Ljósberinn - 07.10.1922, Page 3
LJÖSBERINN
815
því að húsi kristniboðans á næturþeli og bundu aft-
ur allar hurðir, til þess að loka drepsóttina þar inni.
Skömmu síðar kom annar kristniboði til bæjarins
og sá kristniboði var læknir. Hann ferðaðist um og
vitjaði sjúklinga og var alt af við búinn að hjálpa,
þó að það væri um hánótt. Og aldrei krafðist hann
neinnar borgunar. Natan varð steinhissa á þessu,
einkum af því, að þeir höfðu farið svo illa með trú-
boðann, sem var þar næst á undan honum. Endir-
inn varð sá, að hann fór til kristniboðans, sem alt af
var að lækna, og mælti: „Hvers vegna ertu svona
góður í þér?“ ,,Eg er ekki góður“, svaraði kristni-
boðinn, „eg er bara að reyna að gera ofurlítið af
hiriu sama, sem Jesús gerði, þegar hann ferðaðist
um á þessu landi“.
Natan varð stórlega hrifinn af þessum orðum;
þessu gat hann ekki gleymt. þegar foreldrar hans
og aðrir löstuðu Jesús frá Nazaret og hæddu hann,
þá gat hann ómögulega komið því heim við það,
sem hann sá þennan lærisvein Jesú gera. Alt lagði
liann í sölurnar, hann var svo góður, hann lagði
lífið í sölurnar til að hjálpa sjúklingunum. Natan
varð að láta segja sér meira af þessum merkilega
meistara. Hann fór til kristniboðans iðulega og
hlustaði á ræður hans. Og svo fór að lokum, að
hann tók kristna trú, og gaf Jesú hjarta sitt. J)ví
meira sem hann heyrði sagt frá Jesú, því dýrðlegri
var Jesús í augum hans; hann gat ekki annað en
dáðst að kristniboðanum, sem var þó ekki annað
en lítið ljós af ljósi Krists, sem var ljós heimsins.
Börnin góð! Svona ætti það að vera með okkur