Iðnneminn - 01.12.1954, Síða 7
I_Ö_N_N_E_M_I_N_N___7
áðan, horgaði það mismuninn á
því, sem væri á miili þess kaups,
sem við fáum nú og þess sem við
þurfum til að geta lifað mannsæm-
andi lífi. Svo er það þriðja atriði,
sem stjórnin á að leggja út í bar-
áttu fyrir, og það er að beita sér
fyrir að unninn verði btáður bugur
á því, að bæta iðnfræðsluna al-
mennt, og f því efni verður að vera
um byltingu að ræða. Bezta ráðið
í þeim efnum held ég að mundi
.vera, að afla sér upplýsinga frá
sem flestum löndum og reyna með
þeim gögnum að semja upp úr þeim
nýja reglugerð um iðnnám. I því
mundi líka felast, að bæta úr því ó-
fremdarástandi, sem ríkir um Iðn-
skólann og kennsluna þar. Um það
þarf ég ekki að fjölyrða mikið, þið
vitið það manna bezt sjálfir. Aðal-
atriðið er það, að í þeim skóla er
mjög lítið lært, og hjálpar allt þar
til. Mjög óheppilegur tími í kvöld-
skólanum. í öðru lagi er kennslan
Glæsilegur fræðslufundur
Félag rafnema í Reykjavík hélt
fyrir skömmu fræðslufund að
Röðli. Á fundinum var sýnd kvik-
myndin: „Hvað er rafmagn", og
flutti Þorbjörn Sigurðsson for-
stöðumaður Rannsóknarráðs ríkisins
skýringar við hana.
Á fundinum, sem var hinn á-
nægjulegasti og fór mjög vel fram,
mættu tæplega 200 manns, en raf-
-nemar hér í Reykjavík munu vera
milli 60—70. Sést á því hve iðn-
nemafélögin, ef þau tækju þessa
starfsemi upp, gætu látið mikið gott
af sér leiða iðnnemufh og öðrum
iðnaðarmönnum til menntunar.
Félag bifvélavirkjanema
j Þann 16. þessa mánaðar var
Félag- bifvélavirkjanema end-
urreist. Var aðalfundur þess
haldinn í Baðstofu iðnaðar-
manna og var hann fjölsótt-
Ur. Skýrt verð'ur nánar frá
fundi þessum í næsta blaði.
þannig, að hjakkað er á námsgrein-
um, sem lítið eða ekkert gagn er að
í þeirri iðn, sem viðkomandi iðn-
nemi er að læra. Eg hygg, að ég taki
ekki of djúpt í árina, með að segja,
að iðhneminn hefur mjög lítið
færst nær því að vera góður iðn-
aðarinaður, í gegnum Iðnskólann,
og það litla, sem hann þar lærir,
vegur lítið á móti þeirri staðreynd,
að það dregur mjög mikið úr á-
huga nemans við verklega námið.
Það er eins með bóklega námið eins
og það verklega, að þar verður að
vera bylting á. Með öðrum orð-
um, við fáum kennslu í iðnskóla
þeim er við göngum í, sem gerir
okkur hæfari í okkar iðngrein. Því
mér finnst að taka ætti út af náms-
greinalistanum þær ' námsgreinar,
sem ekki koma því verklega námi
við, sem viðkomandi iðnnemi er að
læra. Ég er ekki í þessu sambandi
að tala um, að ekki sé mjög gaman
og gagnlegt t. d. að lesa vel
dönsku, skrifa vel íslenzku og vita
það, að umsögn er sögn í persónu-
hætti, eða að atviksliður er hvert
einasta atviksorð, en eftir að iðn-
fræðslan er komin í það góða horf,
að hún sé aðeins miðuð við það að
gera sérhvern nema færan í iðn-
greininni sjálfri, þá fyrst getum við
farið að líta í kringum okkur og
gá að því hvort við höfum ekki
tíma til þess að bæta við okkur
að læra ýmislegt, sem að gagni
mætti koma á lífsleiðinni, svona al-
mennt.
í sem allra stytztu máli mætti
segja, að hin verklega kennsla iðn-
nema í dag, laun iðnnema í dag og
kennslan í Iðnskólanum í dag eigi
eitt samegnlegt, að um þau má
segja,- að þau séu mjög léleg.
Ég vil að lokum skora á alla iðn-
nema að sameinast í baráttunni fyrir
bættum láunum og bættum aðbún-
aði, verandi minnugir þess, að á
þessum sviðum bíða mörg verkefni
óleyst, cn ef við leggjumst allir á
eitt, þá mun ábyggilega eittlwað
þokast áfram í þessum málum. I
þessu sambandi verðum við að gera
okkur það ljóst, að ekkert verður
gert okkur til hagsbóta, nema það
komi frá okkur sjálfum.
LÉTT OG ÞUNGT
Persneskar gátur.
1. Sjálfur er ég boginn, en í gegn-
um mig gengur beinn, og ég beygi
mig, þegar ég þjóna herra mínum.
2. Hvað er það, þegar ég álít
sjálfan mig vitrari en alla aðra?
3. Það er undarlegt, að þótt það
hafi engan maga, drekkur það, þeg-
ar drykkurinn er þrotinn, deyr það.
4. Annar helmingur mannanna
skemmtir sér við að búa það til,
en hinn helmingurinn skemmtir sér
við að hlusta á það. Hvað er það?
5. Það ber mann og hest, en
þreytist ekki.
6. Þ.eir eru svo margir, að ekki er
hægt að telja þá, en ef einn þeirra
vantar, sézt það strax.
•igæ[j( nujo ; uuungej(j -9
•UEji3>[g -j •jn3osjngu[g j, gispfq
Eduieq f E>[suiiapj ■£ uui3og •[
■mnunfvS ntfS3usj2<l gm soag
Glerbrot í sólskini
Framh. af 4. síðu.
un var yndislega fagurt og ég tók
eftir því, enda þótt ég væri iðn-
nemi. Ég fór mér rólega á heimleið-
inni, einkanlega framhjá einu hús-
anna, þar sem söngur heimsfrægs
tenórs hljómaði frá útvarpsviðtæk-
inu. Einhverntíma myndi ég eignast
útvarpsviðtæki. Bráðum kæmist ég
á fjórða námsárið og þá hækkaði
kaupið í rúmar 400 krónur, 45%
af kaupi hinna lærðu. Ekki gæti ég
samt keypt tækið það árið. Mér
fannst það ekki svo slæmt fyrir mig
en öllu verra fyrir konu niína, sem
alltaf var heima.
Þótt ég færi rólega, þá var ég óð-
ara kominn heim og slengdi körf-
unni á borðið. Ó. D.
Auglýsing í þýzku blaði:
„Ung kona, sem vinnur í skrif-
stofu, tekur að sér kennslu í lýð-
ræði eftir kl. 6 á daginn".
*
l lugo Black, dómari í Hæstarétti
Bandaríkjanna, varð cmbættis vegna
•ð vera við jarðarför manns, sem
hann hafði haft innilega fyrirlitn-
ingu á í mörg ár. Starfsbróðir Blacks
kom of seint í kirkjuna, settist við
hliðina á honum og spurði, hvað
athöfnin væri langt komin. „Verj-
andinn var að byrja ræðu sína‘f,
anzaði Black þurlega.
*
Nonna litla liafði verið komið
fyrir hjá frænku sinni, þar eð von
var á nýjum meðlim í fjölskylduna.
Frænka Nonna litla spurði hann,
hvort það væri satt að mamma
hans lægi á sæng? „Nei, hún hefur
hana ofan á sér“, svaraði Nonni litli
með þjósti.
*
Far þú til maursins letingi! Skoða
háttu hans og verð hygginn.
*
■ 80 daga þarf Kiwi-fuglinn til þess
að klekja út eggjum sínum. Allan
þann tíma liggur karlfuglinn á eggj-
unum og léttist um hálfa þyngd
sína.
*
Franskur liðþjálfi snæddi miðdeg-
isverð í krá einni í Berlín. Fram-
reiðslustúlkan skildi ekki orð í
frönsku. Liðþjálfinn vildi fá rifja-
steik og reyndi að gera henni það
skiljanlegt með bendingum og lagði
báðar hendur á brjóstið. — Stúlkan
kom að vörmu spori með tvö mjólk-
urglös.
Ég þarf ekki að kaupa blað, því
að ég hef ritstjórana í vasanum.
Ein af stúlkunum í efsta bekk
Iðnskólans hafði opinberað kvöldið
áður, en henni til mikilla leiðinda
tók enginn af skólasystkinum henn-
ar eftir hringnum.
Loks þegar skólatíminn var úti
seint um daginn og hún sat með
félögum sínum inni í skólastofunni,
þoldi hún ekki mátið lengur, stóð
upp og sagði:
„Guð, hvað það er heitt hérna!
Ég held ég verði að taka af mér
hringinn".
*
— Hvers vegna sagðirðu hljóm-
sveitarmanninum upp, Klara?
— Það var alltaf málmbragð af
honum.
*
Ef einn móköggur vegur 1 kg. og
hálfan móköggul. Hve mörg kg.
vega þá tveir mókögglar?
•3>[ j, :jea§
1111111111 ■ 111111111111111111111 ■ 111111111111111111! ! 1111,,, , ,,
lll•l■ll•llll•llllll■lllllllllllllllll*ll|llll|llllllllllllllllll■lllllllllllllllllllllllllllllllll■l•(llllllllll||l(||||■llllllll||||||■l■llllll■lllllllllllllll■ll||||||||||||||||
lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
REXOIL
Sjálfvirkur araerískur olíubrennari
Notiö þaö bezta — þaö borgar sig
★ er pottsteyptur og ryðgar því ekki né skemmist af tæringu.
★ hefir rafmótor, sem varinn er fyrir ofhitun, spennufalli eða
breytingum á straumi. Hann slekkur sjálfkrafa á sér, ef
spenna lækkar um of.
★ er búinn fullkomnustu öryggistækjum, svo sem reyk- og
vatns-thermostat og herbergis-hitastilli.
★ hefir verið seldur í Ameríku í 25 ár, án þess að nokkur hafi
eyðilagzt af sliti.
★ veldur ekki truflun á útvarpstækjum.
Verðið er mjög hagstætt
Upplýsingar á skrifstofu vorri,
Hafnarstræti 5 — Simi 1690
0LIUVERZLUN
ISLANDSr
iiiiiiiin 111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111111M1111111111111111111111111111111111111111111111111111111 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiii1111■ 1111■ 111111111 ...............................................................................................................................................................