Ljósberinn - 14.01.1922, Síða 5
LJOSBERINN
5
þá fundu þau hann ekki úti á götunni, í sollinum,
þar sem foreldrar hans gátu hrygst yfir að hann
væri. Nei, þar gat Jesús ekki verið. Heldur fundu
þau hann í musteri Drottins. því Jesús vissi, eins
og hann sagði sjálfur, hvar honum bar að vera. Ó,
að þið, kæru börn, vilduð læra af Jesú, hvar ykkur
ber að vera og reyna að líkjast honum. því ykkur
ber að vera í því, sem Guðs er, hvar sem hans orð
er haft um hönd og í sérhverjum góðum félagsskap.
Biðjið Jesú, nú á þessu nýbyrjaða ári, að hjálpa
ykkur til þess að þið mættuð líkjast honum, þegar
hann var drengur í Nazaret. Látið líf ykkar eins
og mótast í mynd Jesú Krists, og gefið honum þá
beztu gjöf, sem barn getur gefið: gefið honum
hjarta ykkar á unga aldri, því það þráir hann að
hvert barn geri. Og þá munuð þið líka eignast hina
sönnu og varanlegu gleði. H. Á.
----o----
Vegurinn til himins.
Fyrir nokkru síðan var það siður á Englandi, að
smádrengir voru látnir skríða niður í ofnpípurnar
og inn í eldavélarnar, þar sem fullorðnir komust
ekki að. Daglega sáu menn þá á götunum í sótara-
búningi sínum með sópana í höndunum, síbiðjandi
og hrópandi um atvinnu með háum og skærum rómi.
Einu sinni mætti herramaður einum þeirra og
sagði við hann:
„Vinur minni litli! Vísaðu mér á götuna sem