Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Blaðsíða 15

Nýtt kirkjublað - 01.01.1906, Blaðsíða 15
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 11 þetta er vilji lians, sem er herra safnaðarins og konungur. Þetta á ekki sizt heima um trúboðsstarfssemi næstliðinnar aldar og nálægs tíma; það sem ber hana uppi og hefir kuúð haua áfram alt ti! þessa dags, er fyrst og fremst hin lifandi sannfæring um, að þetta sé vilji hans sem forðum daga mælti við lærisveina sína hin miklu konungsorð: „Mér er gefið alt vald á himni og jörðu“, — og þvi gat boðið: „Farið og gjörið allar þjóðirnar að lærisveinum með því að skíra þá til nafns guðs föður, sonar og heilags anda, og kenna þeim að halda alt, sem eg hefi boðið yður“. Og vissulega er það ein- göngu hin lifandi meðvitund um að vera í verki drottins og í fullu samræmi við heilagan kærleiksvilja hans og fyrirmæli, sem skapað hefir þann eldmóð og áhuga, þá fórnfýsi og sjálfsafneitun, þá trúardjörfnng, það starfs]>rek og þá sigur- von, sem einkennir svo fagurlega trúboð.sstarfið meðal Iieið- inna ])jóða, hvar sem það er rekið í anda og krafti drottins. Af þessu er þá líka auðsætt hver er grundvöllur ])essai‘- ar mikilfenglegu starfsemi. Grundvöllurinu er kærleikurinn til Jesú Kri-ts og hlýðnin við öll hans boðorð, sem ávalt er kærleikanum samfara, eða réttara: er sýnileg opinberun kærleik- ans út á við; því að elska Jesúm, er að halda hans boðorð. Elska til Jesú, sem ekki skeytti vitund um vil ja hans og kröf- ur, væri engin elska. Því meir sem vér elskum Jesúm, þess fúsari verðum vér til að hlýða honum og þess betur fáum vér skilið hvað hanu heimtar af oss. Heimurinn, sem aldrei hefir viðtöku veitt kærleika Krists og því heldur aldrei komist að raun um, livað það er að elska hann aftur á móti og hvernig elskan til hans ávalt skapar í hjörtunum hlýðni við hans boðorð, þessi heimur hlýtur að Imeykslast á öðru eius starfi og trúboðsstarfinu. Það hlýtur að vera heimska i heimsins augum, með því að hann skilur alls ekkert í ])ví sambandi, sem myndast milli Jesú og hins trúaða lærisveins hans í frá þeirri stundu, er Innn hefir gefið Jesú hjarta sitt. Það hefir ávalt svo verið og er það enn í dag, að heiminum er það alt hneyksli og hcimska, sem hann getur ekki skilið. En jafnvel þótt heimurinn skildi það samband, sem hér á sér stað, eðli þess og rót þess, hlyti hann engu að síður að hneykslast á þessari starfsemi kirkjunnar að útbreiðslu

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.