Ljósberinn


Ljósberinn - 15.02.1934, Side 12

Ljósberinn - 15.02.1934, Side 12
36 LJÖSBERINN Við megum vera alveg viss um, að hann heyrir til okkar.« »Ög' hjálpar okkur?« »Já, sannarlega. Það er svo gött að biðja hann og örugt að treysta honum. Hvorki úti né inni þurfum við að vera hrædd, hvernig sem veður er og hvað sem á gengur, ef við treystum honum. Hann varðveitir okkur og hjálpar okk- ur. Höndin hans er máttug og hjarta hans brennur af kærleika. Eitthvað á þessa leið höfðu orðin fallið í skólanum. Nú sat ég heima um kvöldið, þreytt- ur og þungur í huga og átti að búa mig undir morgundaginn. Eg átti nú sjálfur að lifa því trúar- og bænarlífi, sem ég hafði verið að prédika fyrir börnunum. Það var vandinn meiri. Þá var drepíð hljóðlega á dyrnar hjá mér. Eg snéri mér við, og þarna var þá Jóhannes litli kominn,, glaður og bros- íeitur, og horfði stóru og sakieysislegu barnsaugunum til mín. »Kennari, á ég að segja þér nokkuð?« »Já, þakka þér fyrir, Jóhannes, það þykir mér vænt um. Kom þú og settu þig hérna hjá mér.« »Eg og hún Jóhanna systir mín vor- um úti í haga að leita að tveimur kúm, sem voru horfnar.« »Voruð þið það? Núna í kvöld, svona seint? Varstu ekki myrkfæiinn?« »Nei, maður þarf ekki að vera hrædd- ur, þegar Jesús er með í förinni. Eða þarf maður þess?« »Nei,, það er satt, Jóhannes, maður þarf þess ekki. En hvernig gekk það, funduð þið kýrnar?« »Já. En við hefðum víst ekki fundið þær svo fljótt, ef við hefðum ekki beðið Jesú að hjálpa okkur.« »Báðuð þið,Jesú?« »Við vorum lengi búin að ganga og leita og leita. Það var íarið að dimma. Og svo settumst við niður. Jóhanna fór að gráta. En svo báðum við Jesú að hjáípa okkur, Qg þá var ég' viss um, að við mundum finna þær.« »Varst það þú, sem fanst upp á að biðja?«. »Nei, það var hún Jóhanna. En víð báðum bæði. Og ég bað Jesú um, að ég fengi að sjá þær fyrst. Svo lögðum við af stað, yfir holt og hæðir. Og ioksins kom ég auga þær og kallaði: »Jóhanna, nú sé ég þær!« Þarna stóð hann fyrir framan mig, blessaður drengurinn, svo sæll og glaður. Mér fanst sem hann væri eng'ill Guðs með boð tii mín frá æðra heimi. Svo hug'heill var hann, allur og óskiftur í því, sem hann var að seg'ja. Og' svo hrifinn af því sem gerst hafði, og himin- glaður og þakklátur fyrir það, að Jesús hafði heyrt bænina hans. Hann kvaðst hafa mátt til að koma og segja mér frá þessu. Eg tók hann í fang mér og' faðmaði hann að mér. Mig langaði til að segja honum um barnavininn mesta — hann, sem elskar börnin svo innilega, fylgir þeirn hvar sem þau eru, heyrir bænirn- ar þeirra, hjálpar þeim og greiðir veg þeirra á allan hátt. En ég varð svo hrifinn og klökkur, að ég gat ekkert sagt. Mér fanst hver hugsun mín svo þurleg og hver setning svo köld og ósamboðin hinni heilögu hrifningu, — eins og hvert orð mundi skygg'ja á eða skerða hina hreinu og ör- uggu fullvissu barnsins um það, að Jes- ús er æfinlega hjá þeim,, sem biðja hann, boðinn og búinn að hjálpa þeim, sem treysta honum. Og í raun og veru fanst mér, að héi' hefði ég eiginlega engan rétt til að tala. Svo lang't fanst mér ég standa að baki skólabörnum mínum í barnslegri trú og trausti til Guðs. Eg varð að þeg'ja. Að- eins hlýða á — og læra,

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.