Ljósberinn


Ljósberinn - 25.10.1930, Side 1

Ljósberinn - 25.10.1930, Side 1
igfeiSfr • *7í?&ub siigbi .• JLrsyf.tC for<nutuim hotna til min og kannib þoírn þa<> Mi, aif s/íhum heirrír Quifs ríkit.H.. 42. tbl. Reykjavík 25. október 1930 X. árg. Konungssonurinn. (Sunnudagaskólinn 2G. okt. 1930). Lestu: IL Sain., 15, 13.—15. Lærðu: Orðskv. 22, 8. a. Sá, sem íanglæti sáir, uppsker óhamingju. Já, þaó sannast á Absalon, að sá sem rang-læti sáir, uppsker óhamingju. Saga hans er átakanleg. Sagan af konungs- syninum, sem sveik föóur sinn, er elsk- aði hann svo innilega, hratt honum af veldisstóli og flæmdi hann úr landi. En með öllu þessu leiddi Absalon ógæfuna yfir sjálfan sig. Saga Absalons er skrifuð okkur til aðvörunar. Minnstu þess, kæri ungi lesari, að Guð hefir tekið þig að sér sem sitt barn í heilagri skírn. Þú ert konungsbarn. Þú mátt ákalla konung konunganna sem föður þinn. Á hverjum degi færð þú að reyna kærleika hins himneska föðurs, því að hann elskar þig með ei- lífum kærleika. Það er hin mesta óhamingja að end- urgjalda þennan kærleika með ótrú- mennsku. Láttu það aldrei henda þig. Hylltu hann ætíð sem konung hjarta þíns. Hann einn á að eiga þar hásæti. En það er oft erfitt að standast árásir hins illa, þegar freistingarnar tæla og syndin leitast við að komast í hásætið. En það er einn konungssonur, sem bæði vill og getur hjálpað þér. Jesús Kristur, konungssonurinn í himnaríki, býður þér hjálp sína. Hann, hinn trú- fasti frelsari, vill leiða þig og gefa þér eilífa hamingju. Réttu honum hönd þína. Y. Heiðlóan. Himininn var fagurblár. Það sást hvergi nokkursstaðar skýflóki á himn- inum. Sólin skein eins yndislega og hún framast gat skinið á júnímorgni. Fugl- arnir í móunum voru allir komnir á kreik, til að afla sér fæðu. Lóurnar flugu kvakandi til og frá, en lögðust þess á milli á egg sín, til að haida þeim heitum. Lóuflokkurinn, sem hér verður sagt frá, var ekki allskostar á- nægðúr eftir ferðina yfir hafið. Flokk- urinn hafði fengið óhemju rok á móti sér, þegar hann var á miðri leið yfir

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.