Nýtt kirkjublað - 15.07.1908, Blaðsíða 6
166
NÝTT KmKJTJBLAÐ
en liinn eldri konungssjóður frá þjóðhátíðarárinu. Styrkheitin
ná einnig til félaga, og mun þar eigi sízt haft fyrir augum,
að hin uppr-ennandi Ungmennafólög muni gera skógræktina
að hjartans áhugamáli sínu.
Þegar vér Islendingar erum á ferð um önnur lönd, ]>á
prýðir ekkert jafnmikið yfirbragð sveitanna og lundirnir kring
um bylin. Þeirrar prýði söknum vér svo sárt hér heima.
Og ]>ó skiftir það meiru, að landsbygðin eyðist hjá okkur —
landið okkar blæs upp og fer í kalda-kol — förum við ekki
að rækta og friða skóg.
Það er hvorki meira né minna.
Kollafjarðarnesskirkja. Kirkjurnar á Felli og Trölla-
tungu í Strandasýslu leggjast niður og sameinast sóknirnar,
og ein kirkja verður reist í Kollafjarðarnesi. Áhugi er i
sóknarmönnum að reisa kirkjuna úr eteinsteypu, og er efni
þar gott, og hægt til flutninga. Búist er þá við að kirkjan
kosti 7000 kr„ en c. 2000 kr. eru til, og er treyst láni úr
kirkjusjóði og af legati Einars Jónssonar frá Kollafjarðarnesi,
föður þingmannanna Ásgeirs og Torfa. Sú sjóður nú um
6000 kr. og er til mikilla sveitarnytja.
Neyðarkostur virðist það vera að reisa alldýr hús til
almennings nota úr aðfluttu timbri, endingarlitlu, í Iandi
því þar sem nóg er við hendina af byggingarefni.
Mýnsters-hugleiðingar á íslenzku Eg óska að
N. Kbl. minnist á hluttöku Jónasar Hallgrímssonar í þýðing-
unni á Mýnsters-hugleiðingHin. Af því að eg hafði frá barn-
æsku heyrt Jónasi eignað með séra Þorgeiri Guðmundssyni
hið „ástkæra ilhýra mál“, sem er á þeirri bók, þá átti eg
einatt von á að það atriði yrði snert hjá einhverjum ræðu-
smiðnum, sem fram kom á Jónasar-afmælinu í vetur sem
leið. En aldrei sá eg þess getið fyrri en í „Sameiningunni“,
og þar er Jónasi eignað að hafa þýtt þriðjunginn af bókinni.
Mér þykir þetta ekki trúlegt, sízt er eg les formála sóra Þor-
geirs.
Mér hugkvæmdist strax, hvort ekki geti skeð að áreiðan-
legar heimildir væri að fá í Reykiavík, t. d, hjá gamla Páli
Melsteð. - Jak. H. —