Nýtt kirkjublað - 12.07.1907, Side 6
150 _ _____ NÝTT KIRXJTJBLAÐ.
nota hana til þess að hrekja trú vora, en ekki til þess að
styðja hana.
Menn byrja helzt á sköpunarsögunni. Sá sem kannast
við að hann trúi henni, er af mörgum þeirra gjörður að at-
hlægi, og það enda þólt ekki sé svo geypi langt síðan er
sjálfur Cuvier fór um hana hinum lofsamlegustu orðum.
En — um sh'kar árásir manna á einstök atriði í biblí-
unni náttúrufræðilegs (eða sögulegs) eðlis, er það að segja
fyrst og fremst, að vér megum ekkilíta á þau svo sem stæði
trú vorri af þeim nokkur minsta hætta Vér leitum ekki til
biblíunnar til þess af henni að fræðast um náttúrufræðileg
eða söguleg efni. Vér leitum þangað til þess að fræðast um
fiiður vorn eilifan og son hans eingetinn, um samband sálar
vorrar við þá, um b'fið eilífa eins og menn Jifa það bæði hérna
megin grafarinnar og hinu megin. Og skyldi föður vorum
eilífum hafa ])óknast að láta bókina sína bera á sér fingra-
för mannlegs breyskleika, er birtist i sögulegum og náttúru-
fræðislegum villum, ])á skiptir það o.-s engu þegar til heild-
arinnar kemur. Þó ímynda eg mér raunar, að það muni
um síðir koma í Ijós, að hann hafi varðveitt hana hreina,
hreina sem gullið, sjö sinnum hreinsað, eins og að orði er
komist. En ég byggi öldungis ekki sáluhjálparvon mína á
þeii'ri skoðun!
Ég trúi á biblíuna, af því aö ég trúi á Jesúm Krist!
Eg trúi öldungis ekki á Jesúm Krisl, af því að ég trúi á biblíuna!
Þeir menn kristnir eru til, sem mundu álíta stoðunum
kipt undan von sinni um eilífa sáluhjálp, ef einhverjum tæk-
ist að sannfæra þá um, að eitthvert örlítið smáatriði í bibli-
unni væri rangt. Barátta þessara manna gegn vantrú ná-
lægs tíma endar þá líka oftast í þráttan um ösnu Bíleams,
hvort hún hafi talað eða ekki, eða annað þessu likt Slíka
biblíutrú vill guð að engu gjöra og hefir fengið náttúruvís-
indi vorra tírna til þess að vinna að því. Trúuðum mönnum
veitir erfiðara að gjöra það, með því að þeir eru hræddir
við að hneyksla einhvern smælingjann, sem í umbúðum
bókstafa-dýrkunarinnar kynni að geyma sanna barnslega trú.
En náttúrufræðingar vorra tíma hafa aðrar athugasemdir
fram að færa gegn trúnni, en þessar sem nú voru nefndar
viðvíkjandi sköpunarsögunnj og ösnu Bíleams,