Ljósberinn


Ljósberinn - 19.04.1924, Síða 4

Ljósberinn - 19.04.1924, Síða 4
124 LJÓSBERINN kveðju: „Jesús er upprisinn. — „Já, hann er sann- arlega upprisinn“. Ert þú ekki einn af vinum Jesú? Fagnar þú þá ekki á sigurhátíð hans? — það er sannarlega ástæða til að fagna. því að hann, sem reis upp frá dauðum á páskamorgni, hann vill gefa þér hlutdeild í sigri sín- um. Hann vill gera líf þitt að sigurhátíð, — þannig, að þú á hverjum degi getir fagnað sigri yfir synd og dauða. Ef þú fylgir honum af öllu hjarta, verður líf — já, dauði þinn að sigurhátíð. Y. -----o---- Það, sem afi vildi ekki muna. Sveinn settist hjá rúminu og fór að hágráta, því að nú skildi hann, að mamma hans var hættulega veik. En mamma huggaði hann. Hún sagði, að Sveinn ætti bara að vera bezti drengur, þá mundi honum farnast vel, þó að hann misti mömmu sína. „Lofaðu mér því, drengurinn minn, að muna þessa stund alla æfi; að muna það, að þá bað eg þig að vera góðan og gera aldrei neitt, sem rangt er og ilt fyrir Guði. Lofaðu mér því, að gleyma því aldrei, að fara til Guðs með alt, þú veizt, að hann heyrir hverja bæn. Sveinn, elsku drengurinn minn, viltu lofa mér þessu?“ Og Sveinn tók í hönd móður sinni og lofaði þessu grátandi, eins og hjarta hans ætlaði að springa. Mamma hans dó litlu síðar. Sveinn stóð hjá kist- unni og horfði á elskaða andlitið hennar mömmu sinnar; hann vissi, að það var í síðasfa sinni. En hvað

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.