Ljósberinn


Ljósberinn - 25.02.1928, Page 4

Ljósberinn - 25.02.1928, Page 4
60 LJÓSBERINN hérna«, sagði Anna döpur, »og eg hlakk- aði svo til að vera hjá þér í vetur«, »Pér er alveg óliætt áð hlakka til eins fyrir því«, sagði Sigríður. Frúin er ágæt, og svo kemur Stella, litla elskan, hún er svo indæl, eg segi pér satt, pér er alveg óhætt að hlakka til«. »Já, en er ekki frúin voða ströng og vandlát?« spurði Anna. »Ö, nei! Iiún er vitanlega vandlát og hún vill hafa hlutina í góðu lagi, honni er auðvitað illa við vanrækslu og hirðu- leysi, en svo er um allar góðar hús- mæður, Anna mín, og þá er ekki um annað að gera fyrir stúlkurnar, heldur en að hirða vel um verkin sín. Eg efast ekkert um aö þú gerir það. Ukki hefir frúin fundið neitt að mínum verkum, þenna tíma, sem eg heíi unnið hjá henni, mér líkar yfirleitt vel við liana. Eg segi nú reyndar ekki að eg hefði orðið kyr, hefði Stella ekki verið. Hún er rétt- nefndur sólargeisli«. »Er þessi Stella dóttir hjónanna?« spurði Anna. »Já, þau eiga ekkert annað barn«. »IIvað er hún gömul?« spurði Anna. »Mig ininnir að hún sé 10 ára eða 11 ára, eg man það ekki upp á víst«, sagði Sigríður. »Er hún stór?« spurði Anna. »Hún er fremur smá vexti, en Ijóm- andi snotur, hvar sem á hana er litið«, svaraði Sigríður. »Hvernig er hún í liátt?« spurði Anna. »Á eg að fara að lýsa henni fyrir þér? Jæja, bara að eg gæti það! Eg er svo hrædd uin, að mér takist ekki að gefa þér rétta hugmynd um hana, — hún er ljóshærð og líklega eru augun hennar blá, þau eru tindrandi, og ininna mig á stjörnublik. Hún hefir brosholur í báðum kinnum, og munnur- inn hennar er ofur smár og varirnar rauðar eins og þroskuð hrútaber, ennið er hátt og svipmikið, og augnabrýrnar bogadregnar eins og á fallegasta mál- verki. Eg get eiginlega ekki lýst henni, þi'i þarft að sjá hana með eigin augum, þá finnurðu hlýindablæinn, sem leggur frá henni og þú sérð brosið hennar, j>að er laðandi og hressandi, — eg get sagt þér það, Anna mín, að eg liefi ýmislegt reynt um dagana, og stundum sækir að mér þunglyndi, en ef eg sé Stellu brosa, þá flýr Jiunglyndið, það er eins og mað- ur sjái lieiðan himin, þegar brosið fæð- ist í bláu augunum hennar, Eg skil ekki í öðru en að allir, sem kynnast því barni, liljóti að elska það. Eg veit um sjálfa mig. Eg vona að þú verðir lipur við hana og gerir alt, sein hún biður jiig um«. »Mér þykir svo ósköp gaman að börn- um«, sagöi Anna. »En hvað hún heitir einkennilegu nafni — Stella!« Ætli liún heiti ekkert annað en Stella?« »það er frá!« svaraði Sigríður. »Aldrei liefi eg lieyrt hana kallaða neitt annað. Stella er svo fallegt nafn, þykir þér það ekki?« »Eg veit ekki«, sagði Anna. »Mér þykir Rósa miklu lallegra«. »það er nú af því að litla systir þín, sem þú mistir, hét Rósa, livað var hún gömul þegar hún dó?« spurði Sigríður. lJað korn einkennilegur glampi í aug- un á Önnu og hún sagði með óskiljan- lega kaldri rödd: »llún var nærri fjögra ára, þegar luin dó frá okkur«. Sigríður virti önnu fyrir sér í laumi, henni var auðsjáanlega afar sárt að minnast á litlu, látnu systurina, því var ef til vill bezt að tala ekki meira um hana, en Sigríði fanst hún mega til með að segja hlýtt hluttekningarorð viö aum- ingja ungu stúlkuna. »Æ, hún er sæl að vera komin til Guðs, blessað barnið«, sagði hún, »þar er hún óhult fyrlr öllu misjöfnu, þar hrekst ekki fyrir henni«. ' Anna stundi við og leit undan, hún

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.