Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Page 9

Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Page 9
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 249 á högum hennar, þá virðist lítt hugsanlegt, að það verði gjört kostnaðarlaust, eins og nefndin ætlast til, að kalla má. Ekki vill nefndin vinda hráðan bug að umbótunum, sem hún hefir í huga. Lögin, sem að því lúta að bæta hag presta, eiga ekki að koma til framkvæmda fyr en smátt og smátt eftir því sem prestaköllin losna. Á þvi gæti staðið 30—40 ár eða lengur. En á þeim tima má búast við að ástæður þjóðarinnar breytist til mikilla muna á margan liátt, og verði því lögin úrelt orðin áður en þau komast í gildi um land alt, þó að þau væru brúkleg eins og nú stendur; kæmu þá umbæturnar fyrirhuguðu aldrei að notum nema á nokkrum stöðum á landinu. Vitaulega hefir nefndinni gengið sparsemi til að haga þessu svo, en eigi hitt, að hún viðurkenni ekki bráða þörf umbótanna. Og sparn- aður yrði það vafalaust nokkur á móts við það að láta lögin ganga í gildi alstaðar í einu. En þó gæti farið svo, að sparnaðurinn yrði ekki eins mikill og nefndin ætlast til. Þessi tilhögun freist- ar allra þeirra presta, sem lægst hafa launin, og þeirra, sem elst- ir eru, til þess að sækja burt eða leggja niður embætti um stund- arsakir; þvi að það er eini vegurinn fyrir þá til þess að öðlast launahækkun og losna við eftirlaunakvaðir, samkvæmt tillögum nefndarinnar. Trúlegt er, að þeir yrðu allmargir, sem til þess létu leiðast; þörfin rekur viða á eftir. Og þvi fleiri sem þeir verða, því minni verður sparnaðurinn fyrir landssjóð. Auk þess er það ömurleg tilhugsun, liklega fleirum en prestum einum, ef mikil brögð yrðu að því, að prestar hrökluðust þannig burt þaðan sem þeir annars vilja vera og sambúð við söfnuði er góð, og ef til vill gömul. Með þessari óhappa-tillögu sinni hefir því nefndin í rauninni brotið það niður með annari hendinni, sem hún hefir bygt upp með hinni. Telur fundurinn það svo mjög misráðið, að með engu móti sé við unandi, og meira að segja; líklegt til þess að auka til muna þá óánægju, sem á sór stað meðal prestastéttarinnar, og er þó varla á það bætandi. Ef þær breytingar, sem nefndin annars vill gjöra á högum presta, kæmu í gilcdi alstaðar jafnsnemnva, þá viðurkennir fundur- inn að þær muni til nokkurra bóta. Sú meginregla virðist vera rétt, að launin séu jöfn til að byrja með, en fari hækkandi eptir aldri. Erfiðleikauppbætur og persónulegar uppbætur eftir verð- leikum eru og sanngjarnar og haganlegar. En varla getur nein- um manni blandast hugur um það, að launin þyrftu að vera hærri en nefndin leggur til (1200, 1400 og 1000 kr.), ef framvegis á að verða völ á jafn-hæfum mönnum til prastskapar eins og til ann-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.