Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Qupperneq 11

Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Qupperneq 11
NÝTT KIRKJUBLAÐ. 251 Ura veitingu prestakalla þóttu og tillögur nefndarinDar til bóta, með rýrakun kosningarfrelsisins o. fl. Ura umsjón og fjárhald kirkna er líkt að segja. Rétt þykir sú stefna að sera flestar kirkjur komist sem fyrst undir uraráð safnaðarins, eða svo fljótt sem þvi verður við komið. Um skipun prestakalla var fundurinn i talsverðum efa, en var hræddur um að nefndin hetði gengið fulllangt í samsteypu þeirra, þar eð mikil fækkun presta væri ísjárverð frá kirkjulegu sjónar- miði. En þar sem fundarraenn ekki höfðu nægan kunnugleik á staðháttum víðsvegar um land, fór fundurinn lítið út i þetta mál. Breytingin þar í héraðinu var áður samþykt á héraðsnefndarfundi; og þótt hún ekki þætti æskileg í sjálfu sér, var hún álitin möguleg. Lavn prestanna var áður minzt á. Eundinum þótti aðferð sú, sera nefndin hefir stungið upp á með tilliti til launagreiðslunnar, óþarflega vafuingasöm og stakk upp á einfaldari aðferð; sömuleið- is vildi hann létta af prestum allri gjaldheimtu, nema fyrir auka- verk, sem fuudurinn annars vildi að sumu leyti aftaka, en að sumu leyti hækka. Laun prófasta vildi fundurinn hækka, en láta aptur vísitaziu- laun falla niður. Um ellistyrk presta og eftirlaun félst fundurinn að miklu leyti á frumvarp nefndarinnar, þó það legði kvöð á prestanu að safna sér ellistyrk. Jim öllum eftirlaunakvöðum vildi hann þegar í stað létta af prestaköllunum. Skyldur presta til að kaupa ekkjum sínum lífeyri, sem nefndin hafði stungið upp á, félst fundurinn einnig á, þótt það lika legði kvöð á prestana. Um sotu kirkjvjarða yfirleitt félst fundurinn einnig á tillögu nefndariuuar. Eu skiftar voru skoðauir um það, hvort ætti að ætla prestum ábúðarjarðir. Ef prestar fengju nægilegar tekjur til að, lifa af án þess að vera skyldaðir til að búa, þá vildu flestir fundarmenn helzt að prestura væri að eins ætlað prestsetur með dálitilli spildu afræktuðu landi. En ef þeir yrðu áfram að stunda búskap, þá þótti sjálfsagt að ætla þeim ábúðarjarðir sem hingað tih Eu aðrar kirkjujarðir, sem prestar þyrftu ekki að hat'a afnot af, vildi fundurinu fara með sera þjóðjarðir, og losa presta við alt utnboð þeirra. Láni til liúsahóta á prestssetrum þótti fundinum neindiu yfir- leitt hafa koraið vel fyrir, þar sem það annarsvegar miðaði til tryggingar, en hinsvegar til þess að gjöra lánskjörin hagfeldari fyrir prestana.

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.