Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Side 1

Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Side 1
NÝTT KIKKJUBLAÐ HÁLFSMÁNAÐAKRIT FYEIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING. 1906. Reykjavik, 12. nóvember 21. blað w Aqocti hins kristilcqa lifs. Fyrirlestur, setn Thv. Klaveness ílutti á stúdenta- fundinum á Finnlandi. Ágæti hins kristilega lífs er ágæti mannlífsins. ÞaS er að skilja: með kristindóminum er oss gefið að geta lifað mannlegu lífi voru svo, að fyllilega rætist úr hinum margvís- legu möguleikum þess. Hvað er þá það sem kristindómurinn hefir flutt mannlífinu? Með einu orði köllum vér það „endurlausn". Ágæti hins kristilega lifs er í því fólgið, að við það endur- leysist manneðli vort, svo að það getur lifað lífi sínu frjálst og fullkomlega. En hvað merkir orðið „endurlausn“ ? Sú merking orðsins sem næst liggur er neikvæð, það er að skilja: endurlausn er lausn frá ]>vi er rígbindur mann- eðlið í ósæmilega fjötra, tálmar því að lifa frjálst og anda frjálst, og veldur með því hnignun þess og eyðileggingu. En nuniið staðar við hina neikvæðu merkingu eina get- um vér ekki. í sambandi við hana og svarandi til hennar er hin jákvæða merking orðsins: Endurlausn er gróðursetn- ing í jarðvegi, þar sem manneðlið nær að dafna og lifa og þroskast fullkomlega eftir sínu eigin innra lögmáli, og að ná með því hinu háleita takmarki sínu, sem það keppir að, með fullri meðvitund eða án hennar, og allar þess gáfur og allir hæfileik- ar eru miðaðir við. Það, sem fjötrar manneðlið, spillir lifi þess og fer með það, er syndin.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.