariti rafvirkja).
Áramótahugleíðing
iðnnema
6
IÐNNEIVIINN