Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Blaðsíða 5
NYTT KIRKJUBLAÐ
HÁLFSMÁN AÐ ARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING.
1906.
Reykjavik, 1. janúar.
1. blað.
„jjýtt kirkjublað/1
Arið sem leið var engu blaði eða tímariti lialdið úti,
sem tálist gæti málgagn kirkjimnar íslensku.
Blöð vor og tímarit almenns og sérlegs efnis skifta nú
/leiruin tugum, oij liefði það verið merki mikillar fátækt-
ar og ótrúlegs sinnuleysis, ef svo hefði lialdist, að sjálf
kirkjan íslenzka, þýðingarmesta og yfirgripsmesta félagið,
við hlið þjóðfélagsins, gœti ekki eignast og átt áframsitt
sérstaka málgagn til þess að vinna að sínu.heilaga mark-
miði.
A hinni árlegu prestastefnu landsins kom því og fram
síðastliðið sumar sár kvörtun yfir því, að nú vœri ekki
lengur til neitt kirkjulegt málgagn, og töluðu fundarmenn
þar eigi síður i nafni leikmanna en sjálfra sin. Út af
þeim umrœðum var skipuð þriggja manna nefnd til þess
að stuðla að því, að kirkjulegt timarit gœti risið upp af
nýju nú við þessi áramót. I nefndina voru kjörnir þeir:
Hallgrímur biskup Sveinsson, Jens prófastur Pálsson og
Þórhallur lektor Bjarnarson.
Aðal-útgefandi hins síðasta kirkjidega tímarits, sem
vér höfum átt hér heima, síra Jón Helgason, var eftir
eigin ósk ekki kjörinn í nefndina, enda bjóst prestastefnan
við þvi, að helzt væri að leita til hans með það að táka
upp aftur útgáfustarf sitt, og var nefndarmönnum ætl-
að að styðja hann til þess á einlivern hátt.
Arangurinn af starfi þessara á manna liefir nú ordið
sá, að við tveir, sem áður höfum mest fengist vib ritstjórn