Iðnneminn


Iðnneminn - 01.12.1954, Blaðsíða 4

Iðnneminn - 01.12.1954, Blaðsíða 4
4___LÐ_N-N-E_M_I_N_N Iðnneminn Málffasn Iðnnemaaambands íslanda. Ritnefnd: Klemens Guðmundsson, ritstjóri, Ólafur Davíðsson, Björn Ásgeirsson, Guðjón Ólafsson, Benedikt Bjarnason. PRENTSMIÐJAN EDDA H.F. V__________________________y Lélegur iðnaður Það verður að teljast eðli- leg þróun hvað iðnaður okk- ar Islendinga vex hröðum skrefum, því að verkefnin á þeim vettvangi mega heita ótæmandi. En til þess að iðn- aður okkar fái staðizt sam- keppni við iðnað annara þjóða þarf hann að eiga sér heilbrigðan grundvöll. Eitt höfuðskilyrði hans er að fólk- ið, sem að framleiðslu iðnað- arvarnings vinnur, hljóti til- hlýðilega menntun. En ef við nú skyggnumst ofurlítið til há komumst við strax að því, að óskaplegur misskilningur ríkir meðal þeirra manna, sem þessum málum stjórna. Eitthvað það geigvænlegasta spillingarfen, sem sögur fara af í okkar litla þjóðfélagi er einmitt staðsett í uppfræðslu iðnaðarfólks. Misskilningurinn er vitan- lega byggður á skefjalausri fjárplógsstarfsemi, sem rekin er fyrir allra augum á kostn- að alþjóðar og þó fyrst og fremst á kostnað fólksins sem iðnnám stundar. Allir skyn- samir menn hljóta að sjá þá rányrkju, sem fram fler á kröftum þjóðarinnar með þessu ráðslagi. Fólkið, sem á að vera að læra, fer á mis við þá fræðslu sem það á heimtingu á og hefur brýna þörf fyrir. Þess í stað er það hneppt í spennitreyju félags- le?ra takmarka o* sogskálar aurasjúkra sálna eru látnar standa á því. Afleiðingarnar verða: Lélegur og ósam- keppnisfær iðnaður samfara veilum í skapgerð og hugs- anagangi margra þeirra, sem fyrir ofbeldinu verða. Það er vissulega bágt til þess að vita að þeir upp- vöðsluseggir, sem með þessi mál fara, skuli hafa þessi tök á æskufólki þjóðar, sem vill láta kalla sig menningarþjóð. Iðnnemar! Munið að þið voruð iðnnemar, þegar þið komið í raðir sveina. Með bví verður árangur af baráttu okkar bezt tryggður. Ennfremur skorum við á alla þá menn og konur, sem eiga mannlegar tilfinningar, að veita okkur lið í baráttu okkar fyrir að verða viður- kenndir sem hluti af þjóðinni og bá um leið eigendur að sömu réttindum og aðrir gild- ir þjóðfélagsþegnar. — Ó. D. Meira lið — algjör sigur Barátta okkar iðnnema er ótrúlega hörð, þegar miðað er vSð það, sem barizt er fyr'r, en það eru frums^æðustu maun- réttindi: f okkur og á, auk andlegs frelsis og uppfræðslu. Eitt er það, sem ekki er trúlegt, en það er að nokkur iðnnemi geti staðið utan við þessa baráttu, enda þótt hann hafi kannske eitthvað hærra kaup en allur fjöldinn hefur undir sömu kringum- stæðum. En raunin er samt sú að fjölmargir iðnnemar eru algjörlega utangátta í hessu tilliti, að ekki sé meira sagt. Eins og allir vita er hvers- kyns barátta háð krafti, sem Ieystur er úr læðingi. Hitt er svo annað mál, hvort um- ræddur kraftur er fyrir hendi í einstökum tilfellum. Við göngum samt ekki að því CjMrct í AcUkihi Ég sat frammi í þvottakompu og rétti nagla í óða önn. Bökunar- ilmurinn úr eldhúsinu leyndi sér ekki lengur. Mig var sannast að segja farið að dauðlanga í lumm- urnar, sem voru að vígbúast í hönd- um konu minnar. Ég hugsaði þeim gott til glóðarinnar ásamt nýlöguðu kaffinu. Mitt í þessum hugleiðing- um mínum kom fyrir óvænt óhapp. Eg hélt nefnilega sjálfur á naglan- um, sem ég var að rétta og þess vegna hafnaði eitt misheppnað högg, sem að vísu var ætlað naglanum, á einum fingri vinstri handar minn- ar. Eftir örfáar sekúndur hafði ég lokið við að þylja töluvert hrafl blótsyrða, sem ég hef að sjálfsögðu kunnað áður. Að minnsta kosti spurði konan mín, sem nú var kom- in til mín og hélt á hamrinum, sem ég á einhvern hátt hafði losað mig við, hvað gengi á. Ég stóð upp og hélt inn í eldhús, skrúfaði frá krananum og svo framvegis Konan helti kaffi í bollana, sem voru til reiðu á borðinu ásamt kúf- uðum diski af lostætum lummum. Fleira var og á borðinu, sem ómiss- andi þykir við slíka athöfn, sem í hönd fór, að aflokinni rannsókn á meiðslum mínum. Okkur kom sam- an um, að það mundi vera merki trésmiða, sem ég hafði hlotið á þumalputta vinstri handar. Eftir að ég hafði etið nægju mína af klöttum og ég var að kveikja í pípunni minni yfir seinni bollan- um, bað frúin mig að skreppa fyrir sig í búðina. Hún taldi að ég hefði gott af að rétta úr bakinu svolitla stund. Ekki hreyfði ég mótmælum, enda þótt ég búi ekki við konuríki. Þegar ég kom að dyrum verzlun- arinnar, varð ég þess áskynja, að ekki myndi það verða nein smá stund þar til ég yrði á heimleið aft- ur. Búðin var full af fólki. Mest bar á konum. Ég tróð mér inn- fyrir hurðina og bar höfuðið hátt, — það er að segja, nokkuð hátt, miðað við kvenfólk. Ég sá annan afgreiðslumanninn greinilega, þar sem hann var að taka niður vefnaðarvörustranga og allskyns fatnað, til að sýna konu einni. Önnur kona sagði ljótt við það tækifæri. I hljóði var ég henni hjartanlega sammála. Mitt í þessum þrengslum var ég jafnvel farinn að gruna konu mína um græzku. Hún vissi sjálfsagt hvaða þýðingu það hafði að fara út í búð á laugar- dagsmorgni. Aðspurð fullyrti hún samt, að ekki hefði neitt búið und- ir klattagerðinni, sem miðað hefði að því að plata mig til kaupferðar. Geysistór kvenmaður, sem var í þann veginn ag leggja af stað frá af- greiðsluborðinu, tróð nú óvægilega ofan á annan fót minn. Ekki hafði hún sýnilega meðaumkun með mér, heldur sneri hún máli sínu beint til guðs og spurði all hávær hvort hún hefði stigið á hans tær. Við þau mistök, sem frúin tók, og þau at- lot, sem ég varð fyrir af hennar fótum, varð ég að baráttumanni og hlaut að launum töluverðan hluta af því rúmi, sem hún hafði tekið við borðið. Meðan ég beið þarna við borðið, veitti ég nokkrum smástrákum at- hygli og hafði gaman af. Þeir virt- ust hafa sérstakan áhuga fyrir snotrum smátölum úr plasti, sem voru með ýmsum dýramyndum. Tölurnar voru íestar á spjöld, sem voru í kassa á borðinu. Einn drengjanna spurði hina hvað þeir álitu að svona tölur kostuðu. Lítill snáði saug hressilega upp í nef sitt og stakk síðan upp á fimmtíu aur- um. Annar taldi það ekki á rökum reist. Því til sönnunar sagði hann, að mamma sín hefði keypt svona tölur á peysuna hennar Lillu um daginn og þær hefðu kostað tvær og fimmtfu hver. Hinir drengirnir störðu sínum björtu augum á hann. Við þessu var víst ekkert að segja. Þeir litu á tölurnar aftur og sýni- lega fannst þeim meira til þeirra koma en áður. Næsti ræðumaður vék ekki orði að verðinu að fengn- um þessum upplýsingum. Hann taldi gruflandi, að sá kraftur er til einmitt hjá okkur. Hugsum okkur virkilega samstöðu allra iðnnema á Is- landi. Ilvílíkt reginafl væri bað ekki? Við myndum hafa möguleika til að hrinda því oki, sem hvílir á okkur í dag. Hví þá ekki að gera það? Enda þótt samtök okkar iðnnema séu alltaf að styrkj- ast bá fer sú þróun alltof hægt. Við gætum vissulega átt mikið öflugri samtök, ef á- hugi allra iðnnema væri vak- inn. En því miður þá sofa margir á verðinum. Það er orðið verkefni fyrir stjórn I.N.S.l. að stuðla að endurreisn félaga, sem oltið hafa og lognast út af, og stofna ný félög. Stjórnarmeð- limir eru staðráðnir í að halda þeirri braut, sem þeir fóru þegar Iðnnemafélag Ak- ureyrar var stofnað fyrir til- hlutan þeirra. Látum þá ekki verða fyrir óþarfa töfum og vandræðum fyrir sinnuleysi okkar og sofandahátt, því að með því erum við að brjóta niður en ekki að byggja upp. Látum þá heldur finna hjá okkur áhuga og lífsþrótt, enda þótt mörg okkar séu ung að árum, það flýtir að- gerðum til hagsbóta fyrir okkur öll. Verum þess ávallt minnug að það eru fyrst og fremst okkar eigin samtök, sem við getum treyst full- komlega. Þeir erfiðleikar, sem skap- ast af því að sífellt skiptir um fólk í iðnnáminu, eru þeim mun betur yfirstígan- legir, sem fólkið byrjar fyrr á virkri þátttöku í félags- starfinu eins og skiljanlegt er, og er því öllum, sem leggja stund á iðnnám bent á að komast sem fyrst í náin tengsl við sitt félag. Ekki megum við bera við getuleysi þegar við sjáum stóra sigur- möguleika framundan, bara ef við tökum höndum saman. Við getum heldur ekki litið upp á nokkurn mann, að minnsta kosti ekki án þess að skammast okkar, ef við erum aðspurð, neydd til að svara því til að við tökum ekki virkan þátt í félags- starfi okkar sjálfra. Látum það heldur sannast á okkur að æskan ráði yfir þeim þrótti, sem mörgum verður svo tíðrætt um. Látum orð þeirra sannast í athöfnum okkar, sem verða munu fullar sannanir þess að við erum þess verðug að erfa Iandið, án þess að vera í gapastokk töluverðan hluta af okkar dýrmætu ævi, til bæði skammar og skapraun- ar auk ómetanlegs tjóns fyr- ir okkur og raunar þjóðina alla. Engin getur gengið þess dulin að þótt okkur sé þröng- ur stakkur skorinn í félags- málum, þá fær ekkert stað- ist þann kraft, sem býr í virkilegri samstöðu íslenzkra æskumanna og kvenna. Ekki hvað sízt þegar markmið ba.r- áttunnar er að heimta sjáíf- sagt frelsi, svikalausa fræðslu og tilhlýðilegt kaup, ásamt fleiru. Mörgum er það að sjálf- sögðu stórkostleg hneigslun- arhella að við nemar skulum dirfast að fara fram á að fá yfirleitt að lifa eins og menn. Þeir mega vissulega endur- skoða hug sinn til æskunnar, sem þannig hugsa. Því að hún er staðráðin í að sigra. aðeins að þær væru ekkert frekar fyrir stelpur — nema kannske þessar gulu með geitinni. Það var orðið furðu rúmt í búð- inni þegar ég fékk afgreiðslu. Ég huggaði mig við að víðar væri sú regla í heiðri höfð en hér, að hinn fyrsti yrði síðastur. Afgreiðslumað- urinn spurði mig nú hvað væri fyr- ir mig. Ég tók blað upp úr vasa mínum og byrjaði að lesa honum fyrir. Þar var ýmislegt smávegis, sem kostaði þó drjúgan pening. Þar var líka kjöt. Mér og konu minni hafði komið saman um, að enda þótt sá tími árs væri, að ekki fengist kindakjöt og yfirleitt sjaldan annað ætt kjöt, þá myndu þeir tæplega okra neitt sérstaklega á því, sem ef til vildi fengist. En þegar ég heyrði hvað verðið var, varð mér ósjálfrátt hugsað til naglahrúgunnar, sem ég hafði sett sér. — Kolryðgaða djöfla. Ég varð ábyggilega að rétta þá líka, þótt þeir væru svo til ónýtir. Kjöt- ið kostaði nefnilega fjörutíu og átta krónur hvert kíló. — Kálfakjöt af átján vetra. Það var ábyggilega ekki hægt að treina þriðja árs kaup- ið það mikið, að hægt væri að kaupa saum. Vikulaunin rúmlega þrjúhundruð og fimmtíu kr. duga ekki svo vel með þessu verðlagi. Ég hrökk við. Afgreiðslumaður- inn var víst farinn að hækka róm- inn, þegar ég tók eftir honum á ný. „Ætlarðu að fá kjöt?“ sagði hann. ,Já, — ja, hefur þú ekki neitt ódýrara?" „Odýrara," át hann eftir. „Veistu hvað það kostar sumstaðar?“ „Það kostar allt að 60 kr. karl minn,“ svaraði hann sjálfum sér. „Láttu mig hafa kíló,“ sagði ég og reyndi að láta sem ekkert væri. Það var nú samt farið að síga í mig. Ég get víst ekki fengið mér tóbak í pípuna mína, eins og ég hafði þó vonað. „Níutíu og átta, fjörutíu o'g fimm.“ Hönd mannsins stóð útrétt í áttina til mín. Þegar hann fékk mér til baka, spurði ég, eftir að hafa litið í kring um mig: „Seljið þið sigarettur í lausu.....?“. Þegar ég, á heimleiðinni, gekk framhjá mjólkurbúðinni, minntist ég þess, þegar ég missti aurana á gólfið þar í búðinni, fullri af kven- fólki. Það var mikil raun að þurfa að tína þá upp. Veðrið þennan laugardagsmorg- Framh. á 7. síðu. • Jj/achoCondon: • • u • ! ÖRLAGAORRUSTAN! V • ...................... • • V FRAMHALDSSAGA Þegar sjöunda lotan hófst var mesti móðurinn farinn að renna af Sandel og hann byrjaði að taka bardagann alvarlega, því hann vissi að þetta myndi verða erfiðasta keppnin sem hann hafði háð, til þessa. Tom King var gamall harðjaxl og hann var leiknari en nokkur af þeim gömlu harð- jöxlum, sem hann hafði mætt til þessa — gamall harðjaxl, sem aldrei missti stillinguna og var óvanalega leikinn í að verja sig. Högg hans voru eins og kylfuhögg og hann gat gefið „knock out“ bæði með hægri og vinstri hendi. Samt sem áður þorði King ekki að gefa sig, til fulls, bar- daganum á vald. Hann gleymdi ekki eitt augnablik brotnu hnúunum sín- um og hann vissi að hvert högg varð að vera áhrifamikið ef þeir ættu að endast til leiksloka. Þegar hann sat þarna í horninu sínu, datt honum það allt í einu í hug að ef reynsla hans og æska Sandels væru komin á einn stað, gæti orðið úr því heimsmeistari í þungavigt ,en ógæfan var einmitt sú, að svo var ekki. Sandel gæti aldrei orðið heimsmeistari. Hann skorti reynslu, og hana yrði hann að gjalda með æsku sinni og þegar reynslan væri fengin væri líka æskan á burtu. Þegar bjallan gall við byrjun elleftu lotu, þaut Sandel fram til þess að sýna að ennþá ætti hann eftir léttleika, sem hann þó í raun og veru átti ekki. King skildi þetta og mat það rétt — skollaleikur jafn gamall íþróttinni. Hann fór í „klinching" tiil þess að bjarga sér, og um leið og hann losaði sig leyfði hann Sandel að rétta úr sér. Hann hafði reiknað það þannig út. Hann þóttist ætla að slá með vinstri hendi og lokkaði þannig andstæðing sinn þannig til þess að beygja sig undan högginu, en sló hann svo hægrihandar-högg á hökuna. Um leið horfði hann um eitt skref og sló Sandel aftur beint á hökuna svo hann valt um. Frá þessari stundu gaf hann Sandel ekki augnabliks frið, og þótt hann fengi sjálfur hinar hræðilegustu móttökur, svarf hann ennþá fastar að Sandel, sló hann á kaðlana og gaf honum hvert hökuhöggið eftir annað jafnframt því sem hann lét rigna yfir hann höggum allra tegunda. Hann reif sig lausan þegar Sandel reyndi að „klinche“ og barði hann frá sér þegar hann reyndi aftur að grípa í hann og í hvert skipti sem Sandel var í þann veginn að falla, þreif hann í hann og hélt honum uppi með annarri hendinni samtímis því sem hann sló hann út í eitthvert hornið þar sem hann gat ekki dottið. Ahorfendurnir voru nú orðnir hálf geggjaðir og voru allir á Kingsbandi og alls staðar að heyrðist hrópað: „Lemdu hann, Tow! Rotaðu hann! Rotaðu hann! Nú áttu hann Tow! Þú hefur hann!“ Það leit út fyrir að endalok bardagans ætluðu að verða allferleg og það er einmitt það, sem áhorfendur hnefaleikakeppnanna borga fyrir að sjá. Og Tom, sem í hálfa kfukkustund hafði sparað krafta sína sem mest hann mátti, hætti nú allri sparnararpólitík til þess að geta framkvæmt þetta mikla áreynsluverk, sem hann vissi að hann gat framkvæmt, þetta var eina tækifærið hans — nú eða aldrei. Hann mæddist mjög en hann vonaði, að áður en kraftar hans þyrru að fullu, tækizt honum að slá andstæðing sinn svo rösklega niður að hann lægi meðan hann hélt áfram að berjast með það fyrir augum að knýja fram úrslit, reiknandi út þunga högga sinna og áhrif þeirra, áttaði hann sig á því hversu erfitt það var að berja Sandel niður. Hann átti í ríkum mæli seiglu og úthald æskunnar. Sandel var í raun og veru maður sem átti framtíð fyrir sér sem hnefaleikari. Hann átti allt sem til þess þurfti. Aðeins úr grófum efnivið eins og honum gátu skapazt góðir hnefaleikarar. Sandel reikaði og gat tæpast staðið, en Tom King var knúinn að fá kiampa í fæturna og hann var byrjað að verkja í hnúana. Samt sem áður herti hann sig til þess að gefa þessi ferlegu högg, þótt hvert þeirra ylli honum vítiskvölum í illa leiknum höndum. Þó hann fengi sjálfur því nær engin högg þessa stundina byrjuðu kraftar hans að fjara út jafn hratt kröftum andstæðingsins. Höggin hans hittu en það var ekki lengur sami þunginn að baki þeirra og sérhvert þeirra var knúið fram með mikilli viljaáreynslu. Fætur hans voru sem blý og hann dró þá sýnilega eftir gólfinu. Þetta varð til þess að þeir sem veðjað höfðu á Sandel byrjuðu aftur að hvetja sinn mann með háum hrópum.

x

Iðnneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.