Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Qupperneq 10

Nýtt kirkjublað - 01.02.1909, Qupperneq 10
34 XÝTT KIRK.TUBLAÐ eymdar og andlegs danða. Guði er enginn hlutur ónicigu- legur, — <juð getur alt\ Þessi hugsun logaði sem skært ljós í sá)u hans í öllu hans liíi Hún gaf honum hug og djörf- ung til að leggja hönd á plóginn án jiess að horfa aftur. Hún gerði honum mögulegt ab ávarpa lærisveina sína að skilnaði jiessum mikilfenglegu orðum: „Alt vald er mér gefið á liimni og jörðu, farið ])\'í og gerið allar þjóðir að lærisvein- um !“ -— „aliar þjóðir“, segir hann, hvorki meira né minna en allar jijóðir. Jörðin á að umhrejdast i guðs ríki. Það er til síðustu samvistarstundar takmarkið háleita og heilaga, sem lærisveinarnir mega aldrei missa sjónar á. — Hver dirfist að neita því, að það sem ómögulegt var fyrir manna sjónum, — hafi reynzt mögulegt? Guðsrikis-fræ- kornið, sem Jesús sáði hér á jörðu, hefir vaxið ogþroskast. Guðs- ríki hefir síðan holdsvistardaga Jesú sífelt verið að yaxa og fær- ast út yfir jörðina, og enn er ]>að að breiðast út fyrir kraft Krists anda. Breytingin, sem orðið hefir i heiminum siðan er Jesús hóf slarf sitt, er svo mikilfengleg, að henni verður naum- ast með orðum lýst. Fátækir og ómentaðir lærisveinar Jesú hafa unnið þau stórvirki í veraldarsögunni, að iill heimsmenn- ingin stendur í óbætaulegri þakkarskuld við ])á. Þúsunda þús- undir víðsvegar um heiminn blessa minningu þeirra, — þús- unda þúsundir, sem ekki vilja vita sér neitjt til sáluhjálpar nema Jesúm Krist, og hann krossfestan, — og þekkja ekkert viðfangsefni háleitara og eftirsóknarverðara en að feta í fót- spor lians — breyta eftir honum. Fagnaðarerindi Jesú hefir á ótal vegu göfgað, umskapað og endurnýjað mannlífið, — réttlæti, friður og fögnuður liefir ávalt myndað föruneyti þess. Það hefir kent heiminum að iðka mannúð og miskunnsemi. Það hefir gróðursett á jörðu hina háleitu bróðernÍK-liIfinningu — að vér erum allir bræður, allir börn eins og sama föður, og þessi tilfinning ryður sér sífelt meir og meir til rúms í heiminum. Það er óhætt urn, að veraldarsagan þekkir engan áhrifa- mann slíkan sem Jesúm, hvað þá honum meiri, engan sem hefir unnið heiminum annað eins gagn og liann, engan sem gefið hefir heiminum neitt jafngöfugt og háleitt til að elska, til að trúa á, til að berjast fyrir, sem hann. Enginn hefir gjört eins marga menn hamingjusama eins og hann; enginn

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.