Ljósberinn


Ljósberinn - 15.03.1934, Blaðsíða 7

Ljósberinn - 15.03.1934, Blaðsíða 7
LJÖSBERINN 67 reynist góður drengur. En þú veizt víst, hverjum það veitir mesta gleði.« »Hverjum þá mamma?« »Manstu ekki, hvað ég sagði þér í gær. og hvað þú sagðir þá?« »Jú, þú sagðir mér, að Jesús elskaði okkur og hefði dájð fyrir okkur.« »Já, og þá sagði ég: »Viltu ekki, barn- ið mitt, gera eitthvað á móti fyrir Jes- úm?« Og þá svaraðir þú: »Ég vil gera eitthvað mikið fyrir Jesúm, mamma.« »JÚ, ég man það vel.« »En ef þú gæfir nú Hans boltann í stað þess að láta við það lenda að lána honum hann?« Að svo búnu gekk hún burtu og lét hann velta þessu fyrir sér sjálfan. Hvað átti hann að gera? Hann elskaði þó Jesúm, sem hafði búið svo í Jiaginn fyrir liann, að honum stæði opinn him- ininn. En honum þótti líka undur vænt um. boltann sinn. Og svo var hann nu nýbúinn að finna hann aftur. Átti hann þá að geía boltann? Skömmu seinna var barið að dyrum hjá ekkjunni. Ottó var kominn aftur. Ekkjan hélt, að hann væri kominn til að sækja boltann sinn. Hans stakk þá boltanum skelfdur undir ábreiðuna. En Ottó gekk þá brosandi að rúminu og sagði: »Þú mátt eiga boltann, Hans, ég gef þér hann.« »Nei, hvernig geturðu fundið upp á því,« sagði ekkjan og táraðist — »góður drengur ert þú.« Ottó sneri sér við og leit á hana, bros- andi og' mælti: »Jú, ég vil svo fegin gera eitthvað fyr- ir Jesú, því að hann er svo góður.« Að svo mæltu gekk hann út úr stof- unni. Ottó gekk heim glaður í skapi; -aldr- ei hafði hann fyr leikið sér með öðru eins fjöri og gamni eins og þennan dag- inn, þegar hann gaf sjúka drengnum boltann sinn. • .................................. . : • ®/ í® Bænalíf Jesú. m En svo bar við um þessar mundir, að hann fór út til íjallsins, til þess að biðj- ast fyrir, og var alla nóttina á bæn til Guðs. - Lúk. 6: 12. Ef vér gætum hugsað oss nokkurn, fyrr eða síðar, er lifað gæti lífi sínu án bæna, þá mundi það vera Guðs-sonur- inn, hann, sem var hreinn, heilagur og syndlaus. En guðspjöllin bera honum alt annan vitnisburð. Enginn hefir beðið jafn mikið og hann, — enginn háð jafn harða bænar-baráttu, eins og Frelsari vor. Kærleikur hans til Föðursins var svo mikill, að hann varð að eiga viðtal við hann tímum saman. Og oss elskaði hann svo heitt, að hann varði miklum tíma til að biðja fyrir oss. Guðs börn ættu að virða sem bezt fyrir sér bæna líf Jesú og læra af hon- um. Lærisveinarnir sögðu einu sinni við hann: »Herra, kenn þú oss að biðja, eins og Jóhannes kendi lærisveinum sínum.« — Jesús gaf oss fyrirmynd, svo að vér sklydum kappkosta að líkjast honum. Ilann notaði næturkyrðina til þeirrar iðju. Þá er ekkert sem truflar; vinnunni lokið og allir gengnir til náða. Jesús var einn uppi á fjalli aleinn. Það er blessunarríkt að vera á samkom- um og biðja með öðrum. En vér þurf- um líka að vera í einrúmi — aleinir, og opna hjörtu vor fyrir Guði, svo að hann nái að tala til vor. Heilar nætur var Jesús á bæn. Lið- löng nóttin varð honum ekki of löng. Hvorki nætursvalinn né náttmyrkrið megnaði að hamla honum. Líkam- lega þreytan hvarf. Einveran styrkti

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.