Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Side 10

Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Side 10
250 NÝTT KIRKJUBLAÍ). ara embætta. Til þess þyrftu launin að vera svo há, að at þeim megi lifa sómasamlega án þess að stunda auka-atvinnu (búskap). Og líklegt er að þjóðÍD gjöri sig ekki ánægða með það til lengd- ar, að í prestsstöðu veljist þeir einir af mentamönnum landsins, sem sízt eiga sér annars úrkosti. En ef það á ekki að verða, er óhjákvæmilegt að láta presta hafa eins góð kjör og aðra opinbera starfsmenn, sem álíka luiklu þuria til að kosta. Eundurinn fór alls ekki fram á Deinar réttarkröfur, bygðar á fornum eignarrétti kirkjunnar, né heldur fram á nokkra náðar- veitingu, heldur það eitt, ,er honum virtist brýn þörf og væri bygt á fullri sanngirni. Það er hvorttveggja að hér er ekki unr nein sældarkjör að ræða, enda ætlast prestar alls ekki til þess að geta lifað sællífi, sern sízt mundi verða þeim til gæfu eða gengis, held- ur að eins að þeir hafi það kaup, að þeir með reglusemi geti kom- ist vel af og fyrir þá sök haldið fullri virðingu í stöðu sinni. Um kirkjunefndarmálin liafði fundurinn annars efnkum þetta að athuga: Samband ríkis'og kirlcju áleit fundurinn enn ekki kominn tíma til að leysa; kannaðist að vísu við að fríkirkjuhugmyndin væri í sjálfu sér fögur, en ýmislegt væri þó því til fyrirstöðu að setja fríkiikju á stofn nú þegar. Efnalegar ástæður væru sumstaðar á móti þvi, einkum i strjálbýli. Og þar sem menn gerðu sér von um að við það mundi vakna Dýtt líf í kirkjunni að stofna fríkirkju, þá þótti það raunar ekki ólíklegt, eu það yrði þó því að eins holt og heilbrigt líf, að þjóðin hefði fengið meiri mentuu en enn er. Enn fremur þyrfti þetta mál rækilegan undirbúuing. Yel þótti mega bjargast við þjóðkirkju um alllangan tíma, ef hún fengi eðlilega sjálfstjórn og rétti utan-þjóðkirkjumanna yrði vel borgið. Biskupsembœttinu vildi funduriun halda sérstöku, og áleit enn meiri þörf í því en áður, ef kirkjan fengi sjálfstjórn. En helzt vildi hann að biskupinn yrði kosiun af prestum. Kirkjuþing áleit fundurinn nauðsynlegt til þess að kirkjan gæti stjórnað sínum eigin málum. Aleit hann það hættulaust fyr- ir þjóðfélagið, þar eð stjórn og alþingi sker úr, ef ágreiniugur kemur milli þess og alþingis. Ekki áleit fuuduriun það neitt að marka þó að synodus og aðrir kirkjulegir f'undir hefðu reynzt at- kvæðalitlir, þar sem þeim samkomum hetði verið komið svo óhent- uglega fyrir, og þær sama sem engin ráð haft. Um sbknarnefndir og liéraðsnefndir þótti fundinum tillögur nefnd arinnar til bóta, það sem þær ná; kosnÍDgartími sóknarnefnda lengd- ur, þeim settur oddviti; safnaðarfulltrúunum ákveðnir dagpening- ar o. fl.

x

Nýtt kirkjublað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.