Ljósberinn - 10.04.1926, Qupperneq 3
L J ÖSBERINN
115
sólunni. Pessi sól er Jesús. Hann er alhreinn, alhei-
lagur, alveg flekklaus.
Göngum svo inn í inndæla, bjarta, hlýja sólskinið
hans og látuin hann lýsa oss og verma, svo að við
getum varpað sólskini út í dimman heiminn.
Tökum Jesú með okkur hvert sem við förum og
hvar sem við stöndum; heima hjá okkur í skólanum,
á, leiksvæðinu og í vinnustofunni okkar. Yið skulum
kosta kapps um að láta pað koma í ljós í orðum og
gerðum og í allri umgengni, að við höfum verið með
Jesú. Pá verðum við smá-ljósberar í heiminum.
Inndælt er það, að fá að vera ljósberi Jesú. Pá
blessast maður bæði sjálfur og verður öðrum til bless-
unar.
Drottinn lifir enn og ræður.
Á bökkum Rínar liggur þorp nokkurt langt frá al-
faravegi. Bak við porpið gnæfir þverbrattur núpur við
himni, og uppi á núpnum eru rústir af fornri höll eða
liddaraborg. Engin kirkja er i þorpinu, en par er
stórt og vandað skólahús.
Fyrir mörgum árum bjó góður og guðrækinn skóla-
kennari með konu sinni og 8 börnum. Börnin voru
auðvitað blessuð gjöf frá Guði. En af pví að allar
árstekjur kennarans voru ekki nema 600 krónur, pá
veitti honum örðugt að fæða og klæða tíu manns
allan ársins hring.