Ljósberinn


Ljósberinn - 19.04.1924, Side 7

Ljósberinn - 19.04.1924, Side 7
LJÖSBERINN 127 kom þrammandi inn í herbergið hans og stamaði út úr sér þessum orðum, feimnislegur á svip: „Æ, herra prestur, leyfið þér vesalings Róbert litla að vera á morgun með altarisgestunum, sem ætla að neyta hinnar heilögu kvöldmáltíðar“. Presturinn vildi ekki láta gera sér ónæði og gerði sig líklegan til þess að vísa drengnum á dyr, en dreng- urinn leit til hans með sárbiðjandi augnaráði: „Herra prestur, ef að þér vissuð, hve heitt eg elska Drottinn minn Jesúm Krist, þá munduð þér ekki neita mér um þá bæn, að fá að sitja við hans borð“. Presturinn gat ekki sagt neitt. Hann komst við af hinu biðjandi augnaráði og hinum bamslegu einföldu orðum. Hann átti stutt samtal við Róbert og svar- aði síðan játandi bæn hans. pegar Róbert kvaddi prestinn og gekk á brott, kom presti í hug sú ósk, að allir altarisgestirnir næsta dag mættu koma með sama hjartalagi upp að borði Drottins, sem Róbert litli. — Á sunnudagsmorguninn fór Róbert til kirkjunnar. Hann þurfti að ganga langan veg, en hann lét ekki standa á sér. Undir ræðu prestsins hrundu tárin, eitt eftir ann- að, niður kinnar Róberts litla, og í hvert sinn sem hann heyrði J e s ú nafn nefnt, hristi hann höfuðið hryggur í bragði og mælti fyrir munni sér: „En eg sé hann ekki“. þegar hann að lokum hafði neytt hins heilaga sakramentis, leit hann til prestsins og þakklætið skein úr augum hans. Svo grúfði hann sig niður og huldi andlit sitt í höndum sér, þar til blessun var

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.