Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Side 6

Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Side 6
246 NÝTT KIRKTUBLAÐ. trúa á hann. Sá kœrleikur, sem vér trúum ekki á, hefir auðvitað engin áhrif á oss. Endurmiriningin um kærleika föðursins kom glataða syninum til að ranka við sér og trúin á þennan kærleika, gaf honum þrek til að rísa á fætur og snúa heim aftur. Því segi ég: Trúðu í Jesú nafni, að guð sé þér náðugur og miskunnsamur faðir og að þú sért barn hans, sem farið hefir villur vegar, ]»á fyrst getur þú snúist. Afturhvarf er ekki skilyrði fyrir trú, heldur er trú skilyrði fyrir afturhvarfi. Afturhvarf, sem ekki er sprottið af trú, er þrælavinna án anda og lífs. En ég get þó ekki trúað án þess að endurfæðast, segir þú. Endurfæðast ? Hvað er það sem endurfæðir ? Þú svarar: Guðs andi. Það er rétt. En hvar er guðs andi ? Dettur hann ofan úr skýjunum? Kemur hann gegnum loftið? Nei, hann er í fagnaðarerindinu. Fagnaðarerindið um náð guðs í Kristi Jesú hefir andaun í sér fólginn. Þessi boðskapur, og hann einn, endurfæðir manninn, en vitaskuld því að eins að hon- um sé trúað. Boðskapur, sem ekki er trúað, fellur dauður til jarðar. Til þess að þú því getir endurfæðst, verður þú að trúa á guðs náð, sem fagnaðarerindið boðar þér. Það verður þvi ekki hrakið, að þér er heimilt að trúá á Jesúm eins og þú ert; þér er óhætt að byggja á orði Jesú og á friðþægingardauða hans og á sigri hans yfir dauðanum og á skírninni í hans nafni; í fullu trausti til alls þessa er þér heimilt að trúa og segja: Eg, — einmitt ég, — á miskunnsaman guð, sem fyrirgefur mér synd nhna og elskar mig sem barn sitt eingöngu fyrir Jesú sakir. Þetta er ágæti liins kristilegá h'fs. Þettaer hið dýrðlegahnoss sem kristindómurinn ílytur mannlífinu; hann flytur mér aum- um syndara ])á vissu, að hann sem héldur himni og jörðu í almáttugri hendi sinni og stjórnar öllu því, er fram við mig kemur, elski tnig sem sitt eigið barn. Og þessi vissa veitist mér ekki í tilliti til neins í fari mínu: ástúðar minnar og réttlætis mins, eða vakningar minnar og afturhvarfs míns eða endurfæðingar tninnar og endurnýjungar. Ætti ég að byggja hana á einhverju þessu, ])á yrði úr því engin vissa, heldur eintóm óvissa. Eg svifi þá sífelt á milli vonar og ótta. Það er hið dósamlega ógæti hins kristilega lifs, að égöðlast þessa vissu einvörðungu bygða á því, að guð hefir gefið

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.