Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Qupperneq 12

Nýtt kirkjublað - 12.11.1906, Qupperneq 12
252 NÝTT KIRKTUBLAÍ). Jafnvel þótt prestafundurinn féllist á margar tillögur kirkju- málanefndarinnar gjörði liann þó breytingartillögur við flest frum- vörpin, og lét nokkurn veginn ítarlega í ljósi álit sitt um bvert mál fyrir sig. En í þessu stutta ógripi er ekki bægt að fara um það fleiri orðum. Aðaltillögurnar voru það, að þjóðkirkjan feugi frjálslegra fyrirkomulag, kjör presta yrðu bætt að mun, og að allar béraðlútandi réttarbætur yrðu látnar komast á sem fyrst og alstaðar jafnsnemma. Á fundinum, sem var 9. fundur presta í héraðinu, varð ekki timi til að ræða fleiri mál neitt að ráði. Slvar til síra Magnúsar Helgasonar. [Niðurl.J Um utanbókarlærdómiun og skaðvænleik hans fer síra Magnús margfalt barðari orðum en ég nokkru sinni í ritdómi minum, og þar talar hann af meira en 20 ára reynslu sem prest- ur. En því erfiðara verður mór að skilja gang hugsunarinuar hjá honum er hann í stað þess að segja út frá slíkri reynslu: burt með þessa skaðvænlegu námsaðferð og burt með hverja þá trúkenslubók, sem getur orðið til að halda lífinu í henni, — mæl- ir sterklega fram með hinu gallaða ljóða-kveri, af þvi að það gjöri þessa námsaðferð, sem hann telur skaðvænlega, Ijúfari og léttari börnunum! Síra M. játar, að þululærdómur kversins geri börnin leið á kristindórasfræðslunni, svo að hún stundura verði þeim hreiti- asta kvalræði, af því að þau skilji minst af því sem þau séu að fara með, — en þó vill hann að tekið sé upp pað kver, sem beint knýr þau börn, er nota það, til þess að læra alt i þulu, og hlýt- ur að gjöra tileinkun efnisins etin etfiðari vegna ljóðabúningsins! Það er vafalaust talsverðum erfiðieikum bundið að komast hjá utanbókar-lærdómnum með þeirri tiihögun setn er á barnafræðslu hér á landi og hefir verið, og ég skil fullvel, að síra M. hefir þreyzt á tilraunum sinum í þá átt og fundist þær vera fyrir gíg, i sveit þar sem enginn er skóli og börnin hafa komið beint frá heimilunum til prestsins. En sé þessi námsaðferð eins skaðleg og síra M. heldur fram, þá verður að berjast á móti henni, geri þululærdómurinn kristindómsfræðsluna að hreinasta kvalræði, þá má ekki með nokkru móti gefast upp i baráttunni gegn honum fyr en sigur er unninn. Verði aftur á móti séð fram á, að þulu-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.