Ljósberinn - 07.10.1922, Side 1
Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeim
það ekki, þvi slíkum lieyrir Gtuðs riki tilu. Mark. 10, 14.
Heimþrá.
Og sjá, eg er með þér og varðveiti þig, hvort
sem þú fer, og eg mun aftur flytja þig til þessa
lands; því að ekki mun eg yfirgefa þig, fyr en
eg hefi gjört það, sem eg hefi þér heitið.
I. Mós. 28, 15.
Til er ein sú tilfinning, sem er jafn beisk eins
og hún er sælukend og holl. Hún gerir helzt vart við
sig á kvöldin, þegar unglingurinn er genginn til
hvílu á ókunnum stað; brennheit tregatár hrynja
honum um vanga, unz hann hefir grátið sig til
svefns. það er h e i m þ r á i n. Ef til vill brosir þú
að hugsuninni. En bíddu við, þangað til þú fer að
heiman í fyrsta skifti, — þá muntu fá að reyna
hana.
Nú var hinn ungi Jakob á ferð í fyrsta sinn. f
stað mjúku hvílunnar heima hjá móður hans, varð
hann nú að láta sér lynda að leggjast á mosafeld
merkurinnar, með harðan stein að höfðalagi. Yfir
honum skinu stjörnurnar — þögular að vanda. þær
voru hinar sömu og heima; en það, sem hann hafði
með sér heiman að, dugði honum nú allra bezt. Hann