Ljósberinn


Ljósberinn - 15.03.1934, Page 11

Ljósberinn - 15.03.1934, Page 11
71 LJÖSBERINN »Já, þessu bjóst ég við,« sagði faðir hans. »Það er mannsefni í þér. Þegar þú ert orðinn höfðinu hærri, skaltu fá að róa fiskibátnum mínum. Slík afrek auka þrótt finskum drengjum.« Mikael hugsaði líkt og faðir hans, aö það mesta í heiminum væri máttugir armar, góður stálbogi og beitt stríðsöxi. - En svo bar það til einn dag, að hann fékk að fara með föður sínum í kirkju. Og þar var margt mjög merkilegt að sjá og heyra, fanst honum: helgimyndir, reykelsi, latneskar bænir og tíðasöngvar. »Eg skil ekkert,« sagði drengurinn. »IIvað er það, sem þeir eru að syngja?« »Það er latína,« svaraði faðir hans. »Iivað skyldi það annars vera? Það er ekki hægt að tala við Guð á neinu öðru máli.« »Getum við þá ekki talað við Guð á finsku?« spurði drengurinn. Sjálfur tal- aði hann finsku og flestallir þeir, sem hann þekti, og honum fanst það kyn- legt, að þeir skyldu ekki geta talað við Guð á, sínu máli, né skilið það, sem Guð sagði. »Nei, Guð skilur ekki finsku,« svaraði faðirinn. »Hann skilur ekki annað en latínu.« Þetta var undarlegt, fanst drengnum, Að Guð skyldi vera svona fákunnandi! En hann þorði ekki að spyrja um fleira. Eftir messu þurfti faðir hans að hitta prestinn að máli; gekk hann því inn í skrúðhúsið til hans og drengurinn með honum. Á borðinu lá eitthvað fallegt og fáséð, með allavega strikum og myndum. »Hvað er þetta?« spurði drengurinn. »Það er bók,« svaraði faðir hans. Bók! Hvað gat það verið? Mikael hafði aldrei séð neitt þessu líkt. Hann færði sig nær og horfði á þennan merkilega hlut, sem nefndur var bók. Hún var stór og þykk, með skrautlegum bókstöf- um, Sumir voru bláir, aðrir gulir, græn- ir og rauðir. Flestir voru þeir þó svart,- ir, og utanmáls helgimyndir með kórón- um á höfði. I þá tíð var aðeins ein prentuð bók til í landinu, og það var tíðabók á latínu. Allar aðrar bækur voru handritaðar og því afar dýrar. Ein slík bók gat kostað eins mikið og heil bú- jörð. »Hvað tákna þessi hlykkjóttu strik?« spurði drengurinn. »Það eru bókstafir. Að búa þá til, er kallað að skrifa, og að skilja þá, það er kallað að lesa.« »Get ég fengið að læra að lesa og skrifa?« »Nei, það geta engir, nema prestarn- ir.« »Ég' vil vera prestur,« sagði drengur- inn. »Nei-nei, alt annað fremur en þaðk svaraði faðir hans og glotti við. »Þá yrðir þú að læra latínu.« »Er það svo erfitt, pabbi?« »Já, það er tungumál Guðs, og það læra menn hvergi, nema í skólanmn.« »Eg vil fara í skóla og læra latínu,« sagði drengurinn. »En þegar ég er orð- inn prestur, ætla ég að biðja Guð á finsku. Og ef hann ekki skilur mig, ætla ég að segja við hann á latínn: »Kæri Guð, lær þú að tala finsku, svo að við getum öll skilið það, sem þú segir. Við viljum svo gjarna tala við þig!« Presturinn stóð áléngdar og heyrði samtalið. Klappaði hann nú drengnum á öxlina og sagði: »Mikael litli, þú talar eins og þú hefir vitið til! Biblían er rituð á latínu og grísku, og bvernig ætti Guð að geta talað annað tungumál en það, sem hann notar þar? En það er engan veginn ó- hugsandi að þú getir orðið prestur. Ég ætla að tala um það við hann föður þinn.« Faðirinn svaraði því til, að drengur- inn væri heitinn eftir höfuðenglinum

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.