Ljósberinn - 19.04.1924, Side 2
122
L J Ó S B E R I N N
aði og rósin frá Jeríkó aftur og breiddi blöð sín mót
sólunni og' himninum, sem fagnaðarmerki þess, að
Kristur væri upp risinn. Og síðan hefir rósin frá
Jeríkó líka verið kölluð upprisublómið.
í sunnudagaskóla á páskadaginn 1924.
Lestu: Matt. 28, 1.—10.
Minnistexti:
Dauði, hvar er sigur þinn? Dauði, hvar
er broddur þinn? I. Kor. 15, 55.
Á föstudaginn langa, þegar Jesús leið á krossinum,
og að lokum hneigði höfuðið og gaf upp andann, þá
héldu óvinir hans að þeir hefðu unnið sigur.
Og vinir Jesú voru niðurbeygðir af hrygð, því að
þeir héldu einnig, að hann hefði beðið ósigur. þeir
tóku líkama hans niður af krossinum, sveipuðu hann
hreinu líni og lögðu hann í gröfina. Síðan veltu þeir
stórum steini fyrir grafardyrnar og fóru að því búnu
frá gröfinni hryggir í huga.
En óvinir Jesú innsigluðu gröfina og létu varðmenn
gæta hennar.
En páskamorguninn kom, engill Drottins steig nið-
ur af himni og velti steininum frá grafardyrunum, og
Jesús reis upp frá dauðum, en varðmennimir flýðu
óttaslegnir.
Nú þurftu vinir hans ekki lengur að gráta. Nú sáu
þeir, að hann var sigurvegarinn yfir synd og dauða.
Nú heilsuðu þeir hver öðrum með þessari fagnaðar-